Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 6
Mynd | Hari Q U I C K R E F R E S H ™ Á K L Æ Ð I Rennilás gerir það afar einfalt er að taka QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Háþróað TEMPUR® efni Precision™ Micro gormar A F S L ÁT T U R 25% L O K AV I K A N! T E M P U R-D A G A R Við höfum endurskapað heilsudýnuna. Aftur. Rennilásinn er líklega það eina sem við endurhönnuðum ekki. NÝJA TEMPUR® Hybrid heilsudýnan Með því að sameina háþróaða TEMPUR® efnið og hina vönduðu Precision™ micro gorma aðlagar nýja TEMPUR® Hybrid heilsudýnan sig fullkomlega að líkama þínum og bregst við hreyfingum þínum þannig að þú upplifir réttan stuðning og hámarksþægindi. Til enn frekari þægindaauka er dýnan klædd QuickRefresh™ áklæði sem taka má af með rennilás og þvo. T E M P U R ® H Y B R I D H E I L S U DÝ N A N Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa! Gunnar Bergmann Jóns- son útgerðarmaður segir að það væri hættulegt fordæmi að leggja stærri veiðisvæði hrefnu undir griðasvæði fyrir hvala- skoðun. Ekki sé farið lengra út með ferðamennina en fjórar sjómílur en hval- veiðibátarnar fari yfirleitt lengra en tólf. Leiðir þeirra liggi því ekki saman. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Gunnar Bergmann Jónsson segir að Hvalaskoðunarsamtökin herji enda- laust á hvalveiðar og geri veiðarnar erfiðari og erfiðari. Hann segir umræðu um að banna hvalveiðar á Faxaflóa skaðlega og ranga, hvala- skoðun og hvalveiðar geti vel lifað í sátt og samlyndi. „Af hverju ekki að breyta Íslands- miðum í sædýrasafn og hætta hval- veiðum?“ segir hann. „Ég held að við hvalveiðimenn ættum ekki að gefa meira eftir, það væri hættulegt fordæmi.“ Hann segir að hvalveiðimenn hafi verið allt annað en sáttir þegar stór veiðisvæði á Faxaflóa voru skilgreind sem griðasvæði og lögð undir hvalaskoðun. „Hvalveiðar hófust löngu á undan hvalaskoðun og okkur fannst þetta ekki sann- gjarnt. Við þurftum að gefa eftir og hvað gerðist þá? Þeir færðu bara víglínuna. Núna vilja þeir alfarið losna við okkur,“ segir hann. Gunnar Bergmann Jónsson er viðskiptalögfræðingur og atvinnu- flugmaður að mennt. Hrefnu- veiðarnar voru sumarvinna með háskólanámi til að byrja með. Fyrir- tæki hans gerir út á hrefnu og pakk- ar henni og öðru fiskmeti og dreifir í verslanir og á veitingastaði. Hrefnu hefur fækkað á Faxaflóa og hún hefur smám saman verið að færa sig norðar í leit að æti. Gunnar Bergmann og fyrirtæki hans hafa þurft að flytja inn 5 til 10 tonn af hrefnu síðastliðin ár til að anna eftirspurn eftir kjötinu. Fréttatíminn hefur greint frá því að frá árinu 2007 hafi hrefnuveiðar á Faxaflóa að mestu verið stundað- ar af fyrirtækjum sem Gunnar Berg- mann Jónsson hefur verið í forsvari fyrir. Tvö þeirra, Hrefnuveiðimenn ehf og Hrafnreyður ehf, voru úr- skurðuð gjaldþrota á árunum 2012 og 2013, Kröfuhafar þurftu að af- skrifa 38 milljónir vegna gjaldþrots Hrefnuveiðimanna ehf og 35 millj- ónir vegna gjaldþrots Hrafnreyðar ehf, eða samtals 78 milljónir króna. Gunnar Bergmann segir að veiðarnar hafi verið erfiðar í byrjun og reksturinn gengið illa enda hafi tekið tíma að afla nýrra markaða fyrir kjötið. Í dag gangi þetta sóma- samlega en það sé enginn myljandi hagnaður. Útgerð Fyrsta hrefnan er komin í verslanir Rangt að breyta Faxaflóa í sædýrasafn Hrefnuveiðibáturinn Hrafnreyður landaði sinni fyrstu hrefnu á vertíð- inni á mánudag, átta metra löngu kvendýri og kjötið er komið í verslanir. Þetta er í fyrsta sinn í allmörg ár sem vertíðin hefst svona snemma. Svanur Kristjánsson segir að sex hafi sagt af sér vegna tengsla