Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 74
Arnold Björnsson ljós-
myndari stundar hjólreiðar
af kappi og hefur hjólað yfir
3000 kílómetra það sem af
er ári
„Þetta byrjaði allt með því að ég ætl-
aði bara að missa nokkur kíló, ég
hef að vísu alltaf verið mikill áhuga-
maður um hjólreiðar og fylgst vel
með hjólreiðakeppnum í gegnum
tíðina,“ segir Arnold Björnsson ljós-
myndari sem stundað hefur hjól-
reiðar af kappi síðastliðin þrjú ár.
Arnold hefur mikla ástríðu fyrir
sportinu og tekur glæsilegar myndir
fyrir tímaritið Pedala, íslenskt tíma-
rit sem einblínir á hjólreiðar.
Arnold er búinn að hjóla yfir
3000 kílómetra það sem af er ári og
hjólar að meðaltali 200 kílómetra
á viku. „Þetta er svo skemmtileg
hreyfing, þú kemst í form og það er
fátt eins gaman og að hjóla á mikilli
ferð á góðu hjóli,“ segir Arnold sem
hjólar allan ársins hring.
Að sögn Arnolds þarf alls ekki að
vera dýrt að byrja að stunda hjólreið-
ar sem líkamsrækt. „Það er hægt að
fá mjög fín notuð hjól á sanngjörnu
verði, svo þarftu skó, hjálm og
smellu pedala og þá ættir þú að vera
klár í slaginn. Að mínu mati er líka
nauðsynlegt að vera í góðum hjóla-
galla af því þeir taka ekki á sig vind.
Víðar úlpur virka eins og segl, þær
hægja á þér og eyða orku.“
Aðspurður segir Arnold brattar
brekkur ekki verða auðveldari með
æfingunni. „Svo ég vitni í Greg Le-
Mond: Þetta hættir aldrei að vera
erfitt, þú ferð bara hraðar.“
Hjólar 200 kílómetra á viku
Arnold Björnsson hjólar að meðaltali 200 kílómetra á viku.
Arnold tekur glæsilegar
hjólreiðamyndir fyrir tímaritið
Pedala.
„Það er fátt
eins gaman
og að hjóla á
mikilli ferð á
góðu hjóli.“
ROUBAIX SL4
Verð: 309.990 kr.
HJÓLIÐ HANS
Meiri hraði, minni þreyta og meiri ferskleiki hvort sem þú ætlar að skjótast austur fyrir
fjall eða niður í bæ. Roubaix er hannað til að auka þægindi í lengri hjólaferðum á grófu
malbiki og hörðu undirlagi með FACT carbon 8r stelli og zertz eiginleika.
DOLCE EVO
Verð: 239.990 kr.
HJÓLIÐ HENNAR
Sérhannað fyrir konur eins og þig sem láta ekkert stoppa sig, hvort sem þú vilt komast
hratt eða njóta útiverunnar mjúklega allan ársins hring. Alvöru hjól með Shimano
Tiagra skiptingum, diskabremsum, E5 álramma og koltrefjagaffli.
Kría hjól ehf // Grandagarði 7 // 101 Reykjavík // S: 534 9164 // kriahjol.is
2 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016
Hjól