Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 10
Formaður Framsóknar
hrökklaðist úr emb-
ætti forsætis ráðherra og
framkvæmdastjóri flokksins
hefur nú sagt af sér vegna
tengsla við aflandsfélög. Það
kemur þó engum á óvart að
Framsóknarflokkurinn þoli
illa að kastljósinu sé beint
að tengslum stjórnmála og
viðskiptalífs. Bæði þing-
flokkurinn og framkvæmda-
stjórnin reyndu þó að slá
skjaldborg um sína menn en
allt kom fyrir ekki.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Kastljós fjallaði á mánudag
um þrjá áhrifamenn í Fram-
sóknarflokknum, sem er að
finna í Panama-skjölunum
svonefndu.
Það eru þeir Finnur Ingólfs-
son, fyrrverandi seðlabankastjóri
og þingmaður og ráðherra Fram-
sóknarflokksins, Hrólfur Ölvisson,
sem nú hefur sagt af sér sem fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins,
og Helgi S. Guðmundsson, fyrrver-
andi formaður bankaráðs Seðla-
bankans.
Flokkurinn hjálpar sínum
Þremenningarnir gegndu allir ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Þeir hafa allir setið
í fjáröflunarnefnd flokksins, bæði í
gamni og alvöru. Í gamni vegna þess
að þeir voru eignalitlir menn sem
urðu milljónamæringar á skömm-
um tíma, en auð þeirra má að stofni
til rekja til tengslanna við Fram-
sóknarflokkinn og hinsvegar vegna
þess að þeir komu að fjáröflun fyrir
flokksstarfið um lengri eða skemmri
tíma.
„Helgi S. Guðmunds-
son er eitt besta nýlega
dæmið um það hvern-
ig stjórnmálaf lokkur
og flokkspólitísk tengsl
geta komið manni í mikl-
ar virðingarstöður í íslensku
samfélagi; manni sem fyrirfram
virðist ekki hafa bakgrunn til að
gegna slíkum störfum,“ segir Ingi
Freyr Vilhjálmsson blaðamaður.
„Helgi var dyggur framsóknar-
maður um áratugaskeið og náinn
viðskiptafélagi Finns Ingólfssonar.
Hann starfaði sem leigubílstjóri og
lögreglumaður í Keflavík og var síð-
ar starfsmaður Samvinnutrygginga
og Vátryggingafélags Íslands fram á
tíunda áratug síðustu aldar. Vegna
tengsla sinna við Framsóknarflokk-
inn settist hann í stjórn ríkisbank-
ans Landsbanka Íslands og varð for-
maður bankastjórnarinnar fram að
einkavæðingunni árið 2003.“
Helgi, sem lést fyrir þremur
árum, var því formaður bankaráðs
Landsbankans þegar S- hópurinn
keypti Búnaðarbankann við einka-
væðingu bankanna. Forystumenn
S-hópsins voru Ólafur Ólafsson, Þór-
ólfur Gíslason, Finnur Ingólfsson
og fleiri sem tengdust Framsóknar-
flokknum.
Lán frá KB banka
„Sama ár og S-hópurinn hreppti
Búnaðarbankann, eða árið 2003,
fékk Helgi S. 200 milljóna króna lán
hjá KB banka sem þá var búinn að
innlima Búnaðarbankann,“ segir Jó-
hann Hauksson blaðamaður. „Þetta
lán rann inn á félag Helga sem heitir
Vogás ehf. En hvað sem öðru líður er
ekki að sjá að KB hafi innheimt þetta
lán ef skoðaðar eru ársskýrslur. Ég
kann engar skýringar á því en fjár-
hæðin virðist hafa orðið eftir í fé-
lagi Helga og skuldin gufað upp
án þess að það sjáist merki um
að hún hafi verið greidd,“ segir Jó-
hann Hauksson í samtali við Frétta-
tímann.
Helgi var skipaður í bankaráð
Seðlabankans um vorið 2003 og sat
þar til ársins 2007 og var formaður
þess undir lokin. Samkvæmt upp-
ljóstrun Kastljóss stofnaði hann afla-
ndsfélag í Panama árið 2007 ásamt
Finni Ingólfssyni. Landsbankinn
stofnaði félagið fyrir þá að því er
virðist til þess að lána fyrir kaup-
um á bréfum í bankanum sjálfum.
