Fréttatíminn - 15.04.2016, Síða 8
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri, vill
samræmdan gagnagrunn
um hagsmuni kjörinna full-
trúa og framkvæmdastjóra
í sveitarstjórnum.
Ríki og sveitarfélög verða af
rúmlega 80 milljörðum króna
á ári í formi skatttekna vegna
skattaundanskota. Notkun afla-
ndsfélaga hefur þar umtalsverð
áhrif. Eiríkur Björn Björgvinsson
segir að í ljósi þessa eigi það ein-
faldlega ekki að líðast að neinn
sem starfi í umboði almennings
hafi tengsl við aflandsfélög. „Ég
ætla að leggja það til á vettvangi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
að sett verði af stað vinna sem
tryggi að svo sé ekki,“ segir hann.
„Þessi skattaundanskot grafa
því undan getu sveitarfélag-
anna til þess að veita íbúum þá
þjónustu sem þeir vænta og þess
vegna er gríðarlega mikilvægt að
taka þessi mál föstum tökum.“
Eiríkur segir að fyrsta skrefið
sé að krefja ríkisstjórnina um
raunverulegar aðgerðir til þess
að uppræta skattaundanskot í
gegnum aflandsfélög og bjóða
fram aðstoð sveitarfélaganna við
það. „Við sveitarstjórnarmenn
eigum að ganga á undan með
góðu fordæmi og hafa allt okkar
uppi á borðinu.“
Hann bætir við að Reykjavíku-
borg hafi að mörgu leyti verið til
fyrirmyndar við að setja reglur
um hagsmunaskráningu. „Þó
hefur komið í ljós að tveir borgar-
fulltrúar hafa ekki skráð hags-
muni sína þar. Það sýnir okkur
að samhliða reglum af þessu tagi
þarf að vera hægt að sannreyna
að upplýsingarnar séu réttar,“
segir Eiríkur.
„Það er gríðarlega mikilvægt að
allir sem eru í þjónustu almenn-
ings, bæði kjörnir fulltrúar og
þeir sem eru í forsvari, eins og ég,
sýni gott fordæmi og geri hreint
fyrir sínum dyrum. Sveitarfélög
verða að koma sér upp samræmd-
um reglum um hagsmunaskrán-
ingu fulltrúa í sveitarstjórnum og
framkvæmdastjóra þeirra og þar
gegna Samtök íslenskra sveitar-
félaga lykilhlutverki.“ | þká
Sveitarstjórnir Enginn í opinberri þjónustu má tengjast aflandsfélögum
Vill samræmdan gagnagrunn um hagsmuni
„Okkur er nauðugur einn
kostur, ef við eigum að geta
tekið á móti öllum þeim
fjölda sem sækir Reynisfjöru
heim,“ segir Guðni Einars-
son einn eigenda veitinga-
staðarins Svörtufjöru. Hann
og aðrir eigendur hafa
pantað stöðumæla hjá fyrir-
tækinu Bergrisa og ætla að
hefja gjaldtöku á þessum
vinsæla ferðamannastað.
Ragnheiður
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra
segist ekki hafa neitt við gjaldtök-
una að athuga. Ekki sé um hefð-
bundinn aðgangseyri að ræða.
Það sé verið að rukka fyrir þjón-
ustu á einkalandi. Hún reikni með
að stór hluti renni til uppbyggingar
og bæti innviðina á þessum stöð-
um.
Um hundrað þúsund gerðu sér
ferð í Reynisfjöru í mars, sem telst
nú ekki til háannatíma í ferðabrans-
anum. Það er því ljóst að það er eft-
ir miklu að slægjast. Guðni Einars-
son segir að gjaldið hafi ekki verið
ákveðið en horft sé til bílastæða-
gjaldsins á Þingvöllum. Þar rukka
menn einkabíla um fimm hundruð
og rútur um 3000 krónur. „Við höf-
um ekki úr miklu fjármagni að spila
og bílastæðin þurfa að vera í lagi
enda eiga þau að tryggja að fólk fari
rétta leið niður í fjöruna og sjái við-
vörunarskiltin,“ segir Guðni. Hann
segir að ætlunin sé að fjárfesta í
malbiki fyrir bílastæðin og stöðu-
mælum og sinna hálkuvörnum
og viðhaldi á bílastæði. Þá standi
gestum til boða að nota salerni á
veitingahúsinu. Ekki stendur til að
greiða fyrir öryggisgæslu á svæðinu
en tveir ferðamenn hafa látið þar
lífið á skömmum tíma.
