Fréttatíminn - 29.04.2016, Page 27
Við óskum íslensku launafólki
til hamingju með 1. maí!
Samtakamáttur og barátta launafólks eru eina leiðin til bættra kjara.
Krafan um aukinn jöfnuð og hækkun lægstu launa hefur verið í
forgrunni undanfarið ár og skilað raunverulegum árangri.
Við Vinstri-græn höldum áfram að berjast fyrir öflugu velferðarkerfi,
heilbrigðiskerfi og menntakerfi á vettvangi stjórnmálanna.
Stöndum saman um gott samfélag fyrir alla – sjáumst í göngunni!
Halldór G. Gunnarsson
hefur búið á sjö stöðum frá
því hann missti íbúðina
sína árið 2010
„Mér finnst ég vera að sleppa vel
hérna með því að borga 80.000
krónur á mánuði, en þetta er
líka 45 fermetra kjallari. Maður
verður auðvitað dálítið þreyttur
á því að sofa alltaf í líkhæð, það
þarf að venjast því að sofa fyrir
neðan jörðina, svo ég vonast til
að komast einhvern tímann upp
á yfirborðið og sjá aðeins út.
En ég er ekkert að sjá fram á að
það gerist því ég er einn og get
ekkert borgað einn yfir 150.000
kall,“segir Halldór Guðmundsson
en hann hefur verið á leigumark-
aðinum frá því hann missti íbúð-
ina sína í hruninu.
„Ég var borinn út árið 2010 og
síðan hef ég búið á sjö stöðum.
Þetta er skelfilegur markaður.
Það er algjört ofmat á öllum eign-
um, verðið er farið upp úr öllu
og er ekki samræmi við neitt. Ég
hef skoðað fokdýrar smákytrur,
bílskúra og atvinnuhúsnæði, það
er allur gangur á þessu. Ég er nú
ekki að leita að íbúðum í þessum
vinsælu túristahverfum en þessi
aukni túrismi hefur samt dóm-
ínó-áhrif yfir í hin hverfin.
Samkeppnin um íbúðir er bara
svakaleg.“
„Ég bjó lengi í Danmörku og
var á leigumarkaðinum þar og
þar var maður bara rólegur í
sinni íbúð í mörg ár. Þar er hægt
að leigja íbúð út lífið en hér er
ekkert þannig kerfi. Ég hef verið
í eitt ár hér og bind vonir við að
fá að framlengja samninginn. Ég
borga alltaf á réttum tíma og það
fer mjög lítið fyrir mér svo það
ætti ekki að vera nein ástæða til
annars, nema þá að eigendurnir
ákveða allt í einu að fara að leigja
íbúðina á Airbnb.“ | hh
Missti
íbúðina í
hruninu
Halldór býr í 45 fm kjallara í Norður-
mýri og greiðir 80.000 kr á mánuði.
Þetta er skelfilegur
markaður. Það er
algjört ofmat á öllum
eignum, verðið er farið
upp úr öllu og er ekki
samræmi við neitt. Ég
hef skoðað fokdýrar
smákytrur, bílskúra
og atvinnuhúsnæði,
það er allur gangur á
þessu.
Mynd | Hari
|27FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016