Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 10
Mynd | Hari
Fyrir tveimur árum hugð-
ist stofnandi Skema, Rakel
Sölvadóttir, fara í útrás með
fyrirtækið og opna fjögur
nútímaleg tæknisetur
víðsvegar um Bandaríkin.
Höfuðstöðvarnar áttu að
rísa í bakgarði Microsoft í
Redmond. Íslenskir starfs-
menn voru sendir út til að
breiða út boðskapinn. En
tæknisetrin opnuðu aldrei og
úr varð harkalegt deilumál.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Til stóð að Skema yrði kallað reKode
í Bandaríkjunum. Höfuðstöðvarn-
ar og fyrsta tæknisetrið stóð til að
opna í Redmond í Washington-fylki,
í frægum tæknibæ þar sem meðal
annars Microsoft og fleiri tæknirisar
halda til. Þá yrðu opnuð setur í Los
Angeles, San Fransisco, Las Vegas og
New York. Þegar áform Skema voru
kynnt í fjölmiðlum kom fram að sú
mikla athygli sem fyrirtækið hefði
hlotið, þrýsti á hraðari vöxt. Tækni-
setrin myndu öll opna á einu ári.
Skema er hugarfóstur Rakelar
Sölvadóttur tölvunarfræðings og var
stofnað eftir að hún hlaut verðlaun-
in „Fræ ársins 2011“. Síðan hefur
félagið kennt börnum þar sem for-
ritun er fléttuð saman við rannsókn-
ir í kennslufræði og sálfræði. Mörg
þúsund íslensk börn hafa fengið
kennslu hjá Skema í notkun á tölvu-
forritum, svo sem hinum gríðarlega
vinsæla leik Minecraft.
Lof og verðlaun
Rakel vakti mikla athygli fyrir
eldmóð sinn og sagðist vilja breyta
skólakerfinu, sem hún sjálf hafði
aldrei fundið sig í. Því væri þörf á
umbyltingu í kennsluaðferðum.
Skema óx á fyrstu tveimur árum og
hafði nokkra starfsmenn sem önn-
uðust kennslu og utanumhald. Ýmis
fyrirtæki fóru í samstarf við Skema
og starfsemin fór fram í húsakynn-
um Háskólans í Reykjavík. Rakel
hlaut viðurkenningar og verðlaun
fyrir störf sín. Hún var valinn ungi
frumkvöðull ársins að mati JCI. Hún
hlaut UT-verðlaun Ský árið 2014 og
hvatningarverðlaun Félags kvenna
í atvinnulífinu.
Nokkrum mánuðum fyrir opnun
fyrsta tæknisetursins var haldið
kynningarnámskeið á vegum fyrir-
tækisins í Bandaríkjunum og Rakel
sagði, í samtali við Fréttablaðið, við-
tökurnar afar góðar. Þá var greint
frá því að fyrirtækið hefði tekið hús-
næði á leigu og myndi opna fyrsta
tæknisetrið í byrjun árs 2014. „Við
erum að byggja upp næstu kynslóð
af nördatöffurum,“ sagði Rakel.
Til stóð að þær Ágústa Fanney
Snorradóttir og Sara Rut Ágústs-
dóttir, hjálpuðu til við að koma
fyrsta tæknisetrinu af stað og þær
myndu kenna börnum að hætti fyr-
irtækisins.
Átti að verða glæsilegt
Fyrsta tæknisetrið átti að rísa
í húsakynnum Think Space í Red-
mond en Rakel hafði samið við Peter
Chee, stofnanda fyrirtækisins, um
áformin. Think Space er atvinnu-
húsnæði fyrir frumkvöðla. Gera
þurfti umfangsmiklar breytingar á
húsnæðinu svo það stæðist kröfur
reKode. Rýmið átti að vera sérhann-
að fyrir börn, örvandi og litríkt. Inn-
anhússarkitektinn Hafsteinn Júlíus-
son hjá Haf Studio flaug til Redmond
til að endurhanna rýmið. Teikning-
arnar voru fjörlegar en til að fá hús-
næðinu breytt þurfti að sækja um
allskyns leyfi til borgaryfirvalda.
