Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 68

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 68
Mynd | Hari Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ég kom til Íslands í fyrsta sinn þann 1. mars árið 2000 því það var svo slæmt atvinnu-ástand í Póllandi. Vin-kona mín var að vinna í fiski hér svo ég ákvað að koma og prófa. Síðan eru liðin sextán ár og hér er ég enn!“ „Eftir sjö mánuði í fiskvinnsl- unni ákvað ég að fara heim og sækja börnin mín tvö og koma mér fyrir hér. Það var erfiðara fyrir dóttur mína en soninn að flytja því hún var mikill náms- hestur í Póllandi, átti góðar vin- konur og vildi ekki breyta til. Ég lofaði henni því að ef þetta væri ennþá erfitt eftir eitt ár þá mynd- um við flytja aftur til baka. Eftir árið var hún búin að læra íslensku og eignast vini og vildi ekki flytja til baka. Hún býr hér enn í dag, er orðin þrítug og á tvö börn. Sonur minn á líka tvö börn og býr líka enn á Íslandi.“ Árið 2004 stofnaði Ewa fyrir- tækið Kjötpól með fyrrverandi eiginmanni sínum og árið 2011 kjötverslunina Pylsumeistarann við Laugalæk. „Sigurður er kjötiðnaðarmaður og mér finnst gaman að selja svo þetta passar allt mjög vel. Mig langaði svo að bjóða upp á kjöt- vöru sem væri ekki pökkuð inn í plast, eins og ég er vön frá Pól- landi. Fyrstu vörurnar okkar voru Bratwurst grillpylsa og Krakow lúxus-skinka og síðan höfum við stöðugt verið að bæta við úrvali, erum til dæmis með Metwurst, sem er kæfa, og snakkpylsur úr hreinu kjöti sem er miklu betra en sykurnammi fyrir krakka. Annars er beikonið alltaf langvin- sælast hjá okkur.“ „Ég á aldrei eftir að flytja aftur til Póllands því hér á ég börn, barnabörn og systkini. Mamma var ein eftir í Póllandi en þegar hún varð blind fyrir fimm árum kom hún hingað til okkar og býr í dag með systur minni,“ segir Ewa sem saknar einna helst vorsins í Póllandi. „Ég sakna þess að sjá blómin springa út og finna smá hita. Svo sakna ég líka tungumáls- ins, því ég get ekki sagt allt sem ég vil á íslensku.“ „Það sem er svo gott við Ísland er hvað hér er allt svo einfalt. Hér tekur allt svo stuttan tíma en í Póllandi getur tekið heilan dag að fara í banka. Hér eru líka allir svo vinalegir og þolinmóðir við mig þegar ég tala ekki fullkomna íslensku. Mér finnst Ísland vera landið mitt.“ 68 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016 „Það sem er svo gott við Ísland er hvað hér er allt svo einfalt. Hér tekur allt svo stuttan tíma en í Póllandi getur tekið heilan dag að fara í banka.“ Steypireyður er stærsta dýr jarðarinnar, 30 metrar á lengd og 170 tonn. Þrátt fyrir gríðarlega stærð er uppistaða fæðu þeirra agnarsmáu krabbadýrin ljósáta. Meðal steypireyður getur innbyrt um fjögur tonn af ljósátu á dag. Steypireyðurin er einnig háværasta dýr jarðar, þó svo við heyrum ekki til hennar vegna lágrar tíðni. Hún heyrir hljóð í 1.600 km fjarlægð. Þar sem steypireyður er spen- dýr kemur hún upp til að anda einu sinni og heldur aftur í undirdjúpin í allt að 90 mínútur. Til þess að drukkna ekki í svefni sefur aðeins helmingur heilans meðan hinn man eftir því að anda. „Það er stórkostleg upplifun að sjá steypireyði, sérstaklega í fyrsta skiptið. Skepnan er gríðar- lega stór og þung, á borð við Boeing 747 flugvél. Hún leynir á sér þar sem aðeins lítill hluti sést á yfirborðinu og því fylgir henni mikil dulúð. Hún getur síðan blásið vatni 15 metra upp í loftið, því má segja að öll upp- lifunin sé mikilfengleg.