Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 6
Þú finnur nýja Taxfree sófabæklinginn
á www.husgagnahollin.is
www.husgagnahollin.is
558 1100
Allir sófar á taxfree tilboði*
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr. 369.990 kr.
SÓFAR
TAXFREE
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1 www.husgagnahollin.is
* Taxfree tilboðið gildir bara á sóf
um og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðis
aukaskatt af söluverði. Afslátturinn
er alfarið á kostnað Húsgagnahall
arinnar og gildir til 29. apríl 2016
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFAR
TAXFREE
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.
Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr.
369.990 kr.
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri
tunga. Dökk eða ljósgrátt slitsterkt
áklæði. Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
153.218 kr.
189.990 kr.
DEVON
Nettur og litríkur
svefnsófi. Margir
litir. Stærð:
151 x 86 x 82 cm
112.895 kr.
139.990 kr.
Stjórnendur Háskólabíós
hafa komið fyrir fuglahræðu
á þaki bíóhússins til að
hræða burtu hrafnapar sem
hefur gert sig heimakomið
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Hrafnar hafa í tvígang gert sér
laup á þaki Háskólabíós við litla
hrifningu stjórnenda þar sem
hafa jafnharðan hrakið þá burt. Í
síðara skipti kom húsvörður bíó-
hússins fyrir fuglahræðu á þakinu
til að koma í veg fyrir frekari
hreiðurgerð fuglanna. Susan
Muska, kvikmyndagerðarkona
og stundakennari við Háskólann,
hefur fylgst náið með hröfnunum
og gert athugasemd við framferði
stjórnenda bíósins.
Susan Muska er áhugakona um
fugla, einkum uglur en eftir að
hún fór að dvelja langdvölum í
Reykjavík heillaðist hún af hröfn-
um. „Þetta eru stálgreindir og fal-
legir fuglar og það er svo óvenju-
legt að sjá þá í borginni.“
Susan segir að hrafnarnir eigi
sama maka á hverju ári en geri sér
ekki endilega laup á sama stað.
Lauparnir þurfa að vera hátt uppi
og því hentar klettótt landslag
þeim vel eða háar byggingar. „Ég
átti leið framhjá byggingasvæði
rétt hjá Háskólabíói eftir að ég
kom til landsins núna í mars og
sá að hrafnar voru þar í óðaönn
að sækja efnivið í hreiðurgerð. Ég
fylgdist með þeim og sá þá fljúga
í átt að bíóinu þar sem þeir voru
greinilega búnir að koma sér fyrir
á þakinu. Þetta er frábær staðsetn-
ing fyrir hrafnana því laupurinn
sést ekki frá götunni og önnur hús
eru ekki í alveg næsta nágrenni,
svo uppeldi unganna er ekki lík-
legt til að valda neinni truflun.”
Susan segist ekki hafa ímynd-
að sér annað en að stjórnendur
bíósins yrðu himinlifandi að fá
hrafnana, þannig hafi stjórnend-
ur Listasafns Einars Jónssonar
tekið hrafnapari opnum örmum
fyrir nokkrum árum og eins skóla-
stjórnendur í Austurbæjarskóla,
sem hafi komið fyrir myndavél á
þakinu til að leyfa börnunum að
fylgjast með uppeldi unganna.
„Þessvegna dauðbrá mér og ég
varð algerlega miður mín þegar ég
sá að laupurinn hafði verið eyði-
lagður og leifarnar af honum var
að finna á jörðinni og afgangurinn
hefur sjálfsagt farið í ruslið. Þegar
ég leit upp sá ég að komið hafði
verið fyrir ófrýnilegri fuglahræðu
þar sem laupurinn hafði verið.“
Susan fór að grennslast fyrir
um málið og fann út að laupur-
inn hafði fyrst verið eyðilagður,
en þegar hrafnarnir hófu endur-
reisnarstarf var hann eyðilagður
að nýju og fuglahræðan sett til
að hræða þá í burtu. Hún setti sig
í samband við stjórnendur sem
sögðu að hröfnunum fylgdi sóða-
skapur og hávaði og þeir vildu ekki
hafa þá á þakinu, þótt það taki
ekki nema sex vikur að koma ung-
unum á legg.
