Fréttatíminn - 11.03.2016, Side 76
Iðkendur allt niður í sex ára
„Bandí hefur verið stundað sem keppnisíþrótt hér á landi í um tíu ár.
Það datt botninn úr starfinu um tíma en síðustu 3-4 ár hefur verið mik-
ill kraftur í þessu. Ég hugsa að það séu á milli 200-250 manns sem eru
viðriðnir sportið hér á landi en í kringum hundrað sem æfa þetta sem
keppnisíþrótt,“ segir Atli Þór Hannesson, formaður bandídeildar HK og
landsliðsmaður í greininni.
Að sögn Atla eru iðkendur alveg niður í sex ára og barnastarf er alltaf
að eflast. Þrjú félög eru á höfuðborgarsvæðinu, HK, Björninn og Bandí-
félag Reykjavíkur. Þá er íþróttin stunduð á Egilsstöðum, Akureyri og
Ólafsfirði.
Ísland sendi í fyrsta sinn landslið í undankeppni HM í bandíi á dög-
unum. „Við fórum til Slóvakíu og kepptum við fimm lið, þar á meðal
heimsmeistara Svía. Við töpuðum nokkuð örugglega fyrir Svíum, Rúss-
um og Slóvökum en svo sigruðum við Frakkana. Það hafa verið gríðar-
legar framfarir hjá okkur síðustu tvö árin.“
76 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Frummælendur:
Þórhallur Ingi Halldórsson prófessor við Matvæla- næringarfræðideild HÍ
Eru sætuefni skynsamur valkostur við sykur?
Haraldur Magnússon osteópati B.Sc.
Skaðsemi aspartams, hvar liggur sannleikurinn í dag?
Anna Sigríður Ólafsdóttir dósent í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ
Sykur – hvers vegna er svo erfitt að standast sæta bragðið?
Birna G. Ásbjörnsdóttir M.Sc næringarlæknisfræði
Þarmaflóran – hefur sykur eitthvað að segja?
Fundarstjóri: Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri Heilsustofnunar NLFÍ
Auk frummælenda sitja fyrir svörum:
Ingibjörg Lóa Birgisdóttir, móðir drengs
með flogaveiki. Reynslusaga
Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður
matvælasviðs Samtaka iðnaðarins
Allir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 2.500.
Frítt fyrir félagsmenn Berum ábyrgð á eigin heilsu
Sykur eða sætuefni?
Hvort er betra eða verra fyrir heilsuna?
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2, þriðjudaginn 15. mars 2016 kl. 19:30
Þórhallur Ingi
Halldórsson
Anna Sigríður
Ólafsdóttir
Birna G.
Ásbjörnsdóttir
Haraldur
Magnússon
Ragnheiður
Héðinsdóttir
Ingibjörg Lóa
Birgisdóttir
• Eru sætuefni hollari en sykur?
• Eru sætuefni í matvælum ofnæmisvaldar?
• Getur sykurneysla verið ávanabindandi
– líkt og fíkniefni?
• Ávaxtasykur – er hann hollur?
• Sætuefni eða sykur fyrir börnin ?
• Er hægt að treysta merkingum á umbúðum matvæla?
• Sætuduft – er það í lagi?
• Hvað getur komið í stað sykurs?
• Eru tengsl á milli sykurneyslu og sjúkdóma?
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands - 15. mars 2016
Valdís Lilja starfar sem kenn-
ari á daginn en spilar bandí
af miklum móð á kvöldin.
„Ég fékk áhugann í Menntaskól-
anum á Egilsstöðum. Við hittumst
alltaf einu sinni í viku og spiluðum í
einn og hálfan eða tvo tíma, til hálf
tólf á kvöldin. Ég man að mamma
var alltaf frekar pirruð yfir þessu því
ég var svo þreytt á eftir,“ segir Valdís
Lilja Andrésdóttir, fyrirliði kvenna-
liðs HK í bandí. Bandí er íþróttin
sem margir muna eftir úr skólaleik-
fimi í barnaskóla, þar sem keppst er
við að rekja kúlu með kylfu og skjóta
í mark andstæðinganna.
Valdís Lilja er þrítug og er kenn-
ari í Ísaksskóla á daginn. Hún hefur
æft bandí með HK síðan hún flutti
suður og var um tíma bæði að æfa
blak og bandí. Nú hefur hún ákveðið
að einbeita sér að bandíinu. „En ég
fæ að vera með á öldungamótum í
blakinu, ég kallast víst öldungur þar
eftir að ég varð þrítug.“
Hvað er svona skemmtilegt við
bandíið?
„Ég held að það sé snerpan, þetta
gerist allt svo hratt. Svo er ótrúlega
gaman að skora!“ segir Valdís sem
æfir tvisvar í viku með stelpunum
í HK og einu sinni til viðbótar með
félögum sínum. Á þeim æfingum er
sérstök áhersla lögð á sendingar og
skot.
Að sögn Valdísar eru 97 konur
skráðar í bandí hjá HK en yfirleitt
mæta um 15-20 á hverja æfingu.
Meðalaldurinn er um 25 ár. Hún
segir að allar áhugasamar konur geti
mætt og allur búnaður sé til staðar.
„Það er alltaf ákveðinn kjarni sem
heldur sér. Við höfum farið á mót á
Akureyri og Ólafsfirði en það er eng-
in kvennadeild. Við fórum líka einu
sinni út til Amsterdam og kepptum
á móti. Við enduðum mótið á því að
vinna tvo leiki og fórum því heim
með sigurbros. Við skulum ekkert
tala um hvernig gekk fram að því.“
Valdís segir að þó bandíið sé
skemmtilegt sé það hobbí. „Þetta er
hobbí-íþrótt, bumbubandí. Þetta er
auðvitað miklu skemmtilegra en að
hlaupa á hlaupabretti.“ | hdm
Hvað er bandí?
Sex leikmenn eru inni á
í hvoru lið, fimm útileik-
menn og markmaður.
Markmenn eru sérstaklega
útbúnir með brynjur og
hjálma, rétt eins og í ís-
hokkí. Völlurinn er svipað-
ur handboltavelli að stærð
og eru battar í kringum
völlinn. Mörkin eru sér-
hönnuð. Leikmenn kepp-
ast við að rekja kúlu með
kylfum og koma kúlunni í
mark andstæðinganna.
Ótrúlega gaman
að skora!
Valdís Lilja, fyrirliði kvennaliðs HK í bandí,
tilbúin í slaginn fyrir æfingu í vikunni.
Myndir | Hari