Fréttatíminn - 29.04.2016, Side 12
ankannaleg staða fyrir forstjóra
fyrirtækja sem áttu allt sitt undir
bankanum að stjórnarformaður
bankans, birtist endrum og sinnum
í þeim erindagjörðum að biðja um
peninga fyrir Framsóknarflokkinn.
Þetta var fullkomið búmerang.
Hrólf ur Ölvis son, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, teng ist
tveim ur afl ands fé lög um sam kvæmt
Panama-skjöl un um,
eins og fjallað var um í
Kastljósi á mánudag.
Ann ars veg ar fé lag-
inu Chamile Mar ket-
ing skráðu á Bresku
Jóm frúareyj um og hins
veg ar Selco Fin ance sem stofnað var
í Panama. Bæði fé lög in voru stofnuð
árið 2003. Jón Sigurðsson segist telja
að Hrólfur hafi einungis verið leppur
fyrir aðra og valdameiri menn í þessu
braski. „Ég held að hann sé enginn
sérstakur hrappur eða klækjarefur,
en þetta lítur svo sannarlega ekki vel
út,“ segir Jón.
Árið 2003 var Hrólfur einn þriggja
eig enda félags ins Eld berg ehf. í gegn-
um annað félag, Jarð efna iðnað ehf.
Rekstur fyr ir tækj anna snérist um að
safna og flytja út vikur efni. Tortóla-
félagið var notað til að fara á svig við
skattalögin og fela fjárfestingu ís-
lensku félag anna t veggja í danska
félag inu Scancore ApS. Það var gert
með því að Eld berg lán að i fé lag inu
12 millj ónir króna vaxta laust til að
kaupa hlut í Scancore. Í lána samn-
ingi milli Eld bergs og Chamile Mar-
ket ing vegna fjár fest ing ar inn ar segir
að til gangur láns ins sé „að tryggja að
nafn Eld bergs eða móð ur fé lags þess
verði ekki skráð í tengslum við fjár-
fest ingar Chamile Mar ket ing.“
Aumingja stelpan hún Vigdís
Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-
ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttur, fékk það óþvegið frá
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,
þáverandi forsætisráðherra og for-
manni Framsóknarflokksins og
Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni
Framsóknarflokksins, vegna Víg-
lundarmálsins svokallaða. Þau
héldu því fram að tilteknir menn í
viðskiptalífinu hefðu verið knésett-
ir í bönkunum eftir hrun svo hræ-
gammasjóðir gætu komist yfir eignir
þeirra.
Í Kastljósi var ennfremur fjallað
um að Hrólfur Ölvisson hefði verið
á bak við kaupin á BM Vallá en árið
2012 keypti hann í félagi við aðra
fjár festa hlut Arion banka í BM Vallá
sem síðan var sam einað Björgun og
Sem ents verk smiðj unni.
„Það er pínlegt í ljósi þess hvað
þingmaðurinn gekk hart fram í mál-
inu að það skyldi síðan vera Hrólfur
Ölvisson, framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins, sem var á bak við
Kaupin á BM Vallá,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon.
Hrólfur segir við Kastljós að hann
hafi gert formanninum, Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, grein fyrir
tengslunum. „Ég átta mig ekki á
þessari ósvífni, þeir hafa kannski
treyst því að það þetta kæmist ekki
upp,“ segir Steingrímur. „þegar
menn reiða hátt til höggs hittir það
stundum þá sjálfa fyrir. Þetta er
fullkomið búmerang. Framsóknar-
flokkurinn er kolflæktur í kónguló-
arvefnum miðjum. Þau hefðu átt að
líta sér nær.“
„Aumingja stelpan hún Vigdís.
Þetta mál er auðvitað kjaftshögg fyr-
ir hana og líka hræðilega neyðarlegt
fyrir Sigmund Davíð,“ segir Jón Sig-
urðsson. „En ég býst við að þau verði
í afneitun eitthvað fram á sumarið.“
„Þessa ákvörðun tek ég í ljósi þess
hversu einsleit og óvægin umræðan
er. Þetta er persónuleg ákvörðun
mín og á engan hátt viðurkenning
á því að ég hafi brotið lög eða starf-
að með óheiðarlegum hætti,“ sagði
Hrólfur Ölvisson í yfirlýsingu þegar
hann sagði af sér. Undir þetta tek-
ur í raun framkvæmdastjórnin en í
samtali við RÚV segir Sigurður Ingi
Jóhannsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, að framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins hafi
Sala hlutabréfa Landsbankans í Vís 2002 og sala Búnaðarbankans
til S-hópsins 2003 eru afar umdeildar vegna pólitískra afskipta.
ekki talið ástæðu til þess að fram-
kvæmdastjóri flokksins segði af sér
vegna tengsla sinna við aflandsfélög.
Finnið Finn
Af þremenningunum hefur Finnur
Ingólfsson verið umsvifamestur,
umdeildastur og mest um
hann fjallað enda skildi
hann eftir sig fjórtán
milljarða króna skuldir
þegar eignarhaldsfélag
hans Langflug fór í þrot.
