Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 74

Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 74
Merkið tryggir gæðin Það er bara hræðilegt hvað það er mikið af mat hent. Við erum væn og græn og pössum okkur á að flokka allt og henda engum mat. Margir íslenskir veitinga- staðir eiga sér erlendar fyrir- myndir. Það vakti nokkra athygli á dög- unum þegar eigendur hins þekkta bars The Dead Rabbit í New York gerðu athugasemd við íslenskir veit- ingamenn ætluðu að opna stað með sama nafni í Reykjavík. Meira að segja lógóið var það sama. Íslensku veitingamennirnir töldu sig í full- um rétti en ákváðu á endanum að breyta nafninu í The Drunk Rabbit. Þetta er síður en svo fyrsta dæmi þess að íslenskir veitingamenn sæki sér innblástur til kollega sinna er- lendis. Hamborgarabúlla Tómasar hefur slegið í gegn síðan hún var opnuð hér fyrir rúmum áratug og er nú starfrækt víða um Evrópu. Stofn- andinn, Tómas Tómasson, hefur verið ófeiminn við að viðurkenna að fyrirmyndin hafi verið sótt til búllunnar á Parker Meridien- hótelinu í New York. „Við förum þangað iðulega og fáum yfir okkur andann,“ sagði Tommi í viðtali við Morgunblaðið árið 2009 og bætti því við að raunar hafi allt það sem hann hafi brallað í gegnum tíðina átt sér erlendar fyrirmyndir. Sushi Samba í Þingholtsstræti hefur sömuleiðis notið mikilla vin- sælda síðustu ár en eigendur al- þjóðlegu veitingakeðjunnar Sushi Samba eru ekki alls kostar sáttir við notkun nafnsins og telja sig eiga einkarétt á því. Hafa þeir því stefnt íslensku veitingamönnunum. Það var mörgum áfall þegar McDonalds á Íslandi var lokað árið 2009. Í staðinn var Metró opnaður á sama stað og með næstum því sama matseðlinum. Eigendur kjúklingastaðarins Han- ans í Skeifunni hafa greinilega kom- ið á Nandos sem rekinn er víða um heim. Ef vel er að gáð má meira að segja stundum sjá Nandos-sósur á staðnum. Að síðustu má geta þess að aðdá- endur hins bandaríska Shake Shack geta komist ansi nálægt því að upp- lifa stemninguna með því að heima- sækja Block Burger á Skólavörðu- stíg. | hdm Unnið í samstarfi við Krúsku Við erum bara með hollan og hreinan mat og hér er allt gert frá grunni,“ segir Guðrún Helga Magnúsdóttir sem rekur veitingastaðinn Krúsku ásamt manni sínum, Steinari Þór Þorfinnssyni. Þau leggja áherslu á að bjóða upp á mat fyrir alla hópa – líka græn- metisætur og þau sem eru vegan. Starfsfólk Krúsku leggur sig fram við að koma til móts við þarfir fólks. „Á Krúsku starfar frábært starfsfólk sem auðvitað skiptir miklu máli fyrir rekstur fyrirtækisins, það er alltaf til í allt og heldur staðnum gangandi af miklum krafti.“ Líka opið á laugardögum Hjónin reka einnig nokkur mötu- neyti auk þess sem þau þjónusta fjölda fyrirtækja með hádegismat. Meðal þeirra mötuneyta sem Guðrún og Steinar þjónusta er mötuneyti nemenda Menntaskólans við Sund og segir Guðrún að unglingarnir séu síst af öllu matvandir og geri sér að góðu rauðrófur og allan þann heilnæma mat sem boðið er upp á. Krúska ætlar að bregðast við mikilli eftirspurn og hafa opið á laugardögum milli klukkan 11 og 21 en áður hefur aðeins verið opið virka daga. Væn og græn Matarsóun er ofarlega í huga þeirra hjóna og alls starfsfólksins þeirra og hefur Steinar tekið með sér gegnum tíðina vitneskju og færni í að fullnýta hráefni. „Steinar hefur alltaf unnið með þessa hugmyndafræði sem matreiðslumaður. Við höfum raunar alltaf hugsað vel um mat og hendum bara aldrei mat,“ segir Guðrún og bætir við að ef einhver afgangur verði sé fundinn fyrir hann staður þar sem hann nýtist. „Við hringjum hiklaust í staði þar sem maturinn getur nýst og svo fær starfsfólkið okkar að sjálfsögðu að taka með sér afganga heim. Ef það er eitthvað sem ekki gengur út þá notum við það í rétti daginn eftir, eins og með steikt grænmeti, þá nýtum við það í grænmetisrétt daginn eftir,“ segir Guðrún og heldur áfram: „Það er bara hræðilegt hvað það er mikið af mat hent. Við erum væn og græn og pössum okkur á að flokka allt og henda engum mat. Það er og verður okkar stefna.“ 74 | fréttatíminn | HElGin 11. MarS–13. MarS 2016 Kynningar | Matur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is Ást er: Matur sem elskar þig á móti Á Krúsku er markmiðið að stuðla að heilsusamlegum lífsstíl og minnka matarsóun Hollt í hádeginu Krúska þjónustar stærri og minni mötuneyti 5 daga vik- unnar sendir einnig mat á vinnu- staði eftir pöntunum. „Þannig fáum við tækifæri til að bjóða starfsmönnum fyrirtækja upp á hollan og næringarríkan mat í hádeginu,“ segir Guðrún. Einn- ig rekur Krúska veisluþjónustu og eru veislurnar sérstaklega vinsælar vegna þess að fólk kýs hreint hráefni og veislumat sem er gerður frá grunni. Guðrún Helga Magnúsdóttir og Steinar Þór Þorfinnsson bjóða upp á hollan og hreinan mat á Krúsku. Markmið Krúsku er: Að bjóða upp á hollan og heilsusamlegan mat sem gerður er frá grunni, úr besta fáanlega hráefninu og er án allra aukaefna. Að bjóða upp á mat sem öllum líður vel af að borða og allir fá eitthvað við sitt hæfi – ekki síst grænmetisætur og þau sem eru vegan. Að minnka matarsóun. kruska.is Myndir | Hari Skreyta sig með lánsfjöðrum Block Burger Shake Shack Haninn Nandos Metró tók við af McDonalds á Skólavörðustíg. Hamborgarabúlla Tómasar sækir fyrirmynd sína í búllu á Parker Meridien-hótelinu í New York. Sushi Samba býður upp á blöndu af asískum og suðrænum mat – rétt eins og samnefnd keðja úti í heimi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.