Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 70
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@amk.is Úff. Mig hefði aldrei í mínum villtustu draumum dreymt að þetta gengi svo vel,“ segir söngkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir um frábærar viðtökur hennar fyrsta lags, I'll walk with you, sem kom út fyrr á þessu ári. Hildur hefur verið söngkona hljómsveitar- innar Rökkurró og segir það allt annars eðlis að standa ein sem listamaður en sem hluti af hljóm- sveit. „Mig hafði langað til að gera þetta lengi en aldrei þorað – ekki fyrr en ég tók þátt í Euro- vision. Eftir þá reynslu öðlaðist ég kjarkinn til að láta vaða og hætta að hugsa um hvað öðru fólki finnst. Ummælin á Twit- ter hertu mig,“ segir hún og hlær. Lagið I'll walk with you virðist höfða til allra aldurs- hópa og allt frá fjögurra ára börnum upp til heldri borgara eru hummandi hið mjög svo grípandi viðlag. „Ég vissi alveg að lagið væri grípandi en mig óraði ekki fyrir að það myndi höfða til jafn ólíkra hópa og raun ber vitni,“ segir Hildur. Hún fær reglulega send myndbönd á Snapchat af krökkum að syngja lagið og segist hafa grátið þegar hún fékk sent Snapchat af fullri rútu af börnum syngjandi lagið hennar. Hildur segist ekki vera orðin fræg enda séu ekki margir farnir að tengja andlitið við lagið. „Það eru helst lítil börn sem stara svo- lítið á mig og síðan fólk sem er komið í glas. Það er alveg óhrætt við að ræða við mann um lagið Kerry Washington ófrísk í annað sinn Leikkonan, Kerry Washington, sem margir elska úr þáttaseríunni SCANDAL, á von á sínu öðru barni. Fyrir á hún dótturina Isabelle með eiginmanni sínum, Nnamdi Asomugha. Kerry fór mjög leynt með sam­ band sitt við Nnamdi í byrjun og hennar nánustu vinir vissu ekki af því að þau væru að hittast. Þau giftu sig meira að segja í mikilli leynd í júní 2013 eftir að hafa verið að hittast í þrjú ár, svo lítið bæri á. Nnamdi er fyrrum stjörnuleikmaður hjá 49ners. Kerry hefur alltaf haldið einkalífi sínu frá sviðs­ ljósinu og segist, í viðtali hjá Glamour, vilja halda því þannig. Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur var í Istanbúl á dögunum þar sem hann var viðstaddur ljóðahátíð. Ei- ríkur veiktist í þessari ferð. „Ég hélt fyrst að ég væri hugsan- lega með matareitrun eða bara meltingartruflanir. Þetta byrjaði nóttina áður en ég flaug heim,“ segir Eiríkur sem fór beint í apótek þegar heim var komið og fékk lyf sem slógu aðeins á verkina. Þegar leið á vikuna á eftir og Eiríkur var kominn í heimabæ sinn, Ísafjörð, fóru verk- irnir hins vegar versnandi. „Á föstudagskvöldið fór ég að gúgla og komst að því að líklega væri ég með einhvers konar botnlanga- bólgu. Ég hef ekki farið til læknis í tuttugu ár og einhvern veginn eru skrefin lengri eftir því sem lengra er liðið frá því að maður fór; svo ég hringdi ekkert upp á Heilsugæsluna á Ísafirði fyrr en á mánudeginum,“ segir Eiríkur sem var í kjölfar skoð- unar á þriðjudeginum lagður inn. Kom þá í ljós að Eiríkur hafði fengið botnlangakast sem er samt stað- bundið og sýkingin bundin botn- langann eingöngu. „Það er hætt við að sýkingin Fékk kjarnorkusýklalyf í æð Eiríkur Örn hafði ekki farið til læknis í tuttugu ár þegar hann fékk botnlangakast Veiktist í Istanbúl Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl fékk botnlangakast en verður samt ekki skorinn upp fyrr en í haust. Justin Bieber lögsóttur Justin Bieber hefur komist í kast við lögin en maður að nafni Robert Earl Morgan hefur höfðað mál á hendur honum. Robert segir að Justin hafi eyðilagt símann hans í næturklúbbi sem kallaður er Cle. Justin var að sturta