Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 46
Nýjungar
hjá Veiðivon
Allt sem þarf til að takast á við urriðann,
laxinn og sjóbirtinginn
Allt er klárt fyrir veiðisumarið í Veiðivon, en verslunin hefur tekið heilmiklum breytingum og nýjar vörur
fyrir veiðina hafa bæst í hillurnar. Flugur frá Atlantic Flies og flugustöng frá Scott.
Myndir/Hari
Unnið í samstarfi við Veiðivon
Hjónin Eygló og Haukur í Veiðivon í Mörkinni 6 hafa löngum verið þekkt fyrir frábæra þjónustu við veiði-
menn. Á síðustu mánuðum hafa þau
verið að undirbúa sig fyrir veiðisum-
arið með heilmiklum breytingum
á versluninni og hafa þau tekið inn
nýjar vörur, þar á meðal hágæða
flugur frá Atlantic Flies og nýja flugu-
stöng sem valin var stöng ársins.
Í dag fagna þau með því að bera
veitingar á borð og bjóða veiðimönn-
um að hita sig upp fyrir veiðisumarið
með því að líta inn í verslunina og sjá
allt það nýja sem fyrir augu ber og
spjalla um veiðina.
„Okkur fannst tími til kominn að
hressa aðeins upp á búðina þar sem
við vorum að fá nýjar vörur inn og
við erum bjartsýn fyrir sumarið í
sumar,“ segir Haukur Jóhannesson,
annar eigenda verslunarinnar Veiði-
vonar sem hefur verið starfrækt í
Mörkinni 6 í ein 24 ár, allt frá árinu
1992. Haukur og eiginkona hans,
Eygló Kristinsdóttir, keyptu rekstur-
inn árið 1995 og hafa allt frá því
byggt þann orðstír að veita frábæra
þjónustu öll þessi ár sem þau hafa
staðið bak við búðarborðið.
Í Veiðivon fæst flest til stangveið-
innar ásamt hinum ýmsu smávörum
sem nýtast í skotveiði og almennri
útivist, en Haukur segir margt hafa
breyst á því 21 ári sem þau hjónin
hafa rekið verslunina. „Hér áður
fyrr seldum við töluvert meira af
kaststöngum, spúnum og þess
háttar en undanfarin ár hefur sala á
fluguveiðivarningi aukist töluvert og
þá sérstaklega á flugum. Þess vegna
ákváðum við að taka til sölu hágæða
flugur sem löngu eru orðnar þekktar
á Íslandi, frá fyrirtækinu Atlantic
Flies sem rekið er af íslenskum veiði-
manni, Jóni Inga Ágústssyni. En við
munum að sjálfsögðu halda áfram
að bjóða viðskiptavinum okkar upp á
spúna, sökkur og öngla þó við séum
að auka úrvalið af flugunum,“ segir
Haukur.
Meðal spennandi nýjunga í
Veiðivon er Meridan flugustöngin frá
Scott sem hefur unnið til verðlauna
erlendis, meðal annars sem besta
nýja flugustöngin. „Meridian er stöng
sem hönnuð er fyrir veiðar í sjó þar
sem aðstæður eru oft þannig að
fiskarnir eru stórir og sterkir og það
er oft talsvert rok. Það eru aðstæður
sem íslenskir veiðimenn kannast
við og þess vegna vildum við prófa
stöngina hér og í ljós kom að hún
hentaði alveg frábærlega í bæði lax
og sjóbirting. Við erum alveg hand-
viss um að stöngin muni reynast vel
í baráttunni við Þingvallaurriðann
í vor og nú höfum við líka fengið
til sölu í búðina til okkar flugurnar
sem hafa verið að reynast einna
best þar. Svo það má segja að nú fái
veiðimenn hjá okkur allt sem þeir
þurfa í Þingvallaurriðann, laxinn og
sjóbirtinginn.“
FAGNA BREYTINGUM OG
NÝJU VEIÐITÍMABILI Í DAG
Veiðivon býður veiðimönnum að kíkja við í dag, 15. apríl, milli klukkan
16 og 19, til að skoða búðina og nýju vörurnar, þiggja veitingar og fagna
breytingum og nýju veiðitímabili.
Margrét Ásta Guðjónsdóttir
er nýr leigutaki í Tungulæk
og veiddi sinn fyrsta
sjóbirting á dögunum
„Þetta var mjög skemmtilegt, jú
eigum við ekki að segja að ég sé
komin með bakteríuna. Sumarið
leggst alla vega vel í mig. Nú þarf
ég bara að dressa mig upp og þá er
þetta komið,“ segir Margrét Ásta
Guðjónsdóttir, sem veiddi sinn
fyrsta sjóbirting í Tungulæk á dög-
unum.
Veiði hófst í Tungulæk í byrjun
mánaðarins og veitt er fram til 20.
október. Fjórar stangir eru í vor-
veiðinni en þrjár yfir sumarið og
haustið. Aðeins er veitt á flugu og
fékk Margrét Ásta sinn á hvítan
nóbel. „Ég horfði á þetta og hélt
fyrst að þetta væri eyrnapinni,“
segir hún í léttum dúr.
Margrét og Valur Blomsterberg
eru nýir leigutakar Tungulækjar í
Landbroti en Tungulækur þykir í
hópi bestu sjóbirtingsáa á heims-
vísu. Veiðin hefur farið afar vel af
stað. Á miðvikudagskvöld höfðu
557 fiskar komið á land.
„Þetta er búin að vera mokveiði
og veðrið er búið að vera frábært.
Nema það barði aðeins á Frökkum
sem voru hérna opnunarhelgina.
Þeir voru samt hæstánægðir. Þeir
sem til þekkja eru hæstánægðir
með veiðina. Ætli þetta sé ekki
bara met?“ segir Margrét Ásta.
Margrét og Valur hafa breytt
veiðihúsinu í gistiheimili þar sem
ferðamenn, veiðimenn og aðrir,
geta pantað sér gistingu. Þá hafa
þau einnig leigt eldisstöðina við
Hæðarlæk þar sem ræktuð er
bleikja til manneldis.
Er allt uppbókað í Tungulækinn?
„Nei, það er enn hægt að ná í leyfi.
Ég veit að það hefur marga dreymt
um að komast í Lækinn og nú er
tækifæri til þess.“
Margrét titlar sjálfa sig bústýru
í Tungulæk og kann vel við sig í
þessu nýja hlutverki. „Ég var að
klára Landbúnaðarháskólann, fór
úr reiðmanninum í veiðmanninn.
Þetta er skemmtilegt. Þegar börnin
eru flogin úr hreiðrinu getur maður
leyft sér að sprikla aðeins.“ | hdm
Margrét Ásta Guðjóns-
dóttir með vænan
sjóbirting sem hún
landaði í Tungulæk á
dögunum.
Mokveiði í
Tungulæk
„Þetta er búin að vera
mokveiði og veðrið er
búið að vera frábært.
Nema það barði aðeins á
Frökkum sem voru hérna
opnunarhelgina. Þeir
voru samt hæstánægðir.
46 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Kynningar | Veiði AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is