„Þetta gæti bent til þess að menn
hafi verið að nota Helga og hans
góða orðspor til að halda uppi verði
á hlutabréfum í bankanum. Það er
auðvitað mjög miður,“ segir Jón Sig-
urðsson. „Málið ber auðvitað keim
af því að um markaðsmisnotkun
gæti verið að ræða en það er mjög
alvarlegt mál, eins og allir vita.“
„Helg i varð einnig fram-
kvæmdastjóri hjá heilsugæslunni
á höfuðborgarsvæðinu þegar heil-
brigðisráðuneytið heyrði undir
Framsóknarflokkinn,“ segir Ingi
Freyr. „Á þessum árum eftir einka-
væðingu bankanna var Helgi S. svo
sjálfur virkur á markaði sem fjárfest-
ir, samhliða störfum sínum í banka-
ráði Seðlabanka Íslands, og var
meðal annars viðskiptavinur einka-
bankaþjónustu Kaupþings. Helgi
varð virðingarmaður í samfélaginu
og þar að auki efnamaður vegna
„Helgi S. Guðmunds-
son varð virðingarmað-
ur innan samfélagsins
og þar að auki efnamað-
ur því hann valdi sér að
styðja og starfa innan
Framsóknarflokksins.
Flokkurinn gerði hann
að því sem hann var.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
„Þegar menn reiða
hátt til höggs, hittir
það stundum þá sjálfa
fyrir. Þetta er fullkomið
búmerang. Fram-
sóknarflokkurinn er
kolflæktur í kóngulóar-
vefnum miðjum.“
Steingrímur J. Sigfússon
„Þórólfur Gíslason er
rödd úr löngu liðnum
tíma. Hann lifir og
hrærist í pólitík eins og
hún var fyrir 60 árum.“
Jón Sigurðsson, fyrrverandi
formaður Framsóknarflokksins
4 400 400
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar
aðstoða þig við að finna réttu lausnina.
Þú færð landslagsráðgjöf
og garðlausnir hjá okkur
Graníthellur
Steypustöðin býður upp á mikið úrval af
fallegum hellum og mynstursteypu fyrir
heimili, garða, göngustíga og bílaplön.
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Skoðaðu úrvalið á
www.steypustodin.is
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
Smiðjuvegi
870 Vík
Sími 4 400 400
www.steypustodin.is
Stjórnmál Milljarðar og háar stöður á veisluborði Framsóknarflokksins
Bastarður stjórnmála og viðskiptalífs
þess að hann valdi sér að styðja og
starfa innan Framsóknarflokksins.
Flokkurinn gerði hann að því sem
hann var.“
Líffæri Finns Ingólfssonar
Þeir sem Fréttatíminn ræddi við
segja að Helgi S. hafi verið afar venju-
legur á yfirborðinu, þó mjög trúaður
og virkur innan KFUM hreyfingar-
innar. „Það var erfitt að þekkja Helga
og láta sér ekki þykja vænt um hann.
Hann var frekar hlýlegur karl,“ seg-
ir fyrrverandi áhrifamaður í Fram-
sóknarflokknum. „Ég held þó að
Helgi hafi verið mikilvægur hluti af
líffærakerfi Finns Ingólfssonar.“
Hann vill ekki láta nafns síns getið
en bætir við að Helgi hafi verið ákaf-
lega tryggur sínum og góður liðs-
maður, sjaldan tekið frumkvæði að
neinu. „Í eitt sinn man ég eftir því
að Staksteinar í Morgunblaðinu voru
að skrifa um að framsóknarmenn
væru orðnir valdamiklir í atvinnu-
lífinu á fremur háðslegan hátt enda
var verið að ýja að því að mörkin milli
stjórnmála og viðskipta væri orðin
óljós. Ég man að hann kom til mín
og sýndi mér þetta og var afar stoltur.
Hann virtist ekki skilja að þetta væri
almennt álitið til marks um spillingu
en taldi það fremur til marks um vel-
gengni.“
Tengsl Helga S. Guðmundssonar
við aflandsfélög, meðan hann var í
bankaráði Seðlabankans, eru afar
athyglisverð. Hitt er annað að hann
vann að fjáröflun Framsóknarflokks-
ins á sama tíma og hann var for-
maður bankaráðs Landsbankans en
hann sat í ráðinu frá 1995 og var for-
maður þess þegar bankinn var einka-
væddur. Það hlýtur að hafa verið
Finnur Ingólfsson hóf feril sinn sem aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar. Eftir feril í stjórnmálum sneri hann sér að viðskiptum og skildi eftir sig fjórtán milljarða króna gjaldþrot. Helgi S. Guðmundsson
var fyrrverandi lögreglumaður og tryggingasali sem átti eftir að verða stjórnarformaður Landsbankans og stjórnarformaður Seðlabankans. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri í Skagafirði er innmúraður
framsóknarmaður og guðfaðir skagfirska efnahagssvæðisins. Hrólfur Ölvisson tengdist tveimur aflandsfélögum og sagði af sér nýlega sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Framkvæmdastjórn
flokksins taldi þó ekki ástæðu til þess að hann færi og hvatti hann frekar til að vera áfram.
Myndir | Hari
10 | fréttatíminn | Helgin 29. apríl–1. maí 2016