Fréttatíminn - 29.04.2016, Qupperneq 28
Mynd | Rut
Við ferðumst um þrjú af löndum fyrrum
Júgóslaviu, Serbiu, Svartfjallaland og
Króatíu. Förum aftur í tíma og sjáum gömul
þorp þar sem tíminn hefur staðið í stað.
Skoðum falleg sveitahéruð, kirkjur, klaustur
söfn og glæsilegar borgir.
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
EINSTÖK NÁTTÚRUFEGÐUR OG FORN MENNING
SERBÍA, SVARTFJALLALAND OG KRÓATÍA
13 - 25. JÚNÍ 2016
BALKANSKAGINN
Verð 337.900.-
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið í verði per mann er:
Öll keyrsla milli staða og allar
skoðunarferðir samkvæmt
ferðaáætlun,
Allur aðgangur þar sem við á,
Hótel með morgunmat,
Kvöldmatur i Skadarlija,
Hádegistmatur i ferðinni um
Sremski Karlovci og Novi Sad,
Hádegismatur í Ovcar- Kablar og
lestarferð til Sargan,
Aðgangur að þjóðgarðinum
Uvac, bátsferð og grillað úti
Bátsferð til Kotor,
Hálft fæði i Zlatibor fjöllum,
Hálft fæði i Podgoria Hotel
Ramada,
Hálft fæði i Herceg Novi,
Íslenskur fararstjóri.
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar
tegundir lyfja. Mikið og
fjölbreytt úrval af heilsulyfjum,
bað- og ilmvörum, gjafavörum
auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt verð.
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Hátt hlutfall séreignar
Hlutfall fjölskyldna sem býr í eigin húsnæði.
Noregur 84,4%
Ísland 78,2%
Finnland 73,2%
Svíþjóð 69,34%
Danmörk 63,3%
Þrátt fyrir að hlutfall fjölskyldna sem búa í séreignarhúsnæði á Íslandi
hafi lækkað eftir Hrun er það enn hátt í alþjóðlegum samanburði. Það
er þó ekki hærra en í Noregi, þar sem séreign er óvenju algeng. Ef Ís-
lendingar vildu stefna að norsku hlutfalli þyrfti að flytja um 11.500
fjölskyldur af leigumarkaði yfir í séreign. En til þess að það gengi upp
þyrfti að lækka vexti umtalsvert og til að aðlaga aðstæður húsnæðis-
kaupenda að því sem þekkist í Noregi.
En ef Íslendingar vildu aðlaga húsnæðiskerfið sitt að því finnska
þyrfti að flytja rúmlega 9 þúsund fjölskyldur úr séreign í leiguhúsnæði.
Ef við vildum stefna á sænska kerfið þyrfti að koma um 16.500 fjöl-
skyldum úr séreign í leigu og ef danska kerfið væri haft til hliðsjónar
yrði markmiðið að taka 27.500 fjölskyldur úr skuldsettum íbúðarkaup-
um og bjóða þeim öruggt leiguhúsnæði.
Séreign er hærri á Norðurlöndum en í öðrum löndum Vestur-Evrópu.
Í Frakklandi og Bretlandi búa um 65 prósent fjölskyldna í séreign en
aðeins 52 prósent í Þýskalandi. Ef Íslendingar vildu aðlaga húsnæðis-
markaðinn að þýskum stöðugleika þyrfti að flytja nærri 50 þúsund fjöl-
skyldur undan vaxtaklyfjunum og í öruggt leiguhúsnæði. |gse
Óvissan og óöryggið verst
Sjö heimili á þremur árum
Síðastliðin þrjú ár hefur
Helga Rakel Rafnsdóttir
búið, ásamt dætrum sínum,
á sjö stöðum. Þær hafa búið
í núverandi íbúð í tæpt ár
en eru byrjaðar að leita að
næsta heimili.
„Ég hef flutt oftar en árin sem ég
hef lifað,“ segir Helga Rakel Rafns-
dóttir en hún hefur þurft að flytja
sjö sinnum á þremur árum.
„Ég er önnur kynslóð leigjenda
því mamma eignaðist ekki íbúð
fyrr en ég var tvítug. Það hefur
alltaf verið þannig að ef þú átt ekki
efnaða foreldra eða annað bakland
þá ertu í þessari stöðu, nema þá að
þú bara gerir ekkert annað í lífinu
en að eignast start-kapítal fyrir
húsnæði, sem ég hef bara, kannski
því miður, ekki gert. Í dag er ég
með ágætis laun en ég var lengi
að mennta mig og það gekk ekki
upp að safna fyrir húsnæði á sama
tíma. Kannski færi ég öðruvísi að í
dag, hver veit, en svona er þetta.“
Vill öryggi fyrir dætur sínar
„Við mamma bjuggum út um allt
og þurftum á tímabili að flytja
vestur á firði vegna húsnæðismála
í Reykjavík. Síðar bjuggum við um
tíma hjá Félagi einstæðra foreldra
en fluttum svo í kommúnu í Þing-
holtunum þegar mamma ákvað að
leigja stórt hús og framleigja her-
bergin til nokkurra kvenna. Það
var sniðug lausn og mjög skemmti-
legur tími í minningunni, segir
Helga Rakel sem þrátt fyrir fjölda
heimila hefur nær alltaf búið í
Vesturbænum þar sem dætur
hennar hafa einnig skotið rótum.
„Á þessu svæði er mikil gróska
og þess vegna hefur framboðið
minnkað og leiguverð hækkað.
Ég vil samt frekar að börnin mín
haldi áfram í sama skóla en að þau
þurfi að skipta um hverfi og vini.
Ég hef mikið hugsað um að flytja
í annað hverfi og jafnvel vestur á
firði en þær geta ekki hugsað sér
það. Hér eru ræturnar og ég læt
mig hafa það að vinna meira til að
geta borgað hærri leigu. En það
er í raun ekki hækkað verð sem er
mesta vandamálið heldur er það
óvissan. Það eru engar íbúðir í
boði því framboðið er ekkert.“
Breytir gildismatinu
Helga Rakel segist fyrir löngu
hafa fengið nóg, hún sé komin
með hálfgerða flutningafóbíu og
vilji helst sem minnst hugsa um að
sumarið fari í leit að nýju heim-
ili, þar sem samningurinn sé að
renna út. „Auðvitað hefur þetta
áhrif á gildismat dætra minna.
Við nennum ekki að eiga mikið
af dóti og hlutir skipta okkur litlu
máli. Síðast þegar við fluttum var
ég komin með svo mikið nóg að
ég bara gaf öll húsgögnin, frekar
en að finna geymslu, og keypti
svo ný á Bland þegar við fengum
næstu íbúð. Þetta hefur sennilega
meiri áhrif á þær en ég átta mig
á en ég er bara svo vön þessu.
Það er auðvitað ekkert gaman að
þurfa að auglýsa líf sitt á Facebook
í hvert einasta skipti sem maður
missir heimilið. Síðast reyndi ég
að gera það ekki heldur fara bara
í gengum miðlanir en ég enda svo
alltaf á að finna eitthvað í gegnum
tengslanetið.“ | hh
Hagamelur ▷ Birkimelur ▷ Bjargarstígur ▷ Ránargata ▷ Flateyri ▷ Lynghagi ▷ Holtsgata
Helga Rakel Rafnsdóttir, kvikmyndagerðarkona og fram-
leiðandi, hefur flutt oftar en árin sem hún hefur lifað. Hún
leigir 85 fm íbúð við Holtsgötu á 200.000 kr.
28 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016