Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 4
4.og 5. maí. Brjóstnámið er sýnt í
beinni útsendingu á ráðstefnunni
RRS Iceland, sem fer fram í gamla
skemmtistaðnum Broadway sem
hefur verið breytt í heilsumiðstöð
og skurðstofur af fyrirtækinu Eva
Consortium.
Ein af hverjum ellefu konum fær
brjóstakrabbamein á ævinni. Það á
þó ekki við um konur með arfgengt
gen sem veldur brjóstakrabba-
meini, BRCA1 . BRCA2. 80% þeirra
mega búast við því að greinast með
brjóstakrabba. Á annað þúsund
konur á Íslandi eru með þetta gen.
Aðalviðfangsefni ráðstefnunn-
ar er hvernig hægt sé að minnka
áhættu þessara kvenna með fyrir-
byggjandi brjóstnámi.
Kristján Skúli Ármannsson
brjóstaskurðlæknir segir að ráð-
stefnan snúist um að fá hingað
helstu sérfræðinga í þessum fræð-
um. „Það er orðin svo mikil eftir-
spurn eftir þessum aðgerðum að
brjóstaskurðlæknar þurfa helst að
sérhæfa sig í þeim,” segir Kristján.
Hann segir að framfarirnar svo
miklar að konurnar geti útskrifast
daginn eftir aðgerð með ný brjóst.“
Aðgerðin sjálf kostar um eina
og hálfa milljón. Sjúkratryggingar
greiða hana ekki en slíkar aðgerðir
eru framkvæmdar á Landspítalan-
um. Þangað komast þó mun færri
en vilja. Konur í áhættuhópi sem
ekki vilja bíða geta því reitt fram
peningana sjálfar og komist í að-
gerð í Ármúla. Konurnar sem lögð-
ust undir hnífinn á ráðstefnunni,
eru báðar á fimmtugsaldri og í
áhættuhópi. Þær fengu aðgerðina
sér að kostnaðarlausu.
Hallbera Guðný Gísladóttir,
landsliðskona í fótbolta.
Hún fær Hyundai en hann fær Porsche
Landsliðskonan Hallbera
Guðný Gísladóttir vill
að Pepsi-deild kvenna
verði veitt miklu meiri
athygli.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Lítill frændi minn spurði mig í
einlægni hvers vegna Gylfi Sigurðs-
son ætti Porche en ég bara gamla
Hyundai druslu, við værum bæði í
landsliði í fótbolta. Hann skildi ekki
muninn á okkur. Ég svaraði að
það væri vegna þess að ég er
stelpa,“ segir Hallbera Guðný
Gísladóttir, landsliðskona í
fótbolta og leikmaður Breiða-
bliks, í samtali við Fréttatím-
ann.
Facebook-pistill hennar um
áhugaleysi fjölmiðla á efstu
deild kvenna í íþróttinni hef-
ur vakið gríðarlega sterk viðbrögð
og verið deilt mörg hundruð sinn-
um. Hallbera segist hafa pirrað sig
mikið á því að umfjöllun og upphit-
un fyrir Pepsi-deild karla hafi staðið
yfir í heilan mánuð. „En stundum
er eins og kvennadeildin sé ekki til.
Kvennaboltinn er á hraðri uppleið
og líklega hefur deildin aldrei verið
sterkari en nú. Fjögur eða fimm lið
gera tilkall til Íslandsmeistaratitils
og það hefur aldrei gerst áður. Fjöl-
margar stelpur eru að snúa heim úr
atvinnumennsku til að spila. Mér
finnst að það mætti gera meira úr
þessu, kynna deildina vel og veita
henni meiri umfjöllun. Áhuginn
mun fylgja, jafnvel þó það taki eitt
til tvö ár.“ Hallbera spyr hvernig
fólk eigi að fá áhuga á kvennafót-
bolta ef fjölmiðlar fjalla ekki um
hann?
„Mér finnst ungar stelpur ekki
fá að fylgjast með fyrirmyndunum
sínum á sama hátt og strákar. Þeir
hafa miklu meira aðgengi að sínum
fyrirmyndum í gegnum fjölmiðla
og sjónvarp. Á meðan við erum í
felum á bak við. Þetta gengur ekki
lengur.“
Brjóstnám í beinni á
ráðstefnu í Ármúla
Kristján Skúli Ármannsson brjósta-
skurðlæknir segir framfarirnar svo
miklar að konurnar geti útskrifast dag-
inn eftir aðgerð með ný brjóst.”
