Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 24
Mynd |
NordicPhotos/GettyImages
Lykill er hluti af Lýsingu hf. I Ármúla 1 I 108 Reykjavík
I S. 540 1700 I lykill.is I lykill@lykill.is I
Lykill býður þér að leigja bíl í stað þess
að kaupa og lágmarka bæði kostnað
og áhættu við rekstur bílsins.
Innifalið í leigunni er þjónusta, viðhald,
dekk, tryggingar og bifreiðagjöld,
Þú velur bíl í samráði við okkur.
Leigusamningur getur verið
12–36 mánaða langur.
Leigugreiðslan er föst fjárhæð allan
leigutímann og því engin áhætta af
verðbólgu eða gengi krónunnar.
Lykilleiga
fyrir einstaklinga
Lykill leigir bílaflota til fyrirtækja með
tilheyrandi þjónustu og tekur svo við
honum aftur að leigutíma loknum.
Fyrirtækin njóta
stærðarhagkvæmni Lykils.
Þú finnur bíla sem henta þínum rekstri.
Lykill sér um kaup og
rekstur bílanna.
Leigugreiðslan er föst fjárhæð allan
leigutímann og því engin áhætta af
verðbólgu eða gengi krónunnar.
Flotaleiga
fyrir fyrirtæki
Leigulausnir Lykils
Kynntu þér möguleikana á
lykill.is/showroom/
Helena Albertsdóttir hefur
alltaf verið viðloðandi pólitík
þrátt fyrir að hafa tekið
ákvörðun um það á sínum
tíma að setja móðurhlut-
verkið í forgang. Helena ólst
upp í Sjálfstæðisflokknum og
tók virkan þátt í kosninga-
baráttu föður síns, Alberts
Guðmundssonar, á níunda
áratugnum. Hún hefur þó eytt
stærstum hluta ævi sinnar
í Tulsa, Oklahoma, þar sem
hún hefur verið formaður
og ritari kvennahreyfingar
Repúblikanaflokksins.
Hún hlakkar til að
ráðast í baráttuna fyrir
forsetakosningarnar og
vonast til að Trump hljóti til-
nefningu flokksins.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Trump er sigurstranglegastur
og mér líst ágætlega á hann,“
segir Helena Albertsdóttir, fram-
kvæmdastjóri S.Joe’s Construction
og virkur meðlimur í Repúblikana-
flokknum í sínum heimabæ, Tulsa,
Oklahoma. „Hann er umdeildur
og hefur lent í miklum árásum
en hann virðist standa þær allar
af sér. Það er verið að bera hans
baráttu saman við baráttu Reagans
og hvernig látið var við hann. Það
er mikill órói hér í Bandaríkjunum
og fólk treystir ekki Washington en
það virðist treysta Trump. Hann
virðist hafa ákveðið „street smart“
og ná vel til fólksins. Það er mjög
spennandi að sjá hvað kemur út úr
þessu.“
Trump er maður fólksins
vini mínum, Ásgeiri Hannesi,
fórum við að safna meira liði inn í
Heimdall og svo bara þróaðist þetta
með tímanum. En þegar maður á
svona mörg börn þá verður maður
að velja og hafna og ég valdi að
hugsa um krakkana.“
„Ég kom nokkrum sinnum heim
að vinna, tók þátt í kosningastarfi
Borgaraflokksins og í öðrum kosn-
ingum inn á milli en bjó nú samt
bara í nokkra mánuði á Íslandi,“
segir Helena sem varð ein umtal-
aðasta kona Reykjavíkur árið 1987,
þrátt fyrir skamma stund á land-
inu. Á þeim tíma var mikil valda-
barátta innan Sjálfstæðisflokksins
sem varð til þess að Albert Guð-
mundsson klauf hann og stofnaði
Borgaraflokkinn. Sigur Borgara-
flokksins var sögulegur að því leyti
að þetta var mesti þingstyrkur
klofningsframboðs í Íslandssög-
unni og flestir eru sammála um
að undraverður árangur flokksins
hafi ekki síst verið kosningastjórn
Helenu að þakka.
Fékk nóg af íslenskri pólitík
„Eftir Borgaraflokkinn ákvað ég
að koma ekki nálægt íslenskri
pólitík. Ég fékk nóg af henni en
það var ekki bara þess vegna sem
ég fór, það voru ýmis persónuleg
atvik sem komu upp svo ég ákvað
að þetta væri endirinn á Íslandi,“
segir Helena sem hefur fyrir löngu
skotið rótum í Tulsa og hyggst ekki
snúa aftur til Íslands. „Ég sakna
ákveðins fólks á Íslandi en ég hef
aldrei saknað þess að búa þar. For-
eldrar mínir bjuggu erlendis þegar
ég var að alast upp, á Ítalíu og í
Frakklandi. Þau fluttu svo heim
þegar ég var tíu ára, sem var ákveð-
ið kúltúrsjokk fyrir mig. Ég fór svo
í nám í Englandi svo ég hef aldrei
búið lengi á Íslandi.“
„Mér leist svo vel á Tulsa þegar
ég kom hingað fyrst fyrir 34 árum
að heimsækja vinkonu
mína. Ég ætlaði að
flytja til Flórída
en leist betur á
Tulsa því ég átti
fimm börn og
þetta leit út fyrir
að vera góður
staður til að ala
þau upp á. Hér
er ofsalega fallegt, þetta er kallað
„The Green Country“, hér er mikið
um músík og menningu og að vissu
leyti minnir borgin mig á London.
