Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 88
Unnið í samstarfi við KIA Gullhringinn
KIA Gullhringurinn hefur á fáum árum orðið ein vinsælasta hjólreiðakeppni landsins, fyrsta keppnin var haldin árið 2012 og hefur keppnin síðan vaxið með
hjólreiðarsportinu. Fyrsta árið voru um 100
keppendur, í fyrra voru þeir í kringum 700 og í
ár er markmið okkar að fá 800 þátttakendur,“
segir María Ögn Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri KIA Gullhringsins 2016.
KIA Gullhringurinn er haldinn á Laugarvatni
og hjólað er um margar þekktustu náttúruperlur
Íslands. Keppnin verður haldin þann 9. júlí
næstkomandi og verða keppendur ræstir af
stað klukkan 18 og hjóla inn í kvöldið. Hver og
einn getur valið sér vegalengd eftir getu en um
þrjú mismunandi keppnisstig er að ræða. Hægt
er að hjóla 106 kílómetra, 65 kílómetra og 48
kílómetra.
„Einkunnarorð KIA Gullhringsins eru allir
hjóla, allir vinna og allir velkomnir. Hugmyndin
með KIA Gullhringnum er einfaldlega að fá
allskonar fólk, með allskonar markmið þannig
að það verða rosalega margir sigrar,“ segir María
Ögn. „Margir þátttakendur eru að prófa að hjóla
í fyrsta skipti lengra en þeir eru vanir og margir
eru að prófa sína fyrstu götuhjólakeppni.“
Að sögn Maríu Agnar er ekki bara um
hjólareiðakeppni að ræða heldur stóran við-
burð. „Það er ekki bara hjólað og svo farið
heim. Margir taka helgina frá, tjalda og taka
virkan þátt, sama hvort þeir eru keppendur eða
áhorfendur. Að lokinni keppni er svo haldið
veglegt grillpartí og dansað undir berum himni.
Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt, sama hvort
þú ert að hjóla eða ekki.“
Eftir að keppendur koma í mark stendur þeim
til boða að hvíla lúin bein í Fontana laugunum.
„Einnig fá allir skráðir þátttakendur veglega
pakka með vörum og öðru frá styrktaraðilum
okkar,“ segir María Ögn.
Nánari upplýsingar um KIA Gullhringinn má
finna á kiagullhringurinn.is
Hjólað umhverfis þekktar náttúruperlur
KIA Gullhringurinn er ein vinsælasta hjólreiðakeppni landsins og búist er við 800 þátttakendum í ár
„Það er ekki bara hjólað og svo farið heim. Margir taka helgina frá, tjalda og taka virkan þátt,
sama hvort þeir eru keppendur eða áhorfendur,“ segir María Ögn um KIA Gullhringinn.
Unnið í samstarfi við Vistor
Benecta Sport™ er fæðu-bótarefni sem er sérþróað fyrir íþróttafólk með það að markmiði að stuðla að
auknu úthaldi við æfingar. Jafn-
framt styður Benecta Sport™
við náttúrulega viðgerðarferla í
líkamanum, hjálpar til við bólguúr-
vinnslu og flýtir fyrir endurheimt
eftir æfingar.
Hvernig virkar Benecta Sport?
Benecta Sport™ inniheldur sykrunga
(kítínfásykrur) sem unnir eru úr
rækjuskel. Þessir sykrungar bindast
bólgupróteinum sem myndast við
vöðvaáreynslu og stuðla að viðgerð
og endurheimt í vöðvum og gerir þá
hæfari í næstu átök.
Inntaka á Benecta Sport 30-60
mínútum fyrir æfingar:
• Getur hámarkað afköst og dregið
úr álagi
• Getur flýtt fyrir árangri
• Styður við uppbyggingu vefja
• Flýtir endurheimt í vöðvum
• Auðveldar sprengikraftsæfingar
Benecta Sport hjálpar meðal
annars vöðvum að nýta fitusýrur í
stað glúkósa við æfingar:
– það dregur úr mjólkursýrumynd-
un og kemur í veg fyrir að gengið sé
of hratt á glýkógenbirgðir vöðvanna.
Notkun Benecta Sport
Benecta Sport er ætlað fullorðnum,
18 ára og eldri.
Skammtar: Taka skal 1-2 hylki 30-60
mínútum fyrir æfingu. Ekki skal taka
meira en 2 hylki daglega því of stór
skammtur getur dregið úr virkni.
Íþróttamönnum gæti gagnast að
taka Benecta Sport daglega, þ.e.
einnig á þeim dögum sem ekki eru
stundaðar æfingar, því það styrkir
bandvefi og getur dregið úr bólgum
eftir álag og meiðsli.
Benecta er ekki ætlað þunguðum
konum eða einstaklingum með skel-
fiskofnæmi.
Rannsóknir og þróunarvinna
Benecta Sport™ er fram-
leitt af íslenska líftækni-
fyrirtækinu Genís. Mikil
þróunarvinna og áralangar
rannsóknir liggja að baki
vörunni sem byggir á sér-
hæfðri þekkingu tengdri
framleiðslu á lyfjum, fæðu-
bótarefnum og lækninga-
tækjum úr rækjuskel. Þróun
Benecta Sport™ hefur
staðið yfir undanfarinn ára-
tug í samstarfi við íslenska
og erlenda vísindamenn.
Upplýsingar um innihaldsefni
Hvert hylki inniheldur 300 mg af
kítínfásykrum sem unnar eru úr
rækjuskel. Kítinfásykrublandan er
einkaleyfisvarin. Engin aukaefni eru í
Benecta Sport™.
Íslenskt fæðubótarefni
sérþróað fyrir íþróttafólk
Benecta Sport er nýtt íslenskt fæðubótarefni sem unnið er úr rækjuskel og er sérþróað fyrir íþróttafólk.
Benecta Sport getur stuðlað að viðgerð og endurheimt í vöðvum sem gerir þá hæfari í næstu átök.
Bólga er náttúrulegur og nauðsynlegur fylgikvilli vefjaskaða.
Þegar bólgan hefur unnið sína vinnu tekur við annað ferli sem er
kallað bólguúrvinnsla (Resolution). Þetta ferli stýrir hjöðnun bólgu
og styður við vefjanýmyndun.
Mikil þróunarvinna og áralangar rannsóknir liggja að baki vörunni sem
byggir á sérhæfðri þekkingu tengdri framleiðslu á lyfjum,
fæðubótarefnum og lækningatækjum úr rækjuskel.
16 | fréttatíminn | HELGIN 15. AprÍL–17. AprÍL 2016
Kynningar | Hjól