við aflandsfélög vegna uppljóstrana úr Panama-skjölunum. Þau mál fjalli um smáaura miðað við aflandsfélag fjölskyldu Dorritar Moussaieff. Þarna er líka um að ræða þjóðhöfð- ingjann sjálfan og fjölskyldu hans en hann sé aldrei þessu vant á hlaupum undan myndavélum. „Staða Ólafs Ragnars er ekki jafn sterk og ég gerði ráð fyrir,“ segir Svanur Kristjánsson prófessor og vísar í nýja könnun MMR þar sem rúm 52,6 prósent segjast styðja Ólaf Ragnar. Könnunin var hinsvegar gerð dagana 22. til 26. apríl, áður en þáttur Kastljóss um Panama-skjölin var sýndur á RÚV, þar sem greint var frá eignarhalds- félagi fjölskyldu forsetafrúarinnar í Panama. Það og aðferðafræðin þar sem óákveðnir eru spurðir hvort það sé líklegra að þeir kjósi Ólaf en einhvern annan, gerir það að verkum að Svanur telur að stuðningur við forsetann sé mun minni en gert var ráð fyrir. „Það er sérkennilegt að sjá forsetann á flótta undan mynda- vélum í þessu máli. Hann hefur ekki forðast þær hingað til,“ segir Svanur. „Það hafa sex sagt af sér vegna tengsla við aflandsfélög en þau mál fjalla um smáaura miðað við sjóð Dorritar. Þarna er líka um að ræða þjóðhöfðingjann sjálfan og fjölskyldu hans. Hann kemst varla upp með það lengi að svara engu.“ Hann segist telja að Ólafur Ragnar hafi haldið sig vera að segja satt um þetta aflandsfélag. „Dorrit flutti þó lögheimili sitt árið 2012, meðal annars vegna þess að hún ætti að sjá um rekstur fjölskyldufyrirtækisins, en samt segist hún ekki hafa hugmynd um málið. Þau verða að gera betur grein fyrir sínum fjármálum og því að forsetafrúin sé ekki með lögheimili hér og greiði enga skatta. Krafan er í raun sú að þau leggi upplýsingar um fjármál sín á borðið, nokkur ár aftur í tímann.“ Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti að hann sæktist eftir endurkjöri hafa margir frambjóðendur dregið sig í hlé. Enginn þó sem var raun- veruleg ógn við Ólaf Ragnar. Eftir stendur Andri Snær Magnason, sá sem er líklegastur til að veita honum samkeppni en fær 29,4 prósenta stuðning í könnuninni. Næst honum er Halla Tómasdóttir með 8,8 en aðrir frambjóðendur ná ekki 2 prósentum. | þká „Staða Ólafs er ekki jafn sterk og ég hélt“ Forsetakosningar Ný könnun MMR er gerð áður að fréttir komu um aflandsfélag Ólafur Ragnar Grímsson forseti Huldumaður sópaði til sín útskriftarverkum Mikla furðu vakti þegar huldumaður kom á út- skriftarsýningu nemenda í Listaháskóla Íslands í Hafnar- húsinu á dögunum og keypti hvert verkið á fætur öðru. Þar á meðal eina eintakið af glimmerbók um Britney Spears. Að sögn sjónarvotta vakti maðurinn furðu þar sem hann gekk um sýning- arsalinn og tók allnokkur verk með sér. Talið var líklegt að hann héldi að verkin væru ókeypis. Þegar nem- endur, sem sátu yfir sýningunni, útskýrðu fyrir manninum að hann mætti ekki taka með sér verkin úr salnum, fór hann rakleiðis að af- greiðsluborði verslunar safnsins og borgaði fyrir öll verkin. Meðal þess sem huldumaðurinn keypti var fánaaska, myndlistarverk eftir Hjálmar Guðmundsson, bókin Húsverk sem fjallar um hústónlist á Íslandi, og svo viðhafnarútgáfa og eina eintakið sem til er af glimmer- bók um Britney Spears. „Ég átti nú ekki von á að ókunnug manneskja keypti þetta verk,“ segir Gréta Þor- kelsdóttir, útskriftarnemi í graf- ískri hönnun. „Mér fannst kannski mamma vera líklegasti kaupandinn. Þetta kom því mjög á óvart.“ Glimmerbókin um Britney sam- anstendur af fjórum bókum um ólík æviskeið í lífi poppsöngkonunnar. Verkið kom út samhliða meistararit- gerðinni „Who you calling a bitch?“ | þt 6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.