Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 84
Hvenær verður líkamlegt ástand
að sameiginlegri upplifun? Hvern-
ig tala hreyfingar til okkar? Í dans-
verkinu Kvika skoðar danshöf-
undurinn Katrín Gunnarsdóttir
líkamlega nærveru og orkuna sem
myndast á milli manneskjunnar
á sviðinu og áhorfandans. Fimm
dansarar stíga á svið þar sem ein
líkamleg uppbygging tekur við af
annarri. Sýnt í Þjóðleikhúsinu.
• Kvika er ekki bara dansverk
heldur líka banki. Kvika varð
til við samruna
MP-banka og
Straums. Þar
dansa 80
manns eftir
hálum gólf-
um fjármála-
lífsins. Merki
félagsins vekur
athygli; það er eins og stuðlarnir
gangi upp og niður í misgengi og
séu við það að hrynja. Kvika er
líklega eini banki veraldar með
hrun í merki sínu.
84 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
GOTT
UM
HELGINA
Fatahönnuðurinn Magnea Einars-
dóttir sýnir splunkunýja fatalínu á
HönnunarMars á laugardag.
Magnea heldur áfram að vinna
með íslenska ull og prjón en
mynstrin í línunni eru unnin í
samstarfi við Laufeyju Jónsdótt-
ur, fatahönnuð og teiknara. Þær
stöllur hafa skapað úr þeim inn-
setningu í rýminu þar sem herleg-
heitin verða frumsýnd.
Magnea hlaut í fyrra önnur verð-
laun hjá Grapevine sem „Fashion
design of the year“ fyrir samstarf
sitt við Club Monaco sem er undir-
merki Ralph Lauren. Frumsýning
línunnar fer fram á Dansverkstæð-
inu við Skúlagötu, klukkan 19.30.
Plötusnúðatvíeykið Kanilsnældur
sér um tónlistina.
Ný fatalína frá Magneu
„Að vinna verk með öðrum er eins og að vinna með
vinstri hendinni – maður hefur ekki fullkomna stjórn
á útkomunni,“ segir Jón Óskar myndlistarmaður um
September 2013, verk sitt og Bjarna Sigurbjörnssonar.
Myndlistarmennirnir opna sýningu um helgina sem
samanstendur af þessu eina viðamikla verki, sem Jón
Óskar lýsir sem einskonar veggfóðri. Enda er verkið
þrír metrar á hæð og 31 metri á breidd. Þeir Bjarni hafa
unnið reglulega saman í gegnum tíðina og segir Jón Ósk-
ar samstarfið lærdómsríkt fyrir þá báða. Verkið verður
sýnt í Galleríi Arkadíu í Hamraborg í Kópavogi og verður
sýningin opnuð á laugardag, klukkan 16. | sgþ
Gjörþaktir fletir
Verk Jóns Óskars og Bjarna þekur
nú veggi Gallerís Arkadíu.
Mynd | Hari
Hvernig var á
Mamma Mia?
Söngleikurinn Mamma Mia var frumsýndur í
Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.
Gríma,
12 ára
Óðinn Sastre,
12 ára
Vaka,
16 ára
Mér fannst geðveikt hvað það
var mikið stuð á sýningunni.
Dansarnir voru mjög flottir og
sérstaklega fannst mér lokaat-
riðið skemmtilegt.
Ég er ekki mikið fyrir ástarleik-
rit og það er rosalega mikil ást
í Mamma Mia. Ég myndi frekar
mæla með því að fara á Njálu,
allavega fyrir þá sem finnst
ástarlög leiðinleg.
Mér fannst mamman í Mamma
Mia (Hansa) standa upp úr,
hún lék og söng ekkert smá vel.
Mér fannst ótrúlega gaman á
sýningunni.
Raunveruleikaflótti frá skammdeginu er meginþema nýrrar fata-
og textíllínu hönnuðarins Tönju Levý. Línan ber nafnið Sýnódísk
Trópík og verður til sýnis á paradísareyjunni Eiðistorgi á Seltjarn-
arnesi um helgina. Hönnuðurinn segir línuna tileinkaða öllum
þeim Íslendingum sem hoppa í ísbúð og í baðfötum niður í Naut-
hólsvík þegar sólin skín. Jafnvel þó hiti sé við frostmark.
Trópíkölsk stemning á Eiðistorgi
Ný fatalína Tönju Levý
Módelið Baldur Björnsson í suðrænni
slökun Sýnódískrar Trópíkur.
Mynd | Magnús Andersen
Líkamleg orka í dansi
Hugvísindaþing Háskóla Íslands
hefst í dag. Dagskráin er þétt bæði
í dag og á morgun, laugardaginn
12. mars, en meðal þess sem verð-
ur reifað í sölum háskólans eru
loftslagsbreytingar, hinsegin saga,
líknardauði, ástin, víðáttur og
villidýr, samtímalist og tengsl nátt-
úru og trúar. Þingið sem er haldið
í tuttugasta sinn í ár fer fram í
aðalbyggingu Háskóla Íslands og
hægt er að nálgast dagskrána á fa-
cebook og heimasíðu HÍ.
Dauði og ást
í háskólanum
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI,
GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
ÞAÐ ERU
KRÓNUDAGAR
Gildir til
26. mars
Valdar SELESTE umgjarðir á aðeins 1 kr.
við kaup á glerjum!
Tveggja ára ábyrgð á umgjörðum
og frí gleraugnatrygging fylgir með.
1
kr.
1
kr.
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í - j ú l í & s e p t .
RÓM
17.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í
PARÍS
9.999 kr.f rá *