Fréttatíminn - 15.04.2016, Qupperneq 19
Það er ótrúlega
magnað að sjá
þegar þær verða
ástfangnar af
börnunum sínum.
Þegar þær eru
komnar á þann
stað að geta brosað
fram í barnið sitt,
fengið bros til
baka og sagt að
þær elski það.
mæður sem þurfa stuðning við
fyrstu skrefin í nýju hlutverki.
Flestar þeirra eru með þungan
farangur á bakinu, svo sem geð-
raskanir, fíknivanda, félagslegan
vanda eða fjölþætt vandamál.
Reynt er að veita allri fjölskyld-
unni meðferð þar sem barnið er í
forgrunni en báðir foreldrar koma
að samtalinu.
„Almennar rannsóknir sýna að
ef gripið er inn í á fyrstu þúsund
dögum barnsins, og hægt er að
ná upp meðferðarsambandi, þá
getum við vænst þess að það skili
góðum árangri. Það er hinsvegar
aldrei of seint að hefja meðferð,“
segir Gunnlaug.
Í teyminu er ólík reynsla sér-
fræðinga af líðan kvenna í barns-
eignarferli. Sérfræðingarnir, sem
allt eru konur, hafa sameinað
krafta sína í þróun þessa með-
ferðarúrræðis sem er með öllu
ókeypis, enda skilgreint sem þjón-
usta við börn.
„Það er álag fyrir barn að eiga
veika móður. Ef móðurinni líður
illa getur barnið legið baðað í
streituhormónum í móðurkviði.
Framleiðsla streituhormónanna
getur haldið áfram eftir að barnið
fæðist, ef það á í tilfinningalega
flóknu sambandi við móðurina.
Margar rannsóknir sýna að streita
hefur langtímaáhrif á heilsufar,
til dæmis svokölluð Ace-rannsókn
sem lengi hefur verið gerð lengi í
Bandaríkjunum. Hún sýnir bein
tengsl milli áfalla í frumbernsku
og heilsufars. Nú er hægt að tengja
streitu í frumbernsku við sykur-
sýki, offitu og hjartasjúkdóma.“
Gunnlaug telur þessvegna þjón-
ustuna vera ódýra og bráðnauð-
synlega forvörn til að sporna við
vandamálum í lífi barnsins.
Aðspurð um hvort hægt sé að
sjá einkenni á tilfinningalega
vanræktum ungbörnum, segir
Gunnlaug það stundum vera.
„Þau geta verið með svefnvanda,
óværð og næringarvanda. Algengt
er að foreldrar leiti á heilsugæslu-
stöðvar með þetta og þess vegna
skiptir miklu máli að þeir séu
teknir alvarlega. Að hlustað sé á
þá og þeir spurðir beint út hvernig
þeim líði, svo hægt sé að greina
hvað raunverulega liggi að baki.
Alvarlegustu tilfellin, sem eru afar
sjaldgæf, lýsa sér þannig að barnið
gefst upp á að eiga í samskiptum
og dregur sig alfarið í hlé. Það
er mjög óhugnanleg sjón. Öfga-
fyllstu dæmin sem upp hafa komið
í heiminum, þar sem börn hafa
verið algjörlega einangruð og svelt
á tilfinningaleg tengsl, sýna að
börnin þroskast mjög óeðlilega og
hegða sér í raun eins og dýr.“
Til að hjálpa mæðrum eða fjöl-
skyldum að mynda tengsl er boðið
upp á samtalsmeðferð í sérinn-
réttuðum hlýlegum herbergjum.
Samtölin eru oftast vikulega og
fara fram á gólfinu þar sem barnið
er í miðjunni. „Margir þeirra sem
til okkar koma upplifa barnið
sem aðskotahlut í lífi sínu, að það
sé krefjandi, jafnvel óþolandi.
Algengt er að móðirin nái ekki að
hugga barnið og finni sig ekki í
hlutverkinu. Oftast veit fólk sjálft
hvert vandamálið er, þegar það
kemur til okkar.“
En er hægt að hjálpa til dæmis
þunglyndri móður til þess að byrja
að elska barnið sitt?
„Já, í langflestum tilfellum er
það hægt. Það tekur mismunandi
langan tíma. Við veitum engin ráð
en reynum að spyrja spurninga og
sýna forvitni. Við reynum að lyfta
þörfum barnsins upp. Til dæmis
ef móðirin segist ekki þola barnið
sitt, þá spyrjum við hvað hún haldi
að barninu þyki um það? Vinnan
snýst því um að beina sjónum
móðurinnar að tjáningu barnsins
og gera hana meðvitaða um til-
finningalíf þess.“
Í hverju felast þá litlu sigrarnir
á leiðinni að tilfinningatengslum?
„Að sjá mömmu vaxa og átta sig
á að hún er mikilvæg og lífsnauð-
Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi segir ánægjulegast að sjá
mæður vaxa og átta sig á mikilvægi þeirra í lífi barnsins.
synleg fyrir barnið. Að hún
finni leiðir til að næra barnið
sitt tilfinningalega. Það er í
raun þannig að við sjáum ástar-
sambandið fæðast. Það er ótrú-
lega magnað að sjá þegar þær
verða ástfangnar af börnunum
sínum. Þegar þær eru komnar á
þann stað að geta brosað fram í
barnið sitt, fengið bros til baka
og sagt að þær elski það. Og
þegar við upplifum að mamm-
an sé fær um að setja þarfir
barnsins ofar sínum og tengjast
því tilfinningalegum böndum,
þá getum við farið að leggja
upp útskriftarplanið.“
Þeir sem vilja afla sér upp-
lýsinga eða leita sér hjálpar
hjá FMB-teyminu geta skoðað
heimasíðu Landspítalans.
|19FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
OR og dótturfyrirtækin Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur
kynna starfsemina, stöðu og horfur á opnum ársfundi í Iðnó mánudaginn
18. apríl kl. 14 –16.
Við höfum tekið til í rekstrinum, bætt fjárhaginn og breytt skipulaginu.
Nú eru þau þáttaskil að 2016 er fyrsta heila árið sem við störfum undir
nýjum merkjum og breytingar eru að verða í stjórn fyrirtækisins.
Á fundinum mun:
• Haraldur Flosi Tryggvason kveðja sem stjórnarformaður OR eftir sex ára setu.
• Brynhildur Davíðsdóttir taka við af Haraldi Flosa.
• Staðan hjá OR og dótturfélögum verða rakin af stjórnendum þeirra.
• Hljómsveitin Sjálfsvorkunn skemmta gestum. Sjálfsvorkunn skipa þeir
Haraldur Flosi, S. Björn Blöndal, Sigurjón Kjartansson, Hörður Bragason
og Jón Gnarr.
Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur
og dótturfélaga
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
10
81
Nánari upplýsingar um fundinn
er að finna á www.or.is
Allir eru velkomnir