Hrafnar eru ekki friðaðir en þeir
njóta þó ákveðinnar friðhelgi inni í
borginni og það heyrir til undan-
tekninga að laupar þeirra séu
eyðilagðir.
Fuglar Hrafnar eru ekki velkomnir í Háskólabíó
Eyðilögðu laup
fyrir hrafnapari
Susan Muska dauðbrá og varð algerlega miður sín þegar hún sá að laupurinn hafði verið eyði-
lagður og að komið hafði verið fyrir ófrýnilegri fuglahræðu þar sem laupurinn hafði verið.
Susan Muska segist ekki
hafa ímyndað sér annað en
að stjórnendur bíósins yrðu
himinlifandi að fá hrafnana,
þannig hafi stjórnendur
Listasafns Einars Jónssonar
tekið hrafnapari opnum
örmum fyrir nokkrum árum
og eins skólastjórnendur
í Austurbæjarskóla.
„Á mínum langa pólitíska
ferli hafa fá mál lagst eins
þungt á mig og að vera að
ósekju sökuð um brot á jafn-
réttislögum,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir. Það sé þó fá-
ránlegt að blanda því saman
við umræðu um stærsta spill-
ingarmál sögunnar.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi
forsætisráðherra, segir fáránlegt að
blanda dómi í jafnréttismáli frá 2010
inn í umræður um stærsta spillingar-
mál sögunnar. „Það lýsir vel hve rök-
þrota stjórnarliðar eru sem og siðrofi
gagnvart þjóðinni þar sem forystu-
menn stjórnarflokkanna voru í aðal-
hlutverki.
Hún segir virðingarvert af Ragn-
heiði Ríkharðsdóttur, þingflokks-
formanni Sjálfstæðisflokksins, að
hafa beðist afsökunar á ummælum
sínum á Alþingi síðastliðinn þriðju-
dag. Ragnheiður sagði á Alþingi að
Jóhanna hefði brotið jafnréttislög
við skipun Arnars Þórs Mássonar
sem skrifstofustjóra í forsætisráðu-
neytinu árið 2010. Kærunefnd jafn-
réttismála komst að því árið 2010 að
Jóhanna Sigurðardóttir hefði brotið
gegn ákvæðum jafnréttislaga þegar
Arnar Þór var skipaður í embættið.
Héraðsdómur dæmdi í kjölfarið Önnu
Kristínu Ólafsdóttur bætur á grund-
velli álits kærunefndarinnar. Árið
2013 komst umboðsmaður Alþingis
hinsvegar að því að mat og aðferð
kærunefndar Jafnréttismála hafi ekki
verið í samræmi við lögboðið hlut-
verk hennar.
Ragnheiður sagðist ekki hafa vitað
af úrskurði umboðsmanns og bað
Jóhönnu afsökunar á Facebook. Jó-
hanna segir að það hefði farið betur
Afsökunarbeiðni Ragnheiðar
hefði átt betur heima á Alþingi en
Facebook að mati Jóhönnu.
Skattaskjól Allt dregið fram í umræðum um skattaskjól
Ragnheiður bað Jóhönnu afsökunar
á því að hún bæðist afsökunar á sama
vettvangi. Það hafi þó verið ágætt að
hún opinberaði þekkingarleysi sitt á
málinu. Það hafi gefið kærkomið til-
efni til að rifja upp álit umboðsmanns
Alþingis, en fjölmiðlar hafi ekki sýnt
því neina athygli, öfugt við moldviðr-
ið sem var þyrlað upp í kringum úr-
skurð jafnréttisráðs. „Í gegnum tíðina
hef ég mikið unnið að jafnréttismál-
um og á mínum langa pólitíska ferli
hafa fá mál lagst eins þungt á mig og
að vera að ósekju sökuð um brot á
jafnréttislögum,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir. | þká
Myndir | Susan Muska
Mynd | Hari
6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016