Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 54
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ef ég ætti að lýsa fullkominni helgi með dætrum mínum þá væri það bara venjuleg helgi þar sem við náum að
vera sem mest saman fjölskyldan.
Það eru bestu helgarnar,“ segir
Árni Helgason, lögmaður og tveggja
dætra faðir. Hann er duglegur að
leika við dæturnar og taka virkan
þátt í því sem þær eru að gera.
Beðinn um að lýsa dæmigerðri
helgi nánar segir Árni að öfugt við
það sem gerist á virkum dögum,
þegar pabbinn vekur dæturnar, oft
við litlar undirtektir, snúist taflið við
um helgar.
„Sigga Dögg, konan mín, hefur
undanfarið tekið upp á þeirri góð-
mennsku að vakna á undan mér um
helgar og leyfa mér að sofa áfram.
Þetta ástand fær að viðgang-
ast þar til stelpurnar koma
og vekja mig með látum
og dagurinn byrjar. Við
fjölskyldan reynum að
vera dugleg að fara í
sund og hjólatúra, sér-
staklega núna þegar
það er farið að hlýna
aðeins og hitinn kominn
alveg upp í 3-4 gráður,
sem jafngildir íslenskri vor-
blíðu. Við förum stundum út á róló
í Bakkagarði, sem er rétt hjá okkur,
en þar er vinsælasta tækið klár-
lega aparólan og yfirleitt þónokkuð
margar ferðir farnar í henni. Ég
sjálfur fer yfirleitt nokkrar slíkar
og læt reyna verulega á þanþol
rólunnar – sem hefur haldið hingað
til,“ segir Árni sposkur, en dætr-
unum finnst skemmtilegt að fylgjast
með pabba leika sér í rólunni. „Svo
reynum við að vera dugleg að hitta
fjölskylduna, en stelpurnar eru svo
heppnar að eiga ömmu og afa bæði í
Vesturbænum og á Selfossi.“
Árni segir það gaman að upplifa
hvað dæturnar dafni og þroskist
hratt. „Sú eldri, Auður Freyja, er
orðin 8 ára og er vinamörg og alla-
jafna með nóg að gera en gefur sér
þó alltaf tíma fyrir fjölskylduna. Við
erum góðir vinir, spilum fótbolta
saman og stundum sokka-
handbolta, lesum saman
og ræðum málin. Hún
er athugul og stál-
minnug og fljót að
reka mann á gat ef
skýringar og svör eru
ekki fullnægjandi. Sú
yngri, Sólveig Katla,
verður 3 ára í sumar og
er ákaflega lífsglöð ung
stúlka. Staðlað svar hennar
við spurningunni um hvernig dag-
urinn hennar var er: „Mjög góður“
og yfirleitt fylgir með að hún hafi
leikið við bestu vinkonu sína á leik-
skólanum,“ segir Árni. Sæl vertu, kæra móðir og þakka
þér fyrir bréfið þitt. Ég skil áhyggj-
ur þínar vel og það er mikilvægt
að þú leitir aðstoðar og samvinnu
til að gera það besta fyrir dreng-
inn þinn.
Í sandkassanum
Agression eða árásargirni er yfir-
gripsmikið hugtak og lýsir hegðun
sem við skulum taka fullt mark á
eins og þessi skilgreining sýnir;
„... munnleg eða líkamleg tjáning
á óvild eða reiði sem brýst út í
ráðríki, þvingun eða ofbeldi sem
ætlað er að skaða aðra.“
Glíman við „aðra“ er hluti af
þroskaferli mannskepnunnar og
við erum sjálfmiðuð og eigingjörn
fyrir okkur sjálf og flokkinn okkar.
Því ferli lýkur í sjálfu sér aldrei
og við sjáum fullorðna ráðast að
öðrum – en yfirleitt á þróaðri hátt
heldur en þriggja ára börn sýna.
Sandkassinn er þekkt hugtak yfir
árásir og ofbeldishegðun, einmitt
vegna þess að hjá börnum sjáum
við ódulbúna hegðun og heiðarleg
samskipti án þess félagslega taum-
halds sem þjálfast ár frá ári.
Ógnir lífsins
Árásargirni sprettur oftast af ótta
og fyrir þriggja ára barn er margt
að óttast í stórum barnahópi. Fær
einhver meira en „ég“ af spenn-
andi leikföngum eða er kennar-
inn að sinna einhverjum öðrum
börnum eða ætlar einhver að rífa
skófluna af mér og betra að vera
fyrri til athafna. Sem sagt; enda-
lausar ógnir sem einbirnið þarf
aldrei að reyna heima hjá mömm-
unni og ekki einu sinni pabbi til
staðar til að taka athyglina. Svo
er það vanmátturinn sem fylgir
því að vera lítið barn með „stórt
skap“; óendanlega sjálfstæðisþörf
en oft takmarkaða getu.
Því fylgir oft sár ör-
vænting sem börn
sýna með reiði og
gráti og árásum
á aðra. Þau þurfa
aðstoð en án
þess að vera
niðurlægð og
heima getur
mamma
hjálpað. Í leikskólanum eru margir
sem þurfa aðstoð og eins er það
enn sárara en ella að mistak-
ast fyrir framan hóp af börnum.
Svona má lengi telja og þriggja ára
barn hefur ekki forsendur til að
stöðva sig hjálparlaust í mörgum
tilvikum.
„Karlmannsleysið“
Fjölmörg börn alast upp hjá ein-
stæðum foreldrum og þú skalt alls
ekki næra sektarkennd í hjarta þér
þótt enginn uppkominn karl sé á
heimilinu – fyrirmyndir finnast
víðar en á heimilinu. Hins vegar
skaltu sýna drengnum þínum
ákveðni og taka þér óumdeilt vald
í litlu fjölskyldunni til að hann
fari ekki að skipa hlutverk eigin-
mannsins – eitthvað sem getur
gerst ef þú ert alltaf að hjálpa og
þjóna og sýna endalausa athygli.
Þá ert þú óafvitandi farin að leyfa
honum að seilast of djarflega til
valda yfir öðrum annars staðar,
rétt eins og „heima hjá mömmu.“
Vandi skólans eða barnsins?
Leikskólinn er ekki að mæta
væntingum þínum og ég skil vel
að þú veltir fyrir þér að færa hann
í annan leikskóla. Hins vegar veit
ég af eigin reynