Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 80
Það þýðir ekki að fara út
að hjóla í gömlum jogg-
inggalla – það þarf að
dressa sig upp
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Hjólreiðar eru græjusport, í það
minnst ef ekki er bara verið að
hjóla í og úr vinnu á borgar-
hjóli. Það er endalaust hægt að
uppfæra gíra, gjarðir og gaffla.
En það sem margir ættu helst
að uppfæra er fataskápurinn.
Hann er mikilvæg leið til að
bæði komast hraðar og líða
betur á hjólinu. Svo er það ótt-
inn við hið aðsniðna. Spandex,
lycra og hvað þetta allt heitir
er ekki fyrir alla. En fyrr eða
síðar, eigi að hjóla langt og
hratt, verða allir að koma út úr
skápnum – spandex-skápnum.
Til að flækja svo fatakaupin
eru til reglur. Alvöru reglur
útgefnar á bók. Velominati-regl-
urnar leiðbeina hinum óinn-
vígða inn í heim þeirra útvöldu.
Sé þeim fylgt eftir. Reglu #5 eiga
allir að þekkja og fylgja í hví-
vetna. Hún hefur reyndar ekk-
ert með föt að gera en sé
farið er eftir henni skipta
þau heldur ekki máli.
Hnakkar á alvöru
hjólum eru ekki neinir
hægindastólar. Hér á
regla #5 ágætlega við
en fyrstu fatakaup eru
þó yfirleitt púðabux-
ur. Bleyjulaga púðinn
verndar rumpinn svo
mögulegt sé að sitja
á þessum píningar-
tækjum. Regla #14
segir okkur svo að téðar
stuttbuxur eigi alltaf að vera
svartar.
Reyndar er hjálmur auðvitað
alltaf fyrstu kaup hvers alvöru
hjólreiðamanns. Þeir sem ætla
að hjóla á götunni á hinum sí
vinsælu racer-hjólum hafa í
huga að samkvæmt reglu #35
má ekki hafa der á hjálminum.
Svo eru það liðstreyjur. Regla
#17 segir okkur að þær séu fyrir
þá sem eru í liðinu. Bannað að
vera „full kit wanker“. Enda
kennir regla #18 okkur að vita
hverju skal klæðast og þjást
ekki af búningaruglingi. Þannig
að best er að fara milliveginn í
níðþröngum treyjunum og eins
og segir í reglu #27, sokkar og
stuttbuxur eiga að vera eins og
Gullbrá.
Finnist fólki erfitt að fylgja
öllum þessum reglum má líta á
þá #28 sem
vin í eyði-
mörkinni en
hún fjallar um
sokka og að
þeir mega vera
í hvað djöfuls
lit sem er.
Eins og öllu
yfirvaldi er þeim
sem semja regl-
urnar umhugað
um borgarana.
Þess vegna eru þar
nokkrar reglur um
notkun hlífðargler-
augna. Regla #36 biður þó um
að þau séu sérstaklega gerð fyr-
ir hjólreiðar, #37 fer út í hvernig
spangirnar skulu alltaf vera
utan yfir böndin á hjálminum
og loks er það svo gullna reglan
fyrir þá sem hugsa um augun
í sér, regla #39: Aldrei hjóla án
gleraugna.
Reglurnar ná reyndar víðar
en um fatnaðinn. Útlitið verður
líka að vera í lagi, eins og
regla #7 sem fjallar um, að sól-
brúnkulínur skulu vera rækt-
aðar og skarpar eins og rakblað.
Hipsterar og aðrir letingjar
skulu snyrta andlitshár sitt sam-
kvæmt #50, já og ljúkum þess-
ari yfirhalningu á einni mikil-
vægustu reglunni í hjólreiðum
og lífinu sjálfu. Hún er #43: Ekki
vera fáviti!
Fyrir þá sem nenna ekki að
lesa reglurnar má finna gamlar
myndir af Eddie Merckx. Hann
var með þetta, eins og sést á
svörtum buxunum, þótt treyjan
sé gul, svo ekki sé minnst á sól-
brúnkulínurnar.
Fötin skapa manninn
– ef farið er eftir reglum
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
NJÓTTU HJÓLATÚRSINS
Hjá Fastus finnur þú mikið úrval af stuðningshlífum
og öðrum vörum sem nýtast vel í útivistinni.
8 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016
Hjól