Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 15.04.2016, Síða 20

Fréttatíminn - 15.04.2016, Síða 20
Í Fréttatímanum í dag er sagt frá aðferðum sem útgerðar-menn og fiskútflytjendur hafa notað til að skjóta hluta sölu- verðs sjávarafurða undan skatti, undan skiptum og undan gjald- eyrisskilum. Sumum kann að þykja þetta ekki mikil frétt. Í raun hefur það verið opinbert leyndarmál ára- tugum saman að fiskútflytjendur hafa skilið hluta söluverðsins eftir í útlöndum. Þeir hafa flutt eins lítinn gjaldeyri og mögulegt er heim í krónuhagkerfið. Þrátt fyrir að stjórnvöld og stærstur hluti al- mennings hafi vitað af þessum svikum hefur ekkert verið gert til að stöðva þau. Verðlagsstofa skiptaverðs er eftirlitsaðili með því að útgerðar- menn og fiskútflytjendur gefi upp rétt söluverð til skipta. Eins og flest önnur eftirlitskerfi á Íslandi er verð- lagsstofan undirmönnuð og fjár- svelt. Hún er sýndareftirlit og hefur í raun engum árangri skilað. En hvers konar samfélag er það, þar sem vitað er um umfangsmikil svik sem hefur mikil áhrif á efna- hagslega afkomu sjómanna og í raun landsmanna allra, en ekkert er að gert? Það er samfélag þar sem ríkis- valdið og eftirlitsstofnanir þjóna ekki hagsmunum almennings heldur sérhagsmunahópa. Samfé- lag þar sem stjórnmálin snúast ekki um hagsmuni almennings heldur um hagsmuni sérhagsmunahópa. Samfélag þar sem ríkisvaldið er í raun í höndum sérhagsmunahópa en ekki almennings. Samfélag eins og Ísland. Uppljóstranir Panama-skjalanna afhjúpa ekki aðeins að íslenskir stjórnmálamenn eru óhæf fífl, eins og danski hagfræðingurinn orðaði það, heldur að íslenskt samfélag er gegnspillt og hefur lengi verið. Panama-skjölin afhjúpa að vandi Íslendinga er ekki fáeinir spilltir einstaklingar sem eyðilögðu Ísland, eins og margir vildu sættast á eftir Hrun. Panama-skjöl draga fram hvernig auðfólk spilaði með bönk- unum til að komast undan skatt- skilum. Þau draga fram að á meðan notkun skattaskjólsfélaga var vandamál erlendis var hún viðtekin venja á Íslandi. Í kjölfar afhjúpana úr skjölunum hafa bæði dagblöðin, auk Viðskiptablaðsins, skrifað rit- stjórnarefni og haldið því fram að aflandsfélög séu góð og gegn hluti venjulegra viðskipta. Þetta er full- yrt þótt það sé almennt viðurkennt að um 80 prósent slíkra félaga séu stofnuð svo eigandi þeirra komist undan skattskilum. Það var ekki fyrr en eftir Hrun sem íslensk yfirvöld eyddu skatta- legu hagræði af aflandsfélögum, langt á eftir öðrum löndum. Þegar Panama-skjölin afhjúpa umfang þessara félaga á Íslandi er því síðan haldið fram að félögin séu í raun eðlileg. Í varnarræðum sínum hélt frá- farandi forsætisráðherra því fram að Tortóla væri ekki skattaskjól. Og að í raun væri Svíþjóð skattaskjól. Svona getur umræðan á Íslandi orðið galin. Hvítt skal vera svart og svart skal vera hvítt. Panama-skjölin afhjúpa hversu djúpstæð spilling hefur verið í íslensku stjórnmála- og við- skiptalífi. Í Fréttatímanum í dag er fjallað um hvernig fjármála- ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa kerfisbundið haldið aftur af skattaeftirliti, á sama hátt og haldið er aftur af Verðlagsstofu skiptaverðs. Þetta ætti engum að koma á óvart sem fylgst hefur með ís- lenskum stjórnmálum. Helsta bakland Sjálfstæðisflokksins var á síðustu öld heildsalar og út- gerðarmenn. Það var inngróið í viðskiptahætti heildsala að flytja vörur til Íslands á hærra verði en þær voru keyptar á og halda mismuninum eftir á erlendum reikningum. Á sama hátt var það vitað að fiskútflytjendur seldu á lægra verði en þeir endanlega fengu fyrir aflann. Mismunurinn varð eftir á Kýpur eða annars staðar. Það segir sig sjálft að stjórn- málaflokkur sem er pólitískur armur slíkra viðskiptahátta berst ekki gegn skattsvikum stórra aðila. Slíkur flokkur er í verkum sínum fylgjandi skattsvikum og andstæður skatteftirliti – eða eftirlitsiðnaðinum eins og for- ystumenn flokksins kölluðu það varnarkerfi almennings sem fólst í virku skatteftirliti. Það var þessi stefna Sjálfstæð- isflokksins sem gat af sér það viðskiptaumhverfi sem bjó til þjóðbraut skattaundanskota frá Íslandi til Karíbahafsins. Það var þessi sama stefna sem fékk nú- verandi fjármálaráðherra til að leggja fram almenn grið þeirra skattsvikara sem höfðu notað þessa þjóðbraut. Og það er í anda þessara stefnu sem Morgun- blaðið, sem er nú í eigu útgerð- arinnar eftir að heildsalarnir misstu blaðið, berst fyrir því að aflandsfélög séu viðurkennd sem góð og gegn — að hvítt sé svart og svart sé í raun hvítt. Gunnar Smári HVÍTT ER SVART OG SVART ER HVÍTT Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir 20 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.