Af öllum þeim auðmönn-
um sem voru sagðir hafa sterk tengsl
við Framsóknarflokkinn, voru tengsl
hans við flokkinn einna mest enda
var hann fyrrverandi stjórnmála-
maður og náinn vinur Halldórs Ás-
grímssonar, formanns flokksins til
2006.
Finnur hóf feril sinn í stjórnmál-
um árið 1983 sem aðstoðarmaður
Halldórs Ásgrímssonar sem þá var
sjávarútvegsráðherra. Hann var kjör-
inn á þing 1991 og sat þar til 1999.
Hann varð iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra 1995 en hvarf úr því emb-
ætti til Seðlabankans, en þar gegndi
hann stöðu seðlabankastjóra þar til
hann tók við stöðu forstjóra trygg-
ingafélagsins VÍS, fyrir atbeina Ólafs
Ólafssonar í Samskipum sem er sagð-
ur hafa beitt sér fyrir ráðningunni.
Finnur varð síðar stjórn ar formaður
fé lags ins.
VÍS var stofnað á grunni tveggja
félaga, Samvinnutrygginga og
Brunabótafélagsins árið 1989.
Eignarhaldsfélaginu Samvinnu-
tryggingum var stýrt af fulltrúaráði
sem í sátu meðal annars nokkrir
þekktir framsóknarmenn eins og
Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guð-
mundsson og Valgerður Sverrisdótt-
ir.
Eignarhaldsfélagið tengdist eign-
arhaldi á tveimur fyrirtækjum sem
voru einkavædd árin 2002 og 2003.
Báðar þessar einkavæðingar, annars
vegar sala Landsbankans á bréfum
sínum í VÍS árið 2002 og salan á Bún-
aðarbankanum árið 2003, eru mjög
umdeildar ekki síst vegna pólitískra
afskipta.
Finn ur varð stjórn ar formaður
Icelanda ir 2006 og átti um tíma
stór an hlut í flug fé lag inu. Hann sat
einnig í stjórn Kaupþings og sett ist
í stjórn Sam vinnu sjóðsins og And-
vöku 2008. Þá átti hann um tíma allt
hluta fé í skoðun ar fyr ir tæk inu Frum-
herja.
Haustið 2007 var eignarhalds-
félag Samvinnutrygginga lagt niður
en eignir og skuldir yfirfærðar í fjár-
festingarfélagið Gift sem hélt áfram
að fjárfesta á markaði í fyrirtækjum
sem tengdust ýmsum áhrifamönn-
um Framsóknarflokksins, til dæm-
is félögum sem Finnur Ingólfsson,
fyrrverandi ráðherra, átti hlut í og fé-
lögum sem Þórólfur Gíslason, stjórn-
arformaður Giftar og kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagafjarðar, átti í.
Á fimmta tug þúsunda fyrr um
viðskipta manna Sam vinnu trygg-
inga urðu hlut haf ar í Gift sem varð
þá jafn framt eitt öfl ug asta og fjöl-
menn asta fjár fest ing ar fé lag lands ins.
Gift hafði það að yfirlýstu mark miði
að ráðstafa arði af eign ar hlutn um til
sam fé lags verk efna og al menn ings-
heilla.
Þannig lánaði Gift fasteignafélög-
um í eigu Finns, Gómi og Lindberg,
840 milljónir sem verja átti til að
reisa íbúabyggð í Örfirisey. Og félagið
keypti hlut í Icelandair af Finni fyrir
4,9 milljarða króna gegnum félagið
Fikt ehf.
Því hefur verið haldið fram að
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri í
Skagafirði, áhrifamaður innan Fram-
sóknarflokksins sem var stjórnar-
formaður Giftar, hafi framan af lagst
hart gegn áformum um að greiða
hinum raunverulegu eigendum Sam-
vinnutrygginga út andvirði sjóðsins,
sem var metinn á um þrjátíu millj-
arða. Féð glataðist og hluthafarnir
sáu aldrei krónu.
„Það hefur aldrei verið rannsak-
að frekar hvað varð um milljarðana
í Gift. Arion banki gerði einkenni-
legan nauðasamning við félagið
eftir hrun sem með réttu hefði átt
að fara í tugmilljarða gjaldþrot og
rannsókn,“ segir Jóhann Hauksson.
„Nauðasamningurinn var gerður á
grundvelli skýrslu sem gerð var af
endurskoðunarfyrirtækinu Ernest &
Young sem ég hef ástæðu til að ætla
að sé bæði pöntuð og ekki marktæk.
Giftarsjóðurinn var upphaflega í
eigu um 50 þúsund tryggingataka
sem aldrei fengu neitt. Var pening-
unum stolið? Hirtu þessir menn fé
án hirðis?
Fyrir mér eru ástæður þess að
Alþingi framfylgir ekki samþykkt
þingsins frá 8. nóvember 2012 um
rannsókn á einkavæðingu bank-
anna skiljanlegar: Undir því teppi er
of mikill skítur sem þolir ekki dags-
ins ljós. Panamaskjölin sýna okkur
aðeins brot af honum,“ segir Jóhann.
