Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 4
Álfheiður á Facebook
■ Með einu símtali hefði
Moggi komist að eftir-
farandi staðreyndum:
■ Lögmannsstofa Sigur-
mars stofnaði félagið
Sýrey ehf. 25.08. 2005
fyrir Kaupþing og var það skráð sama
dag hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra í
Reykjavík.
■ Félagið var stofnað fyrir Kaupþing í þeim
tilgangi að ganga frá uppgjöri á skuldum
tiltekins manns við bankann. Því verki
lauk Sigurmar og 10. febrúar 2006 var
haldinn fundur í félaginu, Sigurmar fer úr
stjórn og skipt er um endurskoðendur.
■ Eftir það hefur Sigurmar ekki haft nein
afskipti af félaginu eða Holts Investment
sem kemur til eftir að hann fer úr stjórn.
Spilling Reynt að semja um að fallið yrði frá ákæru
Fíkniefnalögga bað
brotamann um peninga
Talið er að fíkniefnalög-
reglumaður, sem sætt hefur
rannsókn vegna misferlis
í starfi, hafi sent brota-
manni sms og beðið hann
um peninga. Fyrrum starfs-
maður sérstaks saksóknara
fór með upptöku af samtali
lögreglumannsins og brota-
mannsins til ákæruvaldsins.
Upptakan er talin styðja þá
kenningu að peningar hafi
farið á milli lögreglumanns-
ins og brotamanns.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Smáskilaboðin og hljóðupp-
takan eru sterkustu gögnin sem
ákæruvaldið hefur í málinu gegn
fíkniefnalögreglumanninum.
Skilaboðin fundust í síma lögreglu-
mannsins á lögreglustöðinni. Í
skilaboðunum er talið að hann sé
að biðja brotamann um peninga.
Engar sannanir eru fyrir því að
greiðslurnar hafi átt sér stað.
Rannsókn á málinu hefur staðið
yfir síðan í desember og bæði
brotamaðurinn og fíkniefnalög-
reglumaðurinn hafa setið í gæslu-
varðhaldi vegna málsins. Líklegt
er að ríkissaksóknari gefi út ákæru
á hendur fíkniefnalögreglumann-
inum á næstu vikum fyrir brot í
starfi og mútuþægni. Þá er líklegt
að brotamaðurinn verði ákærður
fyrir að bera mútur á lögreglu-
mann. Málið er á borði Helga
Magnúsar Gunnarssonar.
Málið fór af stað í desember í
fyrra þegar maður, sem eitt sinn
starfaði fyrir sérstakan saksókn-
ara, fór með upptöku af samtali
brotamannsins og fíkniefnalög-
reglumannsins, til ákæruvaldsins.
Í upptökunni, sem er um hálftíma
löng, heyrast lögreglumaðurinn
og brotamaðurinn ræða saman.
Brotamaðurinn og fyrrum starfs-
maður sérstaks saksóknara
tengjast. Á ákveðnum tímapunkti
í upptökunni er rætt um peninga-
upphæð. Truflanir eru á upptök-
unni svo ekki heyrist nægilega vel
í hvaða samhengi peningaupphæð-
in kemur til tals.
Annar maður, sem gengdi stöðu
lögreglufulltrúa og yfirmanns í
fíkniefnadeild lögreglunnar, sætir
einnig rannsókn vegna misferlis
í starfi. Hann er grunaður um
langvarandi samskipti við einn
þekktasta mann í undirheimum á
Íslandi. Grunsemdir um óeðlileg
tengsl þeirra, hafa ítrekað komið
upp.
Í desember í fyrra leitaði lög-
fræðingur til ríkissaksóknara og
óskaði eftir samningaviðræðum.
Hann sagðist geta haft milligöngu
um að veittar yrðu upplýsingar um
samskipti lögreglufulltrúans og
mannsins í undirheimunum. Lög-
fræðingurinn vildi að fallið yrði
frá ákæru á hendur undirheima-
manninum gegn því að upplýst
yrði um samskipti hans við lög-
reglufulltrúann.
Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans var þessu tilboði lögfræð-
ingsins ekki tekið og engin heimild
er í lögum til að semja við fólk um
að það njóti friðhelgi gegn því að
veita upplýsingar.
Við yfirheyrslur hefur maður-
inn í undirheimunum játað að lög-
reglufulltrúinn hafi gert honum
viðvart, einu sinni, þegar fíkni-
efnadeildin ætlaði að framkvæma
húsleit vegna kannabisræktunar.
Þegar lögreglan kom á staðinn var
húsnæðið tómt.
Átök eru innan lögreglunnar um
hvort mál lögreglufulltrúans hafi
verið þaggað niður af fyrrum yfir-
mönnum hans, meðal annars þeim
Karli Steinari Valssyni og Frið-
riki Smára Björgvinssyni. Margir
fíkniefnalögreglumenn eru ósáttir
við viðbrögð þessara manna við
ábendingum um misferli lögreglu-
fulltrúans.
Miklar deilur hafa skapast um
rannsókn málsins þar sem Grímur
Grímsson var í upphafi fenginn til
að stýra rannsókninni. Grímur er
náinn vinur Karls Steinars Vals-
sonar. Hann sagði sig frá rann-
sókninni eftir að athugasemdir
voru gerðar við tengslin. Málið
hefur verið til meðferðar hjá emb-
ætti héraðssaksóknara.
