Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 14
skagfirska efnahagssvæðisins: „Hann lifir og hrærist í pólitik eins og hún var fyrir 60 árum. Hann sér allt í hópum valdamanna innan flokkanna sem takast á um gæðin, ríkisfyrirtæk- in og fyrirgreiðslu. Hann var framan af mjög duglegur og samviskusamur stjórnandi og hlóð duglega undir þau fyrirtæki sem hann var í forsvari fyr- ir, fremur en sjálfan sig. Hitt er annað mál, að hann sleppir engu sem hann krækir í.“ Jón Sigurðsson segir að Þórólfur haft gríðarlega sterk tök á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Hann hafi haft Gunnar Braga Sveinsson í vasanum, enda var hann fyrrverandi starfs- maður hans hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga og harður andstæðingur ESB, eins og Þórólfur sjálfur. Hann hafi hinsvegar reiðst honum ákaflega vegna stuðningsins við Úkraínu og viðskiptabanns Rússa enda miklir hagsmunir undir í sjávarútvegi, þar sem Kaupfélag Skagfirðinga og Þór- ólfur eiga mikið undir. Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra Framsóknar- flokksins um skamma hríð, fékk að kenna á Þórólfi Gíslasyni í desember 2006 þegar sá síðarnefndi beit það í sig að verða stjórnarformaður Íbúðal- ánasjóðs. Sagt er að andstaða Magn- úsar, sem er ekki orðlagður skapmað- ur, hafi valdið því að tveir menn hafi bókstaflega teppt símann á heimili hans öll jólin, en það voru Þórólfur sjálfur og Helgi S. Guðmundsson. „Þórólfur hefur auðgast vegna starfs síns sem kaupfélagsstjóri, meðal annars með því að eiga sjálfur í hlutabréfaviðskiptum með fyrirtæki sem kaupfélagið hefur keypt,“ segir Ingi Freyr Vilhjálmsson. „Þannig tók Þórólfur meðal annars 155 milljóna króna arð út úr eignarhaldsfélagi sínu Háuhlíð 2 ehf. sem stundað hafði viðskipti með hlutabréf í Fisk- iðjunni Skagstrendingi sem FISK Seafood, dótturfélag kaupfélagsins, keypti síðar. Kaupfélag Skagfirðinga hefur svo sjálft hagnast á tengslum sínum við Framsóknarflokkinn, meðal annars árið 2002 þegar fyrir- tæki sem var sameiginlega í eigu þess og Skinneyjar-Þinganess, fjölskyldu- fyrirtækis Halldórs Ásgrímssonar, keypti hlutarbréfa ríkisins í VÍS af Landsbankanum árið 2002 og hagn- aðist um nokkra milljarða króna.“ Margir urðu milljónamæringar Jóhann Hauksson bendir á að hér sé hefð fyrir samtryggingu í stjórn- málum og viðskiptum á forræði til- tekinna flokka og valdahópa: „Auð- velt er að nefna helmingaskiptareglu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins. Hún snerist í fyrstu um skiptingu fjárhagslegs ávinnings dyggra flokksmanna af veru banda- ríska setuliðsins á Keflavíkurflugvelli. Um hálfri öld síðar gætti hennar enn þegar Landsbankinn og Búnaðar- bankinn voru einkavæddir árin 2002 og 2003. Forystumenn þessara tveggja flokka hlutuðust með beinum hætti til um að þóknanlegir menn fengju að kaupa bankana.“ Margir valdamiklir auðmenn og hirðmenn þeirra hafa verið orðaðir við Framsóknarflokkinn, allir þeir sem teljast til S-hópsins, sem keypti Búnaðarbankann, svo sem Sigurð- ur Einarsson, Ólafur Ólafsson, auk þeirra sem áður eru nefndir. Pálmi Haraldsson í Fons er spyrtur saman við flokkinn en það mun hafa verið Matthías Imsland, fyrrverandi að- stoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Eyglóar Harðar- dóttur, sem kom á þeim tengslum. Matthías var í forystu fyrir ungliða í f lokknum þegar hann réðist til Pálma, fyrst sem starfsmaður Fons og síðan framkvæmdastjóri Iceland Express. Þá er ónefndur Björn Ingi Hrafnsson sem fór fyrst úr blaða- mennsku í stjórnmálaþátttöku í Framsóknarflokknum en þaðan í viðskipti. „Það voru margir spíralar í gangi í viðskiptalífinu fram að 2008, eins og til dæmis Sterling fléttan,“ segir Jón Sigurðsson, fyrrverandi formað- ur Framsóknarflokksins. Þeir sem tengdust réttu mönnunum soguðust inn í hvirfilbylinn og margir gerend- ur í viðskiptum voru á vappi í kring- um Framsóknarflokkinn. „Menn gátu vissulega orðið milljónamær- ingar á þessum árum, en langflestir misstu allt sitt í hruninu. Meira að segja Finnur Ingólfsson, hann á lítið eftir nema hestabúgarð á Ólafsvöll- um á Skeiðum.“ Uppljóstranir úr Panama-skjölun- um hafa varpað nýju ljósi á flokkinn og valdið titringi þar innandyra eins og víðar: „Menn bíða með öndina í hálsinum eftir því hvort það komi eitthvað úr kafinu varðandi sjáv- arútvegsfyrirtækin og tiltekna ein- staklinga,“ segir Jón Sigurðsson. „Það gæti komið báðum stjórnarflokkun- um afar illa. Þetta er auðvitað ríkis- stjórnin sem felldi niður auðlegðar- skatinn og veiðigjöldin, það verður ekki frá þeim tekið.“ „Menn gátu vissu- lega orðið milljóna- mæringar á þessum árum, en langflestir misstu allt sitt í hrun- inu. Meira að segja Finnur Ingólfsson, hann á lítið eftir nema hestabúgarð á Ólafs- völlum á Skeiðum.“ Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Módel: Hrönn Johannsen Gleraugu: Dior Mikið hefur verið skrifað og skrafað um tengsl forkólfa Framsóknarflokksins við umdeild viðskiptaævintýri. Það sem kom upp úr Panama-skjölunum setur flokkinn í enn óþægilegra ljós. Flokksforystan reynir þó enn að berja höfðinu við steininn. 14 | fréttatíminn | Helgin 29. apríl–1. maí 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.