Einn af starfsmönnum Think Space
var ráðinn í verkefnastjórn fram-
kvæmdanna.
Seðlabankinn hindrunin
En ýmis ljón urðu á veginum. Þó
Skema hefði bæði stóran hóp við-
skiptavina, var ekki auðvelt að fara
með peninga úr landi til að stofna
nýtt fyrirtæki. Rakel sagðist hafa
ætlað að stofna reKode í Bandaríkj-
unum sem móðurfyrirtæki Skema
og ætlaði að lána peninga til útrásar-
innar á milli samsteypa. Það reynd-
ist þrautinni þyngra.
„Því miður gátum við ekki farið þá
leið sem við vonuðumst til.”
Í Viðskiptablaðinu sagðist hún
hafa þurft að ganga þyrnum stráða
slóð til að fá leyfi Seðlabankans til
að flytja fé út. „Það tók þrjá mánuði
að fá samþykki fyrir 75,6 dollurum
sem hlutafé, samþykki sem ég þurfti
til að sýna fram á eignarhlut til að
fá landvistarleyfi í Bandaríkjunum.
Seðlabankinn gerðist jafnvel svo
grófur að spyrja hvar ég hefði fengið
þessa dollara,“ sagði Rakel við Við-
skiptablaðið.
Framkvæmdir í tæknisetrinu
drógust á langinn og leyfi sem sótt
var um en voru ekki veitt. Brátt kom
upp ágreiningur á milli Peter Chee
og Rakelar. Chee vildi meina að
fyrirtækið skuldaði háar fjárhæðir
í húsaleigu og annan kostnað, svo
sem laun starfsmannsins sem vann
við framkvæmdirnar. Að endingu
vildi Rakel hætta við að opna setr-
ið í húsnæðinu. Úr varð heiftarleg
deila sem ekki enn sér fyrir endann
á. Rakel segist hafa gert upp mál fyr-
irtækisins.
Þá hófst leit að nýju húsnæði fyrir
tæknisetrið en eftir nokkurra mán-
aða vinnu var íslensku starfsmönn-
unum sagt upp. Ekkert tæknisetur
hafði opnað og engin starfsemi farin
af stað.
Fyrrum starfsmaður Think Space
sagist hafa beðið í tvo mánuði án
þess að fá laun. „Mér var sagt að
Reiði vegna útrásarævintýris Skema
reKode hefði ekki greitt launin mín
en Think Space var milliliður í ráðn-
ingu minni, og greiddi mér á end-
anum. Þetta var svo leiðinlegt að ég
að hætta að vinna þarna.“
Gekk á eftir laununum
Bandarískur maður sem réði sig í
verkefnastjórn fyrir íslenska útrásar-
fyrirtækið segir við Fréttatímann að
svo mánuðum skipti hafi hann ekki
fengið laun. Þau hafi verið greidd í
skömmtun og hann hafi hætt eftir
fimm mánaða starf. Hann fékk þó
launin sín á endanum. Hann segist
hinsvegar hafa leyft Rakel að skrá
síma hennar á hans nafn, en verið
skilinn eftir með himinháa síma-
reikninga sem honum hafi verið
lofað að fyrirtækið myndi greiða.
Hann segist hafa verið blekktur og
ekki hafi verið staðið við neitt. „Það
var óþolandi að eltast við yfirmann-
inn sem fór undan í flæmingi. Sér-
staklega þegar hann býr í stóru húsi,
er með garðyrkjumann að störfum,
ekur um á nýjum bíl.“
Rakel segir við Fréttatímann að
maðurinn hafi fengið það sem hann
átti inni. Hún kannast ekki við úti-
standandi símareikninga og fullyrðir
að hún hafi ekki viljað skrá símann
á nafn starfsmannsins. Fréttatíminn
hefur rætt við fleiri íslenska starfs-
menn sem komu að útrás Skema í
Redmond. Þeir skildu reiðir og ósátt-
ir við fyrirtækið. Einn þeirra starfaði
fyrir fyrirtækið í tvo mánuði og seg-
ist aldrei hafa fengið krónu greidda.