Fólk er mjög vinalegt og hjálpsamt
hérna enda er Oklahoma kallað
„The Friendly State“,“ segir Helena
sem hefur verið í byggingarbrans-
anum í mörg ár, fyrst með fyrrver-
andi eiginmanna sinum, Þorvarði
Mawby, en í dag rekur hún sitt
eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í
sölu og leigu á húsnæði auk þess að
starfa með dóttur sinni sem er lög-
fræðingur.
„Hér er ég með mitt líf og fyrir-
tæki og hér búa öll mín börn og
barnabörn,“ segir Helena sem lenti
í þeirri hryllilegu sorg að missa eitt
barnabarna sinna, Hinrik Kristján
Þórsson, í skotbardaga árið 2012.
Hinrik var aðeins 18 ára gamall
þegar hann var skotinn án minnsta
tilefnis fyrir utan bensínstöð í
Tulsa. Morðingi hans var dæmdur
í lífstíðarfangelsi og segir Helena
sár fjölskyldunnar vera að gróa,
hægt og rólega, þó aldrei sé hægt
að jafna sig almennilega á slíku
sjokki. „Morðinginn náðist fljótt,
sem betur fer. Þetta er stundum dá-
lítið erfitt ennþá, sérstaklega fyrir
litlu systur hans. En við verðum að
horfa fram á við og njóta minning-
anna sem við áttum með honum.“
Fer í vinnu fyrir Trump
Helena segist munu halda áfram
að fylgjast spennt með gangi mála
í bandarísku forsetakosningunum.
Framundan séu spennandi tímar
og hún hlakki til að vinna fyrir
Trump, nái hann kjöri. „Það er
auðvitað allt betra en Hillary,“
segir Helena. „Trump er maður
fólksins. Hann virðist vera heiðar-
legur, hann talar máli fólksins og er
tilbúinn að takast á við það. Hann
er ekki undir þumlinum á neinum,
hvorki fjárhagslega né á annan
hátt og þess vegna hefur hann
þetta mikla fylgi. Fólk treystir
því að hann geri það sem
hann er að segja. Þetta
verður gaman og vinni
hann verður næsta mál á
dagskrá að leggja drög að
baráttunni.“
Herforingi Hulduhersins
Helena hefur búið í Bandaríkjunum
í rúmlega þrjátíu ár og unnið reglu-
lega fyrir Repúblikanaflokkinn á
þeim tíma. Hún hefur alltaf verið
viðloðandi The Womens Republic-
ans, kvennahreyfingu flokksins,
var formaður þar í mörg ár auk
þess að vera ritari hreyfingarinnar í
tvö ár. Helena hefur þó ekki aðeins
skipt sér af bandarískri pólitík því
hún flutti heim til Íslands í nokkra
mánuði á níunda áratugnum, til að
taka þátt starfi Sjálfstæðisflokksins
og síðar í kosningabaráttu föður
síns, Alberts Guðmundssonar,
bæði innan flokksins og síðar
fyrir Borgaraflokkinn. Fyrir vikið
var Helena oft kölluð herforingi
Hulduhersins, sem var kosninga-
maskínan á bak við föður hennar.
Þegar Albert vann í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins árið 1985 þakkaði
hann dóttur sinni gott gengi sitt í
baráttunni.
Byrjaði ung í Heimdalli
„Ég hef alltaf haft áhuga á stjórn-
málum. Ég byrjaði ung í Heimdalli,
þegar ég var fjórtán ára. Og með
Helena Albertsdóttir segir Trump vera mann fólksins. Fólkið
treysti honum því hann sé ekki undir þumlinum á neinum.
Helena Albertsdóttir var þjóðþekkt
á níunda áratug síðustu aldar. Hún
stýrði kosningabaráttum fyrir föður
sinn, Albert Guðmundsson með
glæsibrag og hlaut fyrir vikið nafn-
bótina herforingi Hulduhersins.
Helena er dygg stuðningskona Donalds Trump
sem hún telur vera mann fólksins.„Hann er
umdeildur og hefur lent í miklum árásum en
hann virðist standa þær allar af sér."
24 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016