í sig í bjór í gegnum trekt og myndaði Robert athæfið. Justin endaði hinsveg­ ar á því hella yfir sig bjór og þegar hann sá að verið var að taka upp varð hann reiður. Hann tók símann af Robert og braut hann. Robert vill fá 100.000 dollara í bætur fyrir tjónið því hann segir að með þessu hafi hann tapað mikilvægum upplýsingum og myndum sem ekki er hægt að endurheimta. Hjálpar konunni með neglurnar Jenna Dewan-Tatum, eiginkona Channing Tatum, er rosalega ánægð með sinn mann þessa dagana. Hún gerir í því að birta skemmti­ leg Snapchat myndbönd og myndir af manninum sínum þar sem hann hjálpar henni. Fyrst birti hún mynd af honum þar sem hann er að þrífa af henni naglalakkið af tánöglunum. Svo kom myndband af því þegar hann er að blása á táneglurnar til að þurrka nýja lakkið. Ekki fylgdi það sögunni hvort hann var sá sem setti naglalakkið á eða hvort eiginkonan hafi sjálf átt heiðurinn af því. breiði úr sér ef þau opna. Þess vegna var ég settur á einhver kjarnorku- sýklalyf í æð eins lengi og líkaminn bara þoldi það. Þetta er þá bara alveg steindrepið og svo leyft að liggja,“ segir Eiríkur og bætir við að hann muni ekki fara í uppskurð á botnlanganum fyrr en í haust og botnlanginn eigi að geta verið til friðs þangað til. „Ég hefði hugsan- lega verið skorinn í sumar en ég verð væntanlega á miklu flakki í sumar svo ég vona að ég haldi heilsu þangað til í haust,“ segir þetta önnum kafna ljóðskáld. | ks Grét þegar rúta af börnum söng lagið hennar á Snapchat Söngkonan Hildur hefur slegið í gegn með sínu fyrsta lagi I'll walk with you. Það tók hana mörg ár að öðlast hugrekki til að gefa út sitt eigið lag ein- sömul. Þátttaka í Eurovision í fyrra fékk hana til að hætta að hugsa um hvað fólk segir. Nýtt lag á leiðinni Hildur situr ekki auðum höndum en í næsta mánuði kemur nýtt lag frá henni sem unnið er í samstarfi við tónlistar­ manninn h. dór. Hildur segir lagið öðruvísi en I'll walk with you en það lag var unnið með Loga Pedro úr Retro Stef­ son. Hún semur lög og texta og segir að nú sé tækifæri til að vinna með sem fjölbreyttustum hópi tónlistar­ fólks til að lögin fái hvert sinn blæ þótt hún vilji auðvitað halda sínum stíl. Fimm uppáhaldssöngkonur Hildar Beth Gibbons Portishead „Mótaði söng- stílinn minn á tímabili. Á smá í röddinni minni.“ Emilíana Torrini „Hef alist upp með henni. Uppáhalds íslenska söng- konan þegar ég var yngri.“ Stevie Nicks „Hún er svo mikill töffari. Það skín í gegn í rödd hennar.“ Beyoncé „Sannar með nýju plötunni að hún er einn fremsti lista- maður heims.“ Björk „Heillaðist jafnmikið af karakternum og röddinni.“ og fá mynd af sér,“ segir Hildur og skellir upp úr. Og það eru breytingar í vænd- um hjá þessari vinsælu söngkonu. „Ég var að vinna hjá QuizUp og var ein af þeim sem sagt var upp í fjöldauppsögnunum um daginn. Þannig að ég er bara að leita mér að nýrri vinnu. Það góða er að á meðan ég er að leita get ég eytt meiri tíma í tónlistina.“ Eftir þá reynslu öðlaðist ég kjarkinn til að láta vaða og hætta að hugsa um hvað öðru fólki finnst. Ummælin á Twitter hertu mig. …fólk 26 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksi s komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12- 8 ∙ laug. 11- 6 Frábær verð, smart vöru , góð þjónusta Loksins komnar aftur *leg ings háar í mittinu kr. 5 0 . Tökum upp nýjar vörur dagle a Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur d gl ga Bláu húsin Faxafeni · S. 58 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur daglega Við bjóðum góð verð alla daga Rykfrakki kr. 16.900 Til í mörgum stærðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.