Fréttatíminn - 29.04.2016, Blaðsíða 50
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
GOTT
UM
HELGINA
Hvað ætlar þú
að gera 1. maí?
Birna
Þórðardóttir
Snorri Másson
Héðinn Sveinn
Baldursson Briem
Það er ósköp einfalt, ég byrja
daginn hjá Samtökum hernaðar-
andstæðinga og hitti þar fólk.
Þaðan geng ég niður Laugaveginn
og safna peningum til styrktar
verkefna í Palestínu. Það eru yfir-
leitt verkefni tengd börnum, sjúkra-
húsum og ýmis skorts á hernaðar-
svæðum Palestínu.
Ég á 19 ára afmæli þennan dag
sem er svo sem ekki merkilegur
aldur, en eg mun ekki fagna því þar
sem ég er í munnlegu dönskuprófi
klukkan 8.30 þennan dag. Svo er ég
í skriflegu stúdentsprófi í dönsku
daginn eftir svo ég verð allan
daginn að læra fyrir það. Ég hlakka
sem sagt ekki mikið til.
Ég ætla að njóta með fjölskyldunni,
kannski rölta niður í bæ og gefa
öndunum brauð, ef veður leyfir!
Fjólublátt regn
Eins og flestir vita féll tónlistargoð-
sögnin Prince frá í síðustu viku.
Prince var einn besti gítarleikari
sem heyrst
hefur auk
þess að
vera frábær
söngvari og tónsmiður. Margir
tengja tónlistarmanninn við hina
vinsælu bíómynd Purple Rain frá
árinu 1984. Í myndinni fór Prince
með aðalhlutverk og samdi alla
tónlistina.
Það er því vel við hæfi að Bíó Para-
dís hyggst halda sérstaka sýningu
á myndinni á laugardaginn, Prince
til heiðurs.
Hvar? Bíó Paradís.
Hvenær? Laugardaginn 30. apríl,
klukkan 20.
Fjörið um helgina
er í Gróttu!
Aðeins einn dag á ári gefst al-
menningi tækifæri til að ganga
upp í Gróttuvitann og sá dagur er
um þessa helgi: Fjölskyldudagur
Gróttu fer fram á laugardaginn.
Dagskráin er stútfull fyrir unga
sem aldna, en meðal þess sem í
boði verður eru krakkajóga, and-
litsmálun, vöfflur og fjöruferð með
líffræðingum. Auk þess mun Lolla
mæta með gítarinn og grínið og
Flemming Viðar Valmundsson
með harmonikkuna. Leyfi veður
og vindar munu brimbrettakappar
meira að segja leika listir sínar
fyrir opnu hafi.
Hvar? Í Gróttu úti á
Seltjarnarnesi.
Hvenær? Laugardaginn 30. apríl,
klukkan 15.30-17.30.
Hókus pókus
Töframaður leggur
sprotann á hilluna
Fyrsti maí hins
róttæka verkalýðs
Á verkalýðsdeginum, 1. maí, kennir
ýmissa grasa um allan bæ. Nokkrir
hópar hafa tekið sig saman og
standa fyrir dagskrá fyrir þá sem
virkilega vilja berjast fyrir bættum
hag alþýðunnar á róttækan hátt.
Dagskráin hefst með því að hópur-
inn safnast saman klukkan 13 á
Lækjartorgi, marserar niður Lauga-
veg með verkalýðsgöngunni árlegu
og eftir dagskrá á Lækjartorgi
verður hist á Múltíkúltí á Barónstíg,
byltingin rædd og tækifæri fyrir
svipað þenkjandi róttæklinga að
ráða ráðum sínum. Hóparnir sem
standa fyrir viðburðinum eru IWW
Ísland, Kynsegin Ísland, No borders
Iceland, Róttæki sumarháskólinn,
Trans Ísland, Attac á Íslandi, Inn-
blástur Arkestra and Aktívegan.
Hvar? Hlemmur.
Hvenær? 1. maí klukkan 13.
Hundrað raddir óma
Hvernig hljómar að slaufa
aprílmánuði og taka sumrinu
opnum örmum undir tónum
kórs hundrað kvenna? Margrét
Jóhanna Pálmadóttir fagnar 60
ára afmæli sínu með tónlistar-
veislu þar sem einsöngkonan
Berglind Björk Jónasdóttir og
hljómsveit, skipuð úrvals tón-
listarmönnum, verða með í fjöl-
breyttri gospel-, blús- og djass-
tónlist. Margrét, ásamt 100
kvenna skara úr söngskólanum
Domus vox, treður upp og lofar
góðri skemmtun og gæsahúð.
Hvar: Fríkirkjan við Tjörnina.
Hvenær: Laugardaginn 30. apríl,
klukkan 16 og 18.
BÍÓFERÐ
HELGARINNAR
„Í Töfraheimi Einars
Mikaels verða sjö ár
af töfrum sett í eina
sýningu – allt mitt
besta hingað til í sam-
bland við nýtt efni sett
saman og útkoman
verður ein stórkostleg
fjölskyldusýning.“
Um helgina fer fram í Bæjarbíói
atburður sem markar lokin á
töframannsferli Einars Mikaels – í
það minnsta næstu sjö árin. Að
sögn Einars markast lífið af sjö
ára löngum tímabilum og telur
hann því sínum sjö ára langa töfra-
mannsferli lokið.
Hvað? Töfraheimur Einars
Mikaels.
Hvar? Bæjarbíó í Hafnarfirði.
Hvenær? Sunnudaginn 1. maí,
klukkan 15.
Hvað kostar? 2500 krónur.
„Ég er búinn að vera með nám-
skeið og listasmiðju í gangi síðustu
daga fyrir fatlaða listamenn þar
sem við höfum verið að mála sam-
an aflandseyjar. Krakkarnir hafa
verið að mála þessar eyjar út frá
sínum hugmyndum um aflandseyj-
ar, sem eru byggðar á litatónum
íslenskrar náttúru,“ segir Árni Már
Erlingsson myndlistarmaður sem
vinnur nú fyrir List án landamæra.
„Við ætlum svo að kynna stofnun
aflandsfélags í þágu íslenskrar
myndlistar með gjörningi í Gallerí
Port á laugardaginn. Þá verður
gestum og gangandi líka boðið að
stofna sitt eigið aflandsfélag. Með
þessu ætlum í raun að sýna fram
á hversu auðvelt það er að stofna
eitt slíkt.“
Árni Már Erlingsson, Snorri Ásmundsson og þátttakendur í List án landamæra
flytja gjörninginn Óþekkt, stælar og almenn óþekkt í Port verkefnarými, laugar-
daginn 30. apríl klukkan 14-16 og frá klukkan 20. Þar munu gestir og gangandi
geta stofnað sitt eigið aflandsfélag. Myndin er frá gjörningi Snorra, Koddu! sem
var framkvæmdur með fötluðum listamönnum í Nýlistasafninu árið 2011.
Aflandsfélag í þágu
myndlistar stofnað
50 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016