Fréttatíminn - 18.03.2016, Page 76
76 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Fyrir ferminguna og önnur
hátíðleg tækifæri
– servíettur, dúkar, yfirdúkar og
kerti í miklu úrvali
24/7
RV.is
Sjáðu allt
úrvalið á
RV.is
Einar Pétur Jónsson settist að í Santiago í Chile fyrir þremur árum til að læra sjávarlíffræði. Á þeim tíma hefur hann lært að dansa, fylgjast með fót-
bolta og njóta þess að bíða á rauðu
ljósi. Hann saknar ekki skammdegis-
ins heima en þrátt fyrir að vera með
hafið í bakgarðinum eru íslensku
sundlaugarnar ofarlega í huga.
Ólíkt óþolinmæði Íslendinga á
rauðu ljósi þá er biðin eftir græna
ljósinu eitt það skemmtilegasta við
Chile, samkvæmt því sem Einar Pét-
ur Jónsson segir. „Á ýmsum götum
Santiago er ótrúlega hæfileikaríkt
fólk að leika listir sínar. Það hendir
boltum á milli, strengir víra á milli
staura, heldur jafnvægi á línu og leik-
ur ýmsar sirkuslistir. Það er frábært
að fylgjast með þessu, þetta er oftast
fátækt fólk sem hefur unnið hörðum
höndum að leggja þetta fyrir sig.“
Á daginn sinnir Einar náminu í
sjávarlíffræði en hann hefur alla tíð
verið hrifinn af dýrum á stærri skala.
„Ég hef leikið mér í sjónum alla ævi
og heillast af hafinu. Mér þótti því
gráupplagt að sækja um háskóla í
Chile, landi sem liggur þvert við
hafið, en ég hafði verið hér áður í
skiptinámi. Það er spennandi hversu
ótrúlega lítið er vitað um sjávarlíf-
ið, aðeins lítil prósenta hefur verið
rannsökuð. Það er stöðugt verið að
uppgötva eitthvað nýtt sem er hvetj-
andi fyrir námsmann í faginu.“
Einar segir lífið í Chile leika við
sig, náttúran er stórbrotin og hann
ver miklum tíma á ströndinni og að
ferðast um landið. „Fólkið hérna er
hlýtt og tekur vel á móti manni, ég
hef eignast litlar fjölskyldur víðsveg-
ar sem er voða gott svona fjarri Ís-
landi. Ég sakna svo sannarlega ekki
skammdegisins á Íslandi en sund-
laugarnar og heita pottinn þrái ég
alltaf.“
Dansinn og fótbolti er stór hluti af
menningu Chilebúa og hefur Einar
óhjákvæmilega lært þjóðdansinn
og fylgst með boltanum. „Á þjóðhá-
tíðardeginum, 18.september, dansa
allir þjóðdansinn úti á götum borgar-
innar og á ströndinni. Það er rífandi
stemning í kringum þennan dag,
mikið drukkið, grillað og skemmt
sér. Í fyrra átti sér stað jarðskjálfti
tveimur dögum áður og flóðbylgja
fylgdi í kjölfarið, en Chilebúarnir láta
ekkert stöðva sig í fjörinu. Dansinn
er ekki upp á marga fiska hjá mér en
ég reyni mitt besta.“ | sgk
Ég bið að heilsa
Eignast litlar
fjölskyldur í Chile
Einar Pétur Jónsson stundar nám í sjávarlíffræði í Chile. Hann hefur alla tíð
heillast af hafinu og þeim leyndardómum sem sjávarlífið hefur að geyma.
Ég sakna ekki
skammdegisins á
Íslandi en sund
laugarnar og heita
pottinn þrái ég alltaf.
Einkenni hvíta bjargvættsins
Hann er hvítur
Hann ólst upp í vestrænu ríki og dreymir um
að ferðast til framandi landa og láta gott af sér
leiða. Hann lætur til skara skríða á millibilsár-
um, árið eftir menntaskóla eða háskóla.
Afríka er land
Bjargvætturinn talar gjarnan um Afríku sem eitt
land en ekki heimsálfu 54 ólíkra ríkja.
Myndaglaður
Hann tekur „sjálfur“ af sér með börnum og
birtir á samfélagsmiðlum. Þessar sömu myndir
rata gjarnan í Tinder myndasafnið.
Stoppar stutt
Hann ferðast hálfan hnöttinn í sjálfboðastarf en
stoppar ekki mikið lengur en mánuð.
Tölum um hvíta bjargvættinn
Sjálfboðaliðinn sem ferðast til að víkka sjóndeildar-
hringinn en hjálpar engum nema sjálfum sér.
Hvíti bjargvætturinn er ungur ein-
staklingur sem ferðast til fátækra
ríkja í sjálfboðastarf. Hann vill vel
og ásetningur hans er góður, að
hjálpa þeim sem minna mega sín.
Hæfniskröfur bjargvættsins eru
þó af skornum skammti, hann er
ekki handlaginn né með nokkra
hjúkrunarþekkingu. Hans helsta
hlutverk er að veita börnum félags-
skap, elda mat og kenna tungumál.
Hann ofmetur hlutverk sitt stór-
lega, en það fer mikið púður í að
aðlagast aðstæðum. Ferð hans er
gjarnan hluti af stærri heimsreisu
og dvölin því stutt, nokkrar vikur
eða mánuðir. Þegar hann er rétt að
ná tökum á starfi og umhverfi er
hann farinn.
Bjargvætturinn hjálpar sjálfum
sér framar en öðrum. Hann hefur
opnað augun sín gagnvart fátækt
heimsins, er reynslunni ríkari og
þakklátur fyrir það sem hann á.
Hann tekur meira en hann gefur.
Það sem hvíti bjargvætturinn skilur
eftir sig er minningin ein um sjálf-
boðaliðann sem kom og fór, tók
störf af lókalnum, þáði húsaskjól og
uppihald. Hann ýtti undir staðalí-
myndir þróunarlanda með því birta
myndir af fátækt, munaðarlausum
börnum og vegsama eigin upplifun.
Að „bjarga heiminum“. | sgk
Vilt þú gerast
sjálfboðaliði?
Leitaðu uppi samtök
sem eru vel liðin á
meðal íbúa. Samtök
sem fjárfesta í fólkinu
og samfélaginu, og
stuðla að sjálfbærni
íbúa frekar en upp-
lifun sjálfboðaliðans.
Skildu eftir þig meira
en þú tekur með þér.
Kannaðu hvar þarf-
irnar liggja og hvernig
þú getur orðið að liði
án þess að taka störf
af fólkinu.
Hvíti bjargvætturinn talar gjarnan um Afríku
sem eitt land en ekki heimsálfu 54 ólíkra ríkja.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Tónleikahátíðin ATP verður sannkölluð hryll-
ingsveisla þetta árið. Þegar hefur verið tilkynnt
að snillingurinn á bak við Halloween-myndirn-
ar, John Carpenter, muni spila hrylling sinn á
hátíðinni, en nú hafa ítölsku tónskáldin Claudio
Simonetti og Fabio Frizzi bæst við. Simonetti er
best þekktur undir merkjum hljómsveitarinnar
Goblin og er ábyrgur fyrir köldum svita fjöl-
margra hryllingsmyndaaðdáenda. Goblin samdi
tónlistina fyrir flestar bíómyndir Dario Argento.
Þeirra þekktust er hryllingsmyndin Suspiria.
Það er allt að frétta af Zyan Malik sem
yfirgaf hljómsveitina One Direction svo
eftirminnilega. Á meðan þeir meðlimir
sem eftir eru í One Direction eru eru í
pásu hefur Zyan gefið út þrjá slagara,
Pillowtalk, It’s you og það nýjasta sem
kom út í vikunni Like I Would. Lagið
er um kærustu Zyan, ofurfyrirsætuna
Gigi Hadid, en þau opinberuðu sam-
band sitt fyrir ekki svo löngu.
Það er ekki bara tónlistaferillinn, kær-
astan og lagið sem er nýtt heldur bætti Zyan
við nýju húðflúri í safnið í vikunni. Húðflúrið ber áletrun-
ina „mom“ og skrifaði hann það á andlitið á sér.
Allt nýtt alltsaman
Zyan Malik blómstar eftir
aðskilnað við One Direction
Hrollur á ATP
Tónskáld hryllingsmyndanna ber
hæst á tónlistarhátíðinni í Keflavík
Költhryllingsmyndin Suspiria þykir
enn ein sú óhugnanlegasta.