Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 30
Myndir | Alda Lóa
Kjartan og Hafdís hafa verið
saman í þrjú ár, flutt á milli
leiguíbúða, eignast stúlkuna
sína Kötlu Maríu og klárað
háskólanám. Hafdís í fjarnámi
til þess að geta verið heima
með Kötlu og Kjartan hefur
unnið fyrir fjölskyldunni enda
nauðsynlegt af því að Hafdís
hefur verið tekjulaus síðan um
áramót.
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Bar Ellefu
„Við vorum með matarboð um
daginn og þá kom í ljós að öll þrjú
pörin í boðinu kynntust á skemmti-
staðnum Bar Ellefu,“ segir Hafdís.
En þau Kjartan hittust fyrst í mars
2013, reyndar úti á stétt fyrir framan
Ellefuna. Það bar þannig til að Hafdís
reiddist við mann sem var með dóna-
skap og kvenfyrirlitningu fyrir utan
skemmtistaðinn og þegar hún leit
upp frá þeim orðaskiptum sem hún
átti við dónann sá hún Kjartan og vin
hans standa þarna álengdar og æpti
hún til þeirra: „Eru þið allir svona
miklir fávitar?“ Þannig voru nú fyrstu
kynni þeirra Hafdísar Arnardóttur,
sem er fædd 87 og Kjartans Rich-
ters,́ 86 módel, og fluttu þau saman
inn í litla risíbúð í Þingholtunum
hálfu ári síðar.
Fann Kjartan aftur á feisbúkk
„Feisbúkk, við „ödduðum“ hvort öðru
á feisbúkk. Ég fór inn á feisbúkk hjá
stjúpbróður mínum til þess að finna
hann. Ég náði því þarna um kvöldið
að Kjartan væri frá Breiðvanginum í
Hafnarfirði þar sem pabbi minn bjó og
ég dvaldi aðra hvora helgi öll æsku-
árin. Kjartan þekkti stjúpbróðir minn
og við höfðum leikið okkur á sömu
slóðum í Hafnarfirði en þarna hitt-
umst við í fyrsta sinn, hann orðin 25
ára og ég 24 ára.“
Verkstjóri og munkurinn Oddur
Þegar þau kynntust var Hafdís á
Hólum í ferðamálafræði og Kjartan
á síðustu metrunum í sagnfræði við
HÍ. Í dag eru þau bæði að klára BA
ritgerðirnar sínar. Kjartan sinnir hins-
vegar fullu starfi sínu sem verkstjóri
hjá Samskip og hefur ritgerðin setið
á hakanum en ritgerðarefnið er ís-
Elta íslenska drauminn
þrátt fyrir þröngan fjárhag
Týnda kynslóðin Ungt fólk hefur
dregist efnahagslega aftur úr öðrum
aldurshópum. Það hefur lægri laun
og fær minni stuðning en fyrri kyn-
slóðir. Margt ungt fólk reynir að lifa
íslenska drauminn; vinnur mikið og
skuldar mikið í von um að þetta redd-
ist. Fréttatíminn mun fjalla um týndu
kynslóðina á næstu vikum.
Hafdís hefur verið heima
með Kötlu Maríu, sem
verður tveggja ára í haust,
og kláraði fjarnám, bæði
viðburðastjórnun og
ferðamálafræði.
30 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016