Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 20
Greint var frá því nýlega
að nafn Shlomo og Alisu
Moussaieff, foreldra for-
setafrúarinnar Dorritar
Moussaieff, sé að finna í
Panama-skjölunum svo-
nefndu um aflandsfélög.
Það þarf kannski engan
að undra að Shlomo
Moussaieff hafi verið meðal
viðskiptavina panamísku
lögfræðistofunnar
alræmdu Mossack Fonseca.
Moussaieff, sem lést í
fyrra, var stórtækur skart-
gripasali, seldi olíufurstum
og Hollywood-stjörnum
demanta og djásn og var
um árabil einn allra ríkasti
maður Bretlands.
Vera Illugadóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
En Moussaieff var líka frægur fyrir
mikinn áhuga á fornmunum tengd-
um langri sögu gyðingdómsins og
átti hann eitt stærsta slíka safnið
í einkaeigu. Og suma munina er
hann sagður hafa eignast á nokkuð
vafasaman hátt.
Fjörutíu kistur af gulli og gim-
steinum
Moussaieff-fjölskyldan hefur
löngum stært sig af því að vera
gömul og gróin og hún hefur rakið
uppruna sinn langt aftur í ættir.
Shlomo Moussaieff mun hafa verið
skírður í höfuðið á afa sínum,
Shlomo Moussaieff eldri, sem
sagður er hafa flust frá Bukhara
í Mið-Asíu til Jerúsalem á síðasta
áratug nítjándu aldar.
Bukhara, sem nú er í Úsbekist-
an, er ævaforn menningarborg á
silkileiðinni milli Miðausturlanda
og Kína og þar eiga gyðingar sér
ríka sögu. Og það kveðst Moussa-
ieff-ættin líka gera. Sagan segir
að forfeður Moussaieffa hafi ofið
silkið í skikkju sjálfs Gengisar
Khans.
Og ættin mun hafa komið ár
sinni vel fyrir borð í Bukhara, sam-
kvæmt hinni opinberu ættarsögu,
meðal annars með verslun með
te og fasteignir, skartgripi og gim-
steina. Og þeirri iðju hélt ætt-
faðirinn, Shlomo Moussaieff eldri,
áfram í Jerúsalem en þangað flutti
hann 1888 og tók með sér konu
sína og börn, og einar fjörutíu
kistur af gulli og gimsteinum.
Shlomo eldri lést 1922 og skildi
eftir sig gríðarleg auðæfi. Synir
hans tóku við fjölskyldubissnessn-
um og einn sonurinn, Rehavia Mo-
ussieff, eignaðist svo sjálfur soninn
Shlomo árið 1925. Hann varð svo
faðir Dorritar.
Götustrákur í Jerúsalem
Fyrir fáeinum dögum var viðtal
við Ástþór Magnússon forseta-
frambjóðanda á útvarpsstöðinni
X-inu sem vakti heilmikla athygli.
Þar fullyrti Ástþór að sagan um
hina ævafornu og vel stæðu ætt
Moussaieff-anna væri tóm lygi og
vitnaði þar til bókarinnar Unholy
Business eftir Ninu Burleigh. Sam-
kvæmt henni hafi það í raun verið
Shlomo yngri, faðir Dorritar, sem
safnaði í fjölskylduauðinn með
heldur óprúttnum ráðum, en hann
hafi svo búið til fortíð ættarinnar
til að gera söguna virðulegri.
Skemmst er frá því að segja að
Unholy Business getur að þessu
leyti ekki talist ábyggileg heimild.
Ekki er óhugsandi að Moussaieff-
ættin kunni að hafa krítað eitthvað
liðugt um fortíð sína og ýkt fornan
auð sinn, en nægar skjalfestar
heimildir eru samt til um ættina
frá því á 19. öld til að ekki sé hægt
að taka undir þessar fullyrðingar
Ninu Burleigh.
En þar kemur líka fram að
Shlomo yngri hafi verið hálfgerður
götustrákur í Jerúsalem á sínum
æskuárum. Og þar er vissulega rétt
og var staðfest af fleiri heimild-
um, þar á meðal honum sjálfum.
Shlomo tolldi illa í skóla, enda var
hann að öllum líkindum lesblind-
ur. Svo illa gekk honum að á end-
anum gafst faðir hans upp og henti
honum út. Tólf ára gamall, enn
ólæs og óskrifandi, þurfti Shlomo
því að bjarga sér á eigin spýtur.
Hann fékk inni í sýnagógum eða
svaf á götum gömlu Jerúsalem.
Skipti við olíufursta og fræga
Þar eru fornminjar á hverju strái
og til að hafa í sig og á gramsaði
Shlomo hinn ungi á fornleifa-
svæðum, tíndi upp úr moldinni
gamla mynt og aðra smámuni sem
hann síðan seldi erlendum fræði-
og ferðamönnum. Þetta varð
upphafið að ævilöngum áhuga á
fornminjum. Hann var ekki alltaf
vandur að meðulum og lýsti því
til dæmis sjálfur, seinna meir,
hvernig hann laumaðist inn í fornt
grafhýsi og braut niður ævagamla
kistu sem þar var að finna, til þess
að geta síðar selt brot úr henni við
háu verði.
Shlomo var táningur þegar
Rótað í
grafhýsum
Tengdafaðir Ólafs Ragnars vílaði fátt fyrir sér
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
BJÓÐUM ALLA ALMENNA
DEKKJAÞJÓNUSTU
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900
www.arctictrucks.is
heimsstyrjöldin síðari braust út
og gekk þá til liðs við breska her-
inn. Á styrjaldarárunum ferðaðist
Shlomo með hernum um Austur-
lönd nær – fór til Egyptalands,
Jórdaníu og víðar. Hvar sem hann
kom notaði hann tækifærið og
þefaði upp forna muni – gramsaði
á geymsluloftum sýnagóga í Kaíró
og Amman og hafði með sér þaðan
rykfallin handrit, myntir og inn-
sigli. Þessu smyglaði hann svo
burt til að geta selt og grætt á því
sjálfur.
Eftir styrjöldina og sjálfstæðis-
stríð Ísraels 1948 hafði Shlomo Mo-
ussaieff sæst við föður sinn og gat
tekið við blómstrandi fjölskyldu-
bissnessnum. Árið 1963 flutti hann
svo til Lundúna þar sem hann kom
á fót eigin verslun. Hans helstu
kúnnar voru arabískir olíufurst-
ar með fulla vasa fjár, og til hans
komu líka kvikmyndastjörnur
á borð við Elizabeth Taylor og
önnur frægðarmenni.
Shlomo eldri var rabbíni auk þess að vera
kaupahéðinn. Ekki fer miklum sögum af trú-
areldmóði hjá Shlomo yngri, föður Dorritar,
en stundum kviknaði þó í honum trúar-
neisti. Hann leit til dæmis svo á að Ólafur
Ragnar og Dorrit væru ekki sannlega gift úr
því Ólafur hefði ekki tekið gyðingatrú.
Dorrit Moussaieff og Ólafur
Ragnar Grímsson forseti.
Shlomo eldri lést
1922 og skildi eftir
sig gríðarleg auð-
æfi. Synir hans tóku
við fjölskyldubiss-
nessnum og einn
sonurinn, Rehavia
Moussieff, eignaðist
svo sjálfur soninn
Shlomo árið 1925.
Hann varð svo faðir
Dorritar.
20 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016