Ragnheiður Elín Árnadóttir segir
að þetta séu tvö aðskilin mál, stjór-
nstöð ferðamála hafi verið falið að
vinna sérstaka öryggisúttekt fyrir
páska sem sé þegar komin til fram-
kvæmda. Hún segist ekki óttast að
þjónustugjöld á einkalandi verði
almennt til vandræða eða mjög
íþyngjandi. Hún hafi reynt að ná
samstöðu um náttúrupassa en sú
tilraun hafi farið út um þúfur þar
sem ekki hafi náðst um hana sátt.
Það hvíli þó enn sú skylda á opin-
berum aðilum að standa vel að upp-
byggingu á ferðamannastöðum
enda séu ferðamenn að skila gríð-
arlega miklum tekjum í þjóðarbúið.
Guðni og aðrir eigendur veitinga-
hússins Svörtufjöru eru með lóð-
arleigusamning fyrir lóðina undir
veitingahúsinu og bílastæðunum.
Um 300 manns eiga hinsvegar land-
ið að sjálfri Reynisfjöru og höfðu
þeir ekkert heyrt af áformunum,
þegar þau spurðust út í fjölmiðlum.
Guðni segir að eigendur veitinga-
hússins séu í fullum rétti og muni
greina frá málinu betur þegar það
er lengra á veg komið.
Ferðaþjónusta Gjaldtaka í Reynisfjöru getur skilað tugum milljóna á ári
„Tilneydd að hefja
gjaldtöku í Reynisfjöru“
Myndatexti
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri
Andri Snær Magnason forseta-
frambjóðandi vekur athygli á
nafna sínum, rithöfundinum.
Bækur Fjórir höfundar Forlagsins í forsetastellingum
Sjóðheitur Andri Snær
Bókamessan í London fór
fram í vikunni en þangað
senda íslensk forlög
útsendara sína að kynna
íslenskar bækur og höf-
unda en einnig til þess
að finna heitustu erlendu
titlana til að þýða yfir á
íslensku.
Gríðarlegur áhuga er á verkum
Andra Snæs Magnasonar í
kjölfar forsetaframboðs hans.
Egil Jóhannsson útgefandi segir
að mikill fjöldi útgefenda hafi
safnast saman hjá réttindastofu
Forlagsins og keppst um réttinn
á verkum hans.
Forlagið er reyndar sá
vinnustaður sem hefur látið
mest að sér kveða í undanfara
forsetakosninganna, alls eru
fjórir frambjóðendur tengdir
bókaútgáfunni. Andri Snær og
Þorgrímur Þráinsson, sem nú
hefur gefið út að hann hafi misst
áhuga á framboðinu, eru höf-
undar Forlagsins og Elísabet
Jökulsdóttir sem er líka í fram-
boði hefur einnig gefið þar út
eina bók.
Annar hugsanlegur frambjóð-
andi liggur undir feldi, en hann
er líka einn höfunda Forlagsins
og hefur gefið þar út fimm bæk-
ur um sagnfræðileg efni, það er
Guðni Th. Jóhannesson.
Egill Jóhannsson bókaútgef-
andi segir að Forlagið hafi engin
afskipti af framboðsmálum
höfunda sinna. Það hafi komið
á óvart að erlendir útgefendur
sýndu þennan mikla áhuga
vegna forsetakosninganna. | þká
Tíkin þjáðist af kalkskorti
Smáhundurinn Amy,
sem reyndist fótbrotinn í
Einangrunarstöð gæludýra
í Höfnum, þjáðist af kalks-
korti. Tíkin fór í læknis-
skoðun hjá dýralækni á
Keflavíkurflugvelli þegar
hún var flutt til landsins og
reyndist við góða heilsu.
„Síðar kom í ljós að Amy var fót-
brotin og haldin miklum kalks-
korti þannig að vandasamt var að
spengja fótinn saman,“ segir Jón
Magnússon, forstöðumaður Ein-
angrunarstöðvarinnar.„Því hefur
verið haldið fram að Amy hafi fót-
brotnað í dvölinni hjá okkur og
hafa aðstandendur stöðvarinnar að
ósekju mátt sitja undir ámæli fyrir
það og að hafa ekki brugðist nógu
fljótt við ástandi hundsins. Þessu
mótmælum við harðlega og sömu-
leiðis meiðandi ummælum sem
fallið hafa um starfsemi okkar á
samfélagsmiðlum að undanförnu,“
segir Jón og bætir við að ekkert dýr
hafi meiðst í stöðinni frá því hún
tók til starfa.
Senda átti hundinn úr landi þeg-
ar brotið uppgötvaðist. Vegna sótt-
varna mátti ekki fara með hundinn
á dýraspítala og ekki var talið að
aðstaðan í stöðinni væri nógu góð
til að hægt væri að framkvæma
aðgerðina.
Fyrir milligöngu Dýraverndar-
sambandsins var hætt við að senda
tíkina úr landi og kallaður til dýra-
læknir til að gera aðgerð. | þká
8 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016