Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 78

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 78
Mynd | Hari Hjólakonan María Ögn veit betur en flestir hvað þarf til að ná árangri í sportinu „Ef þú vilt raunverulega ná mark- miði þínu sem þú hugsaðir hér í upphafi, þá þarf vélin, sem er skrokkurinn á þér, að ganga á góðu bensíni. Það að huga að mat- aræði, svefni, teygjum, æfinga- hvíld og öðrum hliðarþáttum þjálf- unar er „aukaæfingin sem skapar meistarann!“ en ekki endilega það að hjóla fleiri kílómetra og æfa meira,“ segir María Ögn Guð- mundsdóttir, hjólakona og hjóla- þjálfari. María heldur úti heimasíð- unni www.hjolathjalfun.is þar sem hún býður upp á ýmisskonar nám- skeið, þjálfun, fræðslu, fyrirlestra og hópefli sem snúa að hjólreiðum, næringu og ýmisskonar þjálfun. Hún leggur hér til átta góð ráð fyrir hjólafólk um næringu. 1 Drekktu vatn á hverjum degi. Minni líkur verða á því að fá krampa og líkaminn fyrirgefur þér frekar ef þú drekkur til dæmis ekki nóg á æfingu eða eftir æfingu því hann er í jafnvægi. 2 Hugaðu að næringahlutföll-unum í mataræðinu yfir dag-inn, þú þarft prótein, kolvetni og fitu. Ekki flækja málin og fara á sér fæði sem þú þarft að hugsa of mikið. Oft er máltíð líka bara „fóð- ur“ þú þarft að næra þig, það þarf ekki að fara eftir agalegri uppskrift til að gera þetta rétt, borðaðu það sem er gott fyrir skrokkinn þinn. 3 Skelltu í þig rauðrófusafa á hverjum degi, á morgnana eða 2 tímum fyrir æfingu. Jú, hann bragðast mögulega í fyrstu eins og mold en hann venst og hann er góður fyrir þig. Við sækjumst eftir nítratinu í rauðrófusafanum og rauðrófur eru náttúrulegur nítrat- gjafi. Nítrat hefur æðavíkkandi áhrif, eykur blóðstreymi og þar af leiðandi veldur hraðari súrefnis- flutningi sem hjálpar þér á æfing- unni sjálfri og einnig til að hreinsa út þau eiturefni og mjólkursýruna sem koma í vöðvana við álag. 4 Fáðu þér magnesíum fyrir svefninn, ekki endilega á hverjum degi en sérstaklega þegar æfingamagnið er meira. Magnesíum er steinefni og er und- ur ef þú finnur til þreytu í vöðvum, fótapirringi eða átt það til að fá sinadrátt eða krampa á æfingum. 5 Bættu túrmerik dufti eða túrmerikrót út í drykkinn þinn eftir erfiðar æfingar. Túrmerik er náttúrulegt bólgulyf. Ekki taka það á hverjum degi, bara hæfilega reglulega og þegar mikið gengur á í æfingum og keppni. 6 Farðu aldrei af stað án þess að vera með einhverja orku í bakvasanum á treyjunni þinni. Alltaf gott að hafa gelbréf, orkustykki eða hnetur-möndlur- þurrkuð trönuber blandað í poka, þetta gefur þér orku. Ef þú ert að fara langt eða ekki búinn að borða nóg síðustu klukkustundir fyrir æfinguna þá er gott að taka með sér til dæmis banana sem auð- melta fyllingu og er ríkur af kalí- um sem kemur í veg fyrir krampa. 7 Ekki vera bara með vatn á æfingu, þú vilt vera með drykk sem bætir upp þau efni sem eyðast úr líkamanum og hjálpa þér að gera æfinguna betur. Ekki venja þig á koffein orkudrykki að jafnaði. Notaðu þá heldur þegar þess þarf á æfingum eða í keppni. 8 Æfingin er ekki búin fyrir skrokkinn þegar þú ert bú-inn með hjólatúrinn. Strax eftir æfingu þurfum við að fylla á tankinn með amínósýrum, steinefnum, orku og próteinum, svo líkaminn geti byrjað að gera við sig og unnið úr æfingunni á bestan hátt. 8 ráð um næringu hjólreiðafólks Maríar Ögn Guðmundsdóttir, hjólakona og hjólaþjálfari. 6 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016 Hjól Í samvinnu við Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga Hvert sem leið þín liggur Margnota hlífðarhúð Með sjálflímandi yfirborði. Hægt að sníða eftir þörfum, þvo og nota aftur og aftur. Klædd tábergshlíf Mjúkur gelpúði hlífir táberginu gegn álagi og núningi. Þunnar til hliðanna en þykkari fremst til að taka við álagi. Gelhlíf fyrir hæl Frábær margnota vörn gegn hælsæri. Mjúkur gelpúði hlífir hæl og hásin. Liðhlíf fyrir litlutá Liggur þétt við fótinn og hlífir gegn núningi frá skófatnaði. Gelhettur fyrir tær Heelen er stór íslensk vörulína sem býður uppá einfaldar lausnir við algengum fótavandamálum. Heelen vörurnar má allar þvo og nota aftur og aftur, þær taka ekki óþarfa pláss í skófatnaði, eru afar einfaldar í notkun og koma með góðum íslenskum leiðbeiningum. Ekki þjást að óþörfu, taktu Heelen með í ferðalagið og njóttu dagsins. Fæst í apótekum og Flexor stoðtækjaverslun. Allt fyrir hjólreiðarnar!

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.