Tvær konur í áhættuhópi
fyrir brjóstakrabbamein
láta fjarlægja á sér brjóstin
í beinni útsendingu á
vísindaráðstefnu sem
einkarekna skurðstofan,
Klíníkin stendur fyrir.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Fjöldi brjóstakrabbameinslækna
og annarra ráðstefnugesta fylgist
með tveimur íslenskum konum
leggjast undir hnífinn og láta fjar-
lægja á sér brjóstin í forvarnar-
skyni á alþjóðlegri ráðstefnu sem
haldin er í Klíníkinni við Ármúla,
Heilbrigðismál Brjóstnám kostar um eina og hálfa milljón á einkaklíník
Á gráu svæði
Ástríður Stefáns-
dóttir siðfræð-
ingur segir þekkt
að skurðað-
gerðir séu gerðar
fyrir áhorfendur
á vísindaráð-
stefnum. Það þurfi
þó að gera miklar siðferðislegar
kröfur, þetta sé á eldfimu svæði.
Tilgangurinn verði að vera sá
að bæta meðferð sjúklinga og
velferð þeirra þurfi að vera í for-
grunni. Þarna sé einkafyrirtæki
með beitt vopn í höndunum
sem geti auðveldlega snúist upp
í ágenga markaðsstefnu og aug-
lýsingastarfsemi. Ef sjúklingar
fái til dæmis aðgerðirnar frítt ef
þeir taki þátt í svona útsendingu
sé það á gráu svæði.
Aðgerðin sjálf
kostar um eina og hálfa
milljón. Sjúkratrygg-
ingar greiða hana ekki
en slíkar aðgerðir eru
framkvæmdar á Land-
spítalanum. Þangað
komast mun færri en
vilja. Konur í áhættu-
hópi sem ekki vilja bíða
geta því reitt fram pen-
ingana sjálfar og komist
í aðgerð í Ármúla
Aðalviðfangsefni ráðstefnunnar er hvernig hægt sé að minnka áhættu kvenna með fyrirbyggjandi brjóstnámi.
Stjórnmálaflokkar reyna að
auglýsa um miðjan október
þrátt fyrir að ekki hafi verið
boðað til kosninga.
Allir stjórnmálaflokkar vilja auglýs-
inga á strætóskýlum höfuðborgar-
svæðisins þrátt fyrir að ekki sé búið
að tilkynna um nákvæma tímasetn-
ingu kosninga í haust. Hart hefur
verið deilt um tímasetningar á kosn-
ingunum, en svo virðist sem stjór-
nmálaflokkarnir geri sér einhverja
hugmynd um það hvenær kosning-
arnar fara fram.
„Allir f lokkar hafa falast eftir
plássi,“ segir Einar Hermannsson,
framkvæmdastjóri AFA JCDecaux,
sem selur auglýsingar á strætóskýli
um allt höfuðborgarsvæðið.
Eftirspurn stjórnmálaflokkanna
vekur athygli, ekki síst vegna þess að
það er ekki búið að tilkynna almenn-
ingi tímasetningu kosninganna. Því
lá beint við að spyrja Einar hvenær
stjórnmálaöflin voru að falast eftir
auglýsingarými á strætóskýlum
borgarinnar.
„Þetta var um fertugustu og
fyrstu og aðra vikuna á árinu,“
segir Einar en 41. vika ársins hefst
10. október og 42. viku lýkur 23.
október. Það er því hægt að álykta
sem svo að kosningar verði haldn-
ar á þessu tímabili, ef hægt er að
taka mark á eftirspurn stjórnmá-
laflanna.
Það breytir þó ekki því að stjór-
nmálaflokkar munu ekki sjást á
auglýsingaskiltum strætóskýlanna
þar sem eftirspurnin í auglýsinga-
plássin eru slík að það er upppant-
að til áramóta að sögn Einars.
„Það er bara ótrúleg aðsókn,“
segir Einar sem gat aðeins boðið
stjórnmálaflokkunum eina viku í
júlí, sem myndi varla gagnast þeim
fyrir kosningarnar.
Spurður hvaða flokkar hafi sett
sig í samband við fyrirtækið vegna
auglýsinganna svarar Einar: „Þetta
voru nú auglýsingastofur sem settu
sig í samband við mig, en ég get
sagt að allir flokkarnir vildu aug-
lýsa.“ | vg
Flokkarnir vilja
auglýsa á strætó
Allir flokkar hafa falast eftir auglysingaplássi.
4 | fréttatíminn | 6. maí 2016