„Hann sleppir aldrei neinu“
Þórólfur Gíslason í Skagafirði er tal-
inn einn af valdamestu mönnum
landsins og stórauðugur maður.
Hann hefur sig þó sjaldnast í frammi
opinberlega og talar því sem
næst aldrei við fjölmiðla.
„Kaupfélag Skag-
firðinga er langstærsti
atvinnurekandinn í
Skagafirði og sennilega
í Norðvesturkjördæmi
sem er annað helsta höfuð-
vígi Framsóknarflokksins í landinu,“
segir Ingi Freyr Vilhjálmsson. „Fyr-
irtækið er auðvitað fyrst og fremst
útgerðarfélag þegar horft er til þess
hvar mesti hluti tekna og hagnaður
fyrirtækisins skapast – í gegnum
útgerðina FISK Seafood – en fyrir-
tækið er líka stór hluthafi í Olís og
Mjólkursamsölunni. Þá ræður kaup-
félagið nánast eitt yfir smásölumark-
aðnum í Skagafirði. Þórólfur gegnir í
dag engri formlegri stöðu fyrir hönd
Framsóknarflokksins en hann sat
áður í miðstjórn hans. Formlega eru
völd Þórólfs í flokknum því engin en
undir yfirborðinu eru þau mikil sam-
kvæmt þeim sem til þekkja.“
„Þórólfur Gíslason er rödd úr löngu
liðnum tíma,“ segir Jón Sigurðsson,
fyrrverandi formaður Framsóknar-
flokksins, um þennan mikilvæga bak-
mann flokksins, fyrrverandi stjórn-
arformann Giftar og guðföður
12 | fréttatíminn | Helgin 29. apríl–1. maí 2016
Helgarblað 8.
apríl–10. apríl
2016 • 14. tölub
lað 7. árgangur
www.frettatim
inn.is
ritstjorn@fretta
timinn.is
auglysingar@fre
ttatiminn.is
Hemúllinn
Fjölskyldufaðir
í Breiðholti −
pönkari á Austurv
elli
Mannlíf 62
Mynd | Hari
Jóhannes Kr. Kr
istjánsson 28
Panama-skjölin
Viðhald húsa
FRÉTTATÍMIN
N
Helgin 8.–10. ap
ríl 2016
www.frettatimi
nn.is
Við getum tekið
sem dæmi sólpa
lla
þar sem algenga
sta
aðferðin er að g
rafa
holur og steypa
hólka. Með þess
um
skrúfum er ferlið
mun einfaldara,
öruggara og
kostnaðarminna
. 17
Dýrleif Arna Guðm
undsdóttir,
verkfræðingur hjá
Áltaki.
• Steinsteypa
• Mynsturstey
pa
• Graníthellur
• Viðhaldsefni
• Stoðveggjake
rfi
• Múrkerfi
• Einingar
• Gólflausnir
• Garðlausnir
Fjárfesting sem
steinliggur
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Hafðu samband í s
íma og láttu
sérfræðinga okkar
aðstoða þig
við að finna réttu l
ausnina.
4 400 400
4400 600
4 400 630
4 400 573
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörðu
rHrísmýri 8
800 SelfossSmiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbæ
r
Sími 4 400 400
www.steypustod
in.is
Húsið var herseti
ð
af köngulóm
Auður Ottesen o
g eiginmaður he
nnar keyptu sér
hús á Selfossi
eftir hrun. Þau þ
urftu að vinna b
ug á myglusvepp
i og heilum
her af köngulóm
en eru ánægð í e
ndurbættu húsi
í dag. Auk
hússins hefur ga
rðurinn fengið a
ndlitslyftingu og
nú eru þau
að taka bílskúrin
n í gegn. 8
Mynd | Páll Jökull
Pétursson
Sérblað
Maðurinn sem fe
lldi
forsætisráðherr
a
Sven Bergman
Illnauðsynleg
aðferð í viðtalinu
Sænski blaðama
ðurinn 8
Ris og fall
Sigmundar
Upp eins og rake
tta,
niður eins og pri
k
Spilltasta þjóðin
10
Bless 18
332 ráðherrar í V
estur-Evrópu
4 í skattaskjóli þa
r af 3 íslenskir
KRINGLUNNI IST
ORE.IS
Sérverslun með A
pple vörur
MacBook Air 13"
Þunn og létt með rafh
löðu
sem dugar daginn
Frá 199.990 kr.
MacBook Pro Re
tina 13"
Alvöru hraði í nettri o
g léttri hönnun
Ótrúleg skjáskerpa
Frá 247.990 kr.
Mac skólabækur
nar
fást í iStore Kring
lunni
10 heppnir sem versla
Apple tæki frá
1. mars til 15. maí vin
na miða á Justin Bieb
er.
www.sagamedic
a.is
SagaPro
Minna mál me