Né heldur hafi fyrirtækið tekið þátt í
kostnaði við Bandaríkjadvölina. Ekk-
ert varð því úr frekara samstarfi.
Rakel segir að útrásin hafi strand-
að á gjaldeyrishöftunum og því að
hún hafi ekki getað komið með fjár-
magn til Bandaríkjanna. „Auk þess
er þetta sprotafyrirtæki og það
breytist stöðugt.“
Rakel Sölvadóttir, stofnandi Skema, segir gjaldeyris-
höftin hafi orðið útrásinni að falli.
Ágústa Fanney og Sara
segja hafa fengið tilboð
um draumastöðu í nýju
tæknisetri Skema í Banda-
ríkjunum. Þegar þær fluttu
út var ekkert tæknisetur,
engin vinnuaðstaða, launin
komu seint og fríðindin
sem þeim var lofað komu
aldrei. Að endanum var
þeim sagt upp án þess að fá
nokkurn uppsagnarfrest
greiddan. Þær segjast sitja
uppi með milljóna skuld
eftir ævintýrið og hafa stefnt
Skema fyrir ítrekuð brot.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Ágústa Fanney Snorradóttir og
Sara Rut Ágústsdóttir hittu Rakel
Sölvadóttur í boði í Los Angeles
árið 2012. Þær voru báðar í námi
í borginni, Sara var að læra marg-
miðlunarhönnun og Ágústa Fann-
ey var í kvikmynda- og sjónvarps-
framleiðslu. Þær höfðu dvalið í Los
Angeles í eitt ár og voru staðráðn-
ar í að búa þar í framtíðinni. Þær
urðu því verulega áhugasamar
þegar Rakel sagði þeim að hún
stefndi á að opna fyrirtæki í borg-
inni. „Hún hygðist opna tækniset-
ur í Los Angeles. Þetta fannst mér
áhugavert og við ákváðum að vera
í sambandi síðar,“ segir Ágústa
Fanney.
Einu og hálfu ári síðar, þegar
þær voru útskrifaðar, fóru þær til
Íslands. Sara var með árs atvinnu-
leyfi í Bandaríkjunum og Ágústa
Fanney var komin með staðfest-
ingu á að hún fengi græna kortið.
Hugmyndir þeirra um framtíð í
borginni var því ekki lengur fjar-
lægur draumur og þær veltu at-
vinnumöguleikum fyrir sér.
Í ársbyrjun 2014 rákust þær á
umfjöllun í Fréttablaðinu um að
Rakel væri á leið í útrás með
Telja sig sviknar af Skema
Sara Rut Ágústsdóttir og Ágústa
Fanney Snorradóttir, nýút-
skrifaðar úr COC háskólanum í
Kaliforníu desember 2013.
15%
AFNÁM
TOLLA
VIÐ FÖGNUM
AFNÁMI
TOLLA
KRINGLAN GÆTIR ÞINNA
HAGSMUNA AF ÖLLU HJARTA!
Nánari upplýsingar um afnám tolla og þær vörur sem lækka í verði á kringlan.is
Dæmi um verðlækkun
í Levi’s,
gallaskyrta:
Dæmi um verðlækkun
í Next,
barnakjóll:
Dæmi um verðlækkun
í Neon, gallabuxur (Razor)
frá Reel Jeans:
Verð nú:
12.990 kr.
Verð nú:
1.490 kr.
Verð nú:
12.490 kr.Verð áður:14.990 kr.
Verð áður:
1.790 kr.
Verð áður:
14.990 kr.
K R I N G L U N N I
10 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016