“ Gústaf Gústafsson „Fyrsta skiptið sem ég sá steypi- reyði var ég leiðsögumaður í hvalaskoðun. Ég öskraði hálf- partinn í míkrafóninn, ég var svo hissa. Ég man þó helst eftir einu skipti þegar sjórinn var alveg tær og steypireyðurin sér- staklega gæf og synti meðfram bátnum. Þá sá ég hversu gríðar- lega, gríðarlega stór hún er, það var ólýsanleg upplifun.“ Sigrún Björg Aðalsteinsdóttir Tölum um steypireyði Mikilfenglega spendýrið með tungu sem vegur á við fíl og hjarta á við bíl Þyngdin á við 2.667 sjötíu kílóa menn Tungan ein er jafn þung og fíll Hjartað er jafn þungt Volkswagen bjalla og slær 5 sinnum á mínútu Barn getur gengið um stærstu æðarnar Hvernig er að sjá steypireyði? 100 manns komast fyrir í kjaftinum Lengdin er sú sama og körfuboltavöllur Innflytjandinn Ewa Kromer: Ísland er landið mitt Sumargjöfin fæst í Safnbúðinni Forvitnir ferðalangar, valkyrjur og víkingar Mikið úrval af vönduðum miðalda- og víkingabúningum og leikföngum. Föndraðu fugla 1.995 kr. Sólúr 1.550 kr. Togarahöfn í tinboxi 2.550 kr. Smásjá 1.995 kr. Njósnapenni 850 kr. Lærðu að binda hnúta 1.550 kr. Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · Sími 530 2203 · thjodminjasafn.is Opið alla daga vikunnar 10–17 (frá 1. mai) „Ég á aldrei eftir að flytja til Póllands,,“ segir Ewa. Stórsöngvarinn Björgvin Halldórs- son segist hafa orðið fyrir áhrifum Krumma, sonar síns, og kærustu hans, Linneu Hellström, í matar- gerð. Þau eru bæði vegan og Lin- nea hefur vakið mikla athygli fyrir vegan-matinn sem hún reiðir fram á kaffihúsinu Vínyl á Hverfisgötu. Fyrir þá sem ekki þekkja hugtakið er vegan-matur úr hráefni sem ekki kemur úr dýraríkinu. „Þau eru róttæk og ganga alla leið. Konan mín borðaði ekki kjöt í mörg ár og hefur aðhyllst holla fæðu um árabil. Ég er hinsvegar að fikra mig áfram í þessu. Ég er svo mikill dýravinur, ég á marga ketti og má ekkert aumt sjá. Það er auðvitað algjört „dílemma“ að setja svo dýr á grillið! Það er nú það sem truflar mig. Mér finnst ég ekki vera samkvæmur sjálfum mér þegar ég borða dýr.“ Bó segir að fjölskylduboðin hafi að undanförnu haft nýstár- legri blæ yfir sér og um jólin og páskana hafi ekki þýtt að bjóða upp á mat úr dýraríknu. „Það var auð- vitað ekki hægt að vera með nauta- steik, þegar Krummi og Linnea voru í mat. Svo hún bjó til ofsalega góðan mat og ég svona handlang- aði og reyndi að hjálpa til. Ég er að reyna að hugsa meira um það sem ég set ofan í mig og um umhverfið, borða minna kjöt og meira af græn- meti. Framtíðarspár segja að um- hverfisins vegna verðum við öll að vera vegan eftir um það bil fimmtíu ár.“ En hvað með sjálfan Bó-hamborgar- ann sem nefndur er eftir Björgvin og fæst á Hamborgarafabrikkunni? „Já, hamborgari er hamborgari. Ég fæ mér þá svona við og við líka. Ég er nokkuð stoltur af þessum hamborgara og bjó hann til sjálfur í eldhúsinu heima hjá mér. Ég geri þessar breytingar bara skref fyrir skref og fer mér hægt, en stefnan er á vegan með tímanum.“ Bó gefur gó á vegan Bó Hall sleppti því að borða kjöt um jól og páska og fékk sér heldur vegan-mat. Hann er svo mikill dýravinur að það er farið að angra hann að setja dýr á grillið. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.