Rannsókn á máli lögreglu-
fulltrúans er á lokastigi og er talið
ólíklegt að gefin verði út ákæra í
málinu. Honum mun því bjóðast
að starfa áfram hjá lögreglunni.
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari er með
mál fíkniefnalögreglumannsins á sínu borði.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari fer með
mál lögreglufulltrúans.
Lögfræðingur-
inn vildi að fallið
yrði frá ákæru
á hendur undir-
heimamanninum
gegn því að upplýst
yrði um samskipti
hans við lögreglu-
fulltrúann.
Ríkið braut lög þegar ákveð-
ið var að stytta bótatímabil
atvinnulausra. Eitt þúsund
manns gætu átt endurkröfu-
rétt á ríkið.
„Að mínu mati er þetta stórt mál
og mögulega fordæmisgefandi. Þess
vegna tel ég æskilegt að eyða allri
óvissu og taka af tvímæli í þessu
máli með endanlegri niðurstöðu
Hæstaréttar,“ segir Eygló Harðar-
dóttir félagsmálaráðherra en hátt í
eitt þúsund manns gætu átt endur-
kröfurétt á ríkið eftir héraðsdómur
Reykjavíkur kvað upp þann dóm að
það hefði verið ólöglegt að stytta
bótatímabil atvinnulausra.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður
VR, segist hafa vonað að fjármála-
ráðherra og félagsmálaráðherra
sýndu ákveðna auðmýkt og gengju
til samninga við þá sem þau hefðu
brotið á án þess að það þyrfti frek-
ari málarekstur. Ákvörðunin hafi
verið hroðvirknisleg en margsinnis
hafi verið bent á að þetta gengi bæði
gegn stjórnarskrá og eignarrétti en
markmiðið hafi einungis verið að
laga fjárhagsstöðu ríkisins.
Ríkið hefði getað stytt bótatíma-
bilið en það mátti ekki skerða rétt
þeirra sem þegar höfðu hafið töku
bóta. Alls missti 81 félagsmaður í
VR framfærslu sína þegar lögin tóku
gildi. Ólafía segir að sumir þeirra
hafi getað leitað á náðir sveitar-
félaga en alls ekki allir, enda séu
þröng skilyrði þar, til að mynda
um tekjur maka. Fólk sem sé enn
atvinnulaust hafi haft samband við
félagið eftir dóminn og velti nú fyrir
sér réttarstöðu sinni.
Eygló Harðardóttir gaf ekki kost
á viðtali til að svara frekari spurn-
ingum um málið. | þká
Hvorki ég né maðurinn
minn höfum átt nein
aflandsfélög, svo mikið
veit ég,“ segir Álfheiður
Ingadóttir, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra
Vinstri grænna.
Morgunblaðið sló því upp á
fimmtudag að Sigurmar K. Al-
bertsson, hæstaréttarlögmaður
og eiginmaður Álfheiðar Inga-
dóttur, hafi stofnað félagið Sýrey
og verið forsvarsmaður þess þeg-
ar það var skráð á Tortóla. „Það
er augljóslega verið að reyna að
slæma höggi á Álfheiði, en svona
ómerkilegheit eru alltaf leiðinleg,
þegar menn eru að búa til rangar
fréttir,“ segir Sigurmar K.
Í frétt Morgunblaðsins er Sýrey
sögð hafa verið í eigu Holt Invest-
ment Group Ltd. á árunum 2005
til 2014. Holt Investment hafi ver-
ið skráð á Tortóla, á heimilsfangi
Mossack Fonseca lögfræðistof-
unnar.
Sigurmar segist hafa stofnað fé-
lagið Sýrey í ágúst 2005 og skráð
það í fyrirtækjaskrá hjá Ríkis-
skattstjóra þegar hann vann fyr-
ir Kaupþing og var að ganga frá
skuldaskilum vegna lands í Borg-
arfirði. Þá hafi Sýrey verið skráð á
Íslandi. „Ég veit ekkert hvað varð
um það eftir 10. febrúar 2006, þá
var ég búinn að klára verkefnið
og hef ekki heyrt af því síðan, fyrr
en nú.“
Sigurmar segist hafa komið að
stofnun margra félaga sem lög-
maður. Ekkert hafi verið stofn-
að á erlendri grundu eða í þeim
tilgangi að koma verðmætum í
skattaskjól.
„Hvorki ég né maðurinn minn
höfum átt nein aflandsfélög, svo
mikið veit ég,“ segir Álfheiður
Ingadóttir.
Álfheiður segir að tilgangurinn
sé að koma höggi á Vinstri græn
með því að fabúlera um að hún
og hennar eiginmaður eigi félag
á Tortóla og gefa til kynna að það
sé sami rassinn undir öllum sem
komi nálægt pólitík. „Hið rétta er
að Sigurmar eða við hjónin áttum
aldrei krónu í þessu félagi. Það
var skráð á Íslandi meðan hann
var í stjórn þess. Davíð verður að
gera betur!,“ segir hún. þká
Tortola Fyrrverandi heilbrigðisráðherra vísar frétt um aflandsfélag á bug
Davíð verður að gera betur
Dómur Formaður VR vonaðist eftir auðmýkt
Ríkið ætlar að áfrýja
atvinnuleysisbótadómi
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra.
4 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016