Berklavörn - 01.06.1945, Qupperneq 27
VÉLSMIÐAVERKSTÆÐI
Ljósm. F. Clausen.
skorið. Framtíðin hlaut að verða dómar-
inn.
Reksturinn.
Vinnuheimilið að Reykjalundi hóf rekst-
ur sinn 8 mánuðum eftir að forseti S. í.
B. S. tók fyrstu skóflustunguna úr grunni
fyrsta húss staðarins. Á þessum 8 mán-
uðum hafði mikið verið gert, en fiöl-
margt var það þó, sem staðinn vantaði
í byrjun. Aðbúnaður var að ýmsu leyti
ekki eins fullkominn eins og forráðamenn
S. í. B. S. höfðu óskað eftir, en þorðu þó
að taka svo snemma til starfa vegna þess,
að þeir vistmenn, sem þarna komu til
dvalar, voru sjálfir meðlimir þess félags-
skapar, sem var að byggja upp þennan
stað, þeir höfðu margir hverjir verið virk-
ir þátttakendur í félagslífi S. í. B. S. og
framkvæmdum þess í Vinnuheimilismál-
inu, sumir frá upphafi, aðrir skemmri
tíma. Þessir menn skyldu ástæðuna fyrir
því að margt vantaði og skyldu áhuga
okkar fyrir því að byrja starfsemina eins
fljótt og unnt var.
Húsin voru að vísu tilbúin, en húsmuni
vantaði í sum þeirra. Það var því ekki um
annað að ræða fyrir suma vistmennina
en að standa uppréttir eða liggja í rúmum
sínum. En þeir vissu, að allt stóð til bóta
og tóku því ágöllunum með þolinmæði eða
góðlátlegu gríni. Húsin voru mjög björt
og vistleg með stórum gluggum, en her-
mannaskálar og steinveggir byrgðu gjör-
samlega útsýnið úr sumum gluggunum.
S. í. B. S. hafði ekki tekizt að fá þessum
setuliðseignum rýmt burt af landi sinu,
BERKLAVORN
11