Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 50
„Ég vil að fólk sjái
sannleikann… því án
upplýsinga, getur al-
menningur ekki tekið
upplýstar ákvarðanir.“
Chelsea Manning
BÓKIN SEM LAGÐI
GRUNNINN AÐ
5:2-LÍFSSTÍLNUM
2.
PRENTUN
KOMIN!
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
www.lyfogheilsa.is
25% afsláttur af Solaray
bætiefnum í mars.
Bætiefni sem næringarþerapistar mæla með.
TURMERIK - EIN Á DAG STEINEFNA
BLANDA
NAUÐSYNLEGAR
OLÍUR
MJÓLKURÞISTILL
OG DANDELION
Chelsea Manning heldur
áfram að berjast fyrir
tjáningarfrelsi úr fangelsi,
sex árum eftir að hún ljóstr-
aði upp um stríðsglæpi
Bandaríkjahers í Írak. Hún
hóf nýlega hormónameðferð
í fangelsi og skrifar pistla úr
fangelsinu um stöðu sína sem
transkona í karlafangelsi.
Á tíma lekans, sem kom Chelsea í
fangelsi, starfaði hún sem forritari
hersins í Bagdad. Hún var óham-
ingjusöm í hernum, var transkona
og gat ekki deilt þeirri vitneskju með
félögum sínum þar. Í gegnum starfið
komst Chelsea yfir skjöl og mynd-
skeið sem sönnuðu pyntingar Banda-
ríkjahers á fólki og morð þeirra á
saklausum borgurum. Hún ákvað
að bandaríska þjóðin ætti rétt á að
vita hvað herinn væri að gera, og lak
gögnunum til WikiLeaks.
Um mánuði síðar trúði hún hakk-
aranum Adrian Lamo fyrir að hún
væri ábyrg fyrir lekanum, tíu dög-
um síðar var hún handtekin og sett í
einangrun. Þrátt fyrir að mannrétt-
indasamtök krefðust þess að Mann-
ing yrði látin laus og fjölmargir hafi
hampað henni sem hetju fyrir að
upplýsa almenning, var hún dæmd
í 35 ára fangelsi.
Gagnalekinn kom hernum illa, og
oft hafa borist fréttir af illri meðferð
á Manning í fangelsi og að hún hafi
verið sett í óréttmæta einangrun.
Chelsea hefur barist fyrir að fá að
láta hár sitt vaxa og að verða flutt í
kvenfangelsi, en því hefur ætíð verið
hafnað.
Í haust var Chelsea sögð hafa brot-
ið reglur herfangelsisins með lestri
bannaðs efnis og misnotkun lyfja.
Lesefnið óæskilega var ævisaga Mal-
ölu Yousafzai og tímarit með trans-
konunni Caitlyn Jenner á forsíðunni.
Lyfið var túpa af útrunnu tannkremi.
Refsingin sem Chelsea mátti eiga
von á var um 30 dagar í einangrun.
100 þúsund manns skrifuðu und-
ir lista og kröfðust þess að Chelsea
slyppi við einangun. Í kjölfarið var
hætt við og í staðinn var Chelsea
meinaður aðgangur að bókasafni og
annarri tómstundaiðkun í 21 dag.
Margir héldu fram að kæran hafi
ekki snúist um útrunnið tannkrem
heldur verið tilraun til að þagga niðri
í Chelsea. Hún er virk á Twitter und-
ir nafninu @xychelsea auk þess sem
hún skrifar reglulega greinar fyrir
The Guardian. Greinarnar fjalla um
allt frá herglæpum Bandaríkjahers
til lífs hennar sem trans kona í fang-
elsi.
Rödd Chelsea heldur henni frá því
að gleymast almenningi. Í bréfi til
stuðningsmanna sinnar skrifaði hún:
„Ég er minnt á að ég er til fyrir fólki
utan þessara rimla.“ -sgþ
Okt.
2009
Nóv.
2009
Apríl
2010
21. maí
2010
29. maí
2010
Mars
2011
Ágúst
2013
Apríl
2014
Febrúar
2015
Mars
2015
Ágúst
2015
Okt. 2009
Manning er
send til Írak, þar
sem hún hefur
aðgang að leyni-
legum gögnum
Bandaríkjahers.
Chelsea Manning – hetja
eða landráðakona?
„How Chelsea sees herself“
– teikning eftir Aliciu Neal
unnin í samstarfi við Chelsea.
Á myndinni er Chelsea eins og
hún vildi vera, væri henni leyft
að láta hár sitt vaxa.
Nóv. 2009
Manning
hefur fyrst
samband við
WikiLeaks
21. maí 2010
Manning
trúir hakkaranum
Adrian Lamo fyrir
því að hún sé upp-
runi lekans. Lamo
hefur samband við
varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkj-
anna og vefsíðuna
Wired.com.
Mars 2011
Manning kærð
í 22 liðum,
meðal annars
fyrir landráð.
Apríl 2014
Bradley Manning
fær nafni sínu
löglega breytt í
Chelsea Eliza-
beth Manning.
Mars 2015
Chelsea skrifar
sinn fyrsta
pistil fyrir
Guardian úr
fangelsi.
Apríl 2010
WikiLeaks birtir
hluta gagnanna
frá Manning,
meðal annars
myndband úr
herþyrlu Banda-
ríkjahers, þar
sem óbreyttir
borgarar eru
skotnir niður.
29. maí 2010
Manning
handtekin í
Kúveit.
Ágúst 2013
Manning
sakfelld
fyrir njósnir, en
sýknuð af kæru
fyrir landráð.
Dæmd í 35 ára
fangelsi.
Febrúar 2015
Chelsea byrjar
hormónameð-
ferð í fangelsi.
Ágúst 2015
Chelsea sökuð
um brot á
reglum her-
fangelsisins og
hótað einangr-
unarvist. Brot
voru meðal
annarra sögð
„misnotkun
lyfja“ og „óleyfi-
legt lesefni“.
50 | FréttAtíMiNN | HELGin 18. MArs–20. MArs 2016