Fréttatíminn - 29.04.2016, Síða 55
| 55FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016
Ég | er mikill áhugamaður um
sjónvarpsþætti en horfi aftur
á móti ekki mikið á þá. Mig
langar rosa að hafa séð alla
þessa frábæru þætti sem fólk
er alltaf að tala um, en mér
fallast hendur þegar ég ætla
að byrja því þeir eru of margir.
Í fyrra varð ég veikur og
kærastan mín kom heim
með allar seríur Breaking Bad
á DVD. Ég horfði á þær á
tveim vikum og sagði öllum
sem ég hitti hvað þetta væri
mikil snilld, en auðvitað voru
þá allir löngu búnir að sjá þá.
Ég var reyndar undir miklum
áhrifum Breaking Bad þegar
við skrifuðum lokaútgáfu
Ligeglad (ég er samt ekki að
tala um húsbílinn, hann var
kominn áður!)
Eina serían sem ég
fylgist með þessa dagana
er Survivor. Serían sem er í
gangi núna er rosaleg. Ég er
búinn að skellihlæja, öskra
á skjáinn og hágráta einn
heima í sófanum. Þetta eru
svo brjálæðislega vel gerðir
þættir. Klipping, músík
og uppbygging búa
til hágæða efni
sem klikkuðustu handrits-
höfundar gætu ekki látið sig
dreyma um. Annars finnst
mér raunveruleikasjónvarp
vera drasl. En Survivor er ekki
raunveruleikinn. Survivor er
lífið.“
Sófakartaflan
Vignir Rafn
Valþórsson, leikari
og einn skapara
Ligeglad
Survivor er lífið
Breaking Bad
„spin-off“
Netflix Better Call Saul. Það er ekki
að ástæðulausu að þættirnir fá 8.8
á imdb vefnum. Þættirnir skarta
karakter sem flestir þekkja úr
verðlaunaþáttunum Breaking Bad.
Þeir fjallar um lögfræðinginn Jimmy
Morgan sem tekur að sér hvaða mál
sem er og vill helst ganga frá þeim
án þess að fara fyrir dóm. Hvernig
hann þróast síðan út í karakterinn
Saul Goodman, sem ver glæpamenn
og dópsala í Breaking Bad, er
ævintýri þáttanna.
Hann er kominn aftur
Netflix Hvað myndi gerast ef Hitler myndi snúa aftur til Þýska-
lands? Þýska bíómyndin Look who’s back byggir á samnenfndri
bók sem spyr nákvæmlega þeirra spurningar. Myndin er grínmynd
og segir frá því þegar Hitler vaknar upp í almenningsgarði í Berlín,
alveg minnislaus um hvað hefur gerst síðan árið 1945. Móttökur
Berlínarbúa við nasistaforingjanum koma á óvart – jafnvel
óþægilega á óvart.
Ungversk sunnu-
dagsmynd
RÚV Hvíti guð, sunnudaginn klukkan
22.55. Þegar ný lög um blendinga-
hunda eru sett sleppir faðir Lilli
hundinum hennar lausum. Hún
leggur upp í leit að hundinum í von
um að ástin vísi henni veginn að
sínum ástkæra hundi. Þessi ung-
verska bíómynd er frá árinu 2014 og
hlaut tvenn Cannes verðlaun það ár.
Móglí stekkur af
skjánum
Sambíóunum Álfabakka, Kringlunni,
Egilshöll, Akureyri og Keflavík. Svo
virðist sem vinirnir Móglí, Balú
og Bakíra séu órjúfanlegur hluti
af æsku hverrar kynslóðar og nú
fær unga kynslóðin Skógarlíf eins
og það hefur aldrei sést áður – í
þrívídd. Söguna þekkja flestir en
sagan af stráknum Móglí sem elst
upp meðal dýra í frumskóginum
hefur verið síteiknuð og kvikmynd-
uð síðan hún var skrifuð árið 1894.
Bíómyndin Jungle Book er sýnd
í Sambíóunum og er fjölskyldu-
skemmtun í sínu tærasta formi.
Mynd | Hari
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Við hönnum og teiknum fyrir þig
Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
þitt er Valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
kr
ea
ti
V
fjölbreytt úrVal af hurðum, framhliðum,
klæðningum og einingum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
styrkur - ending - gæði
HÁGÆÐA DANSKAR
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15