Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 26
Mynd | Hari Magga Stína hefur verið á leigumarkaði síðan í janúar 2011 og hefur á þeim tíma þurft að flytja fjórum sinnum með börnin sín þrjú Magga Stína hefur undanfarin fimm ár kynnst lögmálum leigu- markaðarins á eigin skinni. Eftir skilnað árið 2011 flutti hún með börnin sín þrjú úr íbúð sem hún átti í leiguíbúð. „Þá fórum við af Fálkagötu í Vesturbænum yfir í Grafarvoginn. Ég var ljónheppin að þurfa ekki að greiða háar fjárhæðir í tryggingu og fyrirframgreiðslur og við fengum leiguhúsnæði í gegnum kunningskap. En þessu fylgdi að ég þurfti að fá mér bíl, því ég vinn miðsvæðis í Reykjavík og krakkarnir héldu áfram að ganga í skóla í Vesturbænum. Eina íbúðin sem völ var á í mínum aðstæðum var í Grafarvoginum svo ég stökk á hana. Ég hélt kannski að það væri hagkvæmara að búa þar og keyra á milli, en annað kom á daginn.” Hún segir bensínkostnað og dýran rekstur bílsins hafa gert það að verkum á endanum ákvað hún að reyna að komast aftur í Vest- urbæinn. „Þá tók við langt milli- bilsástand þar sem við vorum upp á vinargreiða komin, í húsnæði í Kópavogi. Þaðan fórum við í aðra bráðabirgðaíbúð í Vesturbæ þar til við loks fundum íbúðina sem við leigjum í dag.“ Magga Stína hafði verið á leigu- markaði á sínum yngri árum en fann fyrir verulegri breytingu þegar hún fór aftur á að leigja, ein- stæð með þrjú börn. „Sem ung manneskja hafði ég auðvitað verið svona á randinu og flutt oft á milli staða. Nú er andrúmsloftið annað. Það eina sem maður veit, sem einstæð móðir, er að maður ræður ekki við íbúðaverð í Reykjavík nema vinna margfalda vinnu. Þá rétt skrimtir maður, því íbúðaverðið er orðið svo hátt hlutfall af þeim tekjum sem maður aflar. Í dag kostar að minnsta kosti 200 þúsund krónur á mánuði, fyrir utan rafmagn og hita, að leigja íbúð fyrir fjölskyldu af minni stærðargráðu. Listamenn geta varla framfleytt sér á Íslandi og sem ein af þeim, lifi ég bara frá degi til dags. Hugsanlega bara á lyginni.“ Hún segir stöðu sína á leigu- markaði allt aðra en þegar hún var í eigin húsnæði. „Öryggistilfinn- ingin hverfur því sem leigjandi er maður alltaf háður því af hverskon- ar fólki maður leigir. Hvort maður haldi íbúðinni og hversu lengi það varir. Svo eru aðrir hlutir. Ef þitt eigið mat, til dæmis á því hvað sé ásættanlegt ástand íbúðar, fer ekki saman við mat leigusalans, er það alltaf á hans valdi að ákveða hvort hann bregðist við athugasemdum frá þér.“ |þt Óvissan og óöryggið verst Gildismat leigusalans ræður Fálkagata ▷ Bakkastaðir ▷ Kársnesbraut ▷ Ægisíða ▷ Hagamelur Magga Stína segir leigusalann alltaf ráða því hvað sé ásættanlegt ástand íbúðarinnar. 180 160 140 120 100 80 2011 2015 Stúdíó 35fm 3. herb. 65fm 2. herb. 50fm 4. herb. 90fm B 31% B 24% B 22% B 23% Meðalverð íbúða í 101. Heimild: ÞJóðskrá Íslands. Leiguverð hækkar langt umfram verðlagLeiguverð hefur hækkað jafnt og þétt á undanförnum árum vegna fjölgunar leigjenda og aukningar á útleigu til ferðamanna. Síð- ustu fimm ár hefur meðalverð 35 fermetra stúdíóíbúðar í 101 Reykjavík hækkað um 25 þús- und krónur umfram verðlag, ef miðað er við meðaltal þinglýstra leigusamninga, eða um 31 pró- sent. Þessi hækkun skerðir beint ráðstöfunarfé leigjendanna. Til að vinna það upp þarf leigjand- inn að auka tekjur sínar um 50 þúsund krónur á mánuði. Meðalverð 50 fermetra tveggja herbergja íbúðar hefur hækkað úr 99 þúsund krónum í 123 þúsund krónur, um 24 þúsund krónur eða 24 prósent. Þriggja herbergja íbúð, 65 fer- metra, hefur hækkað um nánast sömu upphæð, eða um 26 þús- und krónur. 2011 var leiguverðið um 116 þúsund krónur en var orðið 141 þúsund krónur 2015. Meðalverð 90 fermetra, fjögurra herbergja íbúðar var 2011 um 137 þúsund krónur á núvirði en var komið í 168 þúsund krónur 2015. Hækkunin nemur 23 prósentum umfram verðlag, eða 31 þúsund krónum. |gse krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma@krumma.is PICK&MIX Þú velur sjálf/ur hvaða liti þú vilt í þinn poka 50% afsláttur af PLUSPLUS PICK&MIX barnum á laugardögum PLUSPLUS kubbana fáið þið í verslun við Gylfaflöt Ábyrgðaryfirlýsing: Samkvæmt ábyrgðarskilmálum prentaraframleiðenda og alþjóðalögum fellur ábyrgð prentara ekki úr gildi við notkun endurnýttra eða samhæfðra prenthylkja nema rekja megi bilun til notkunar á þeim hylkjum. Bili tæki eða eyðileggjast sem rekja má til notkunar samheita prenthylkja frá Prentvörum munum við bæta þau tæki, séu þau enn í ábyrgð. Prentvörur Skútuvogi 11, prentvorur.is, s. 553-4000 PGI-570XL & CLI-571XL hágæða og margvottað samheitablek fyrir Canon prentara. Þú borgar einfaldlega minna fyrir sömu gæði. Prentvörur kynna með stolti Í fyrsta sinn á Íslandi Hágæða samheitablekhylki fyrir prentara Verð frá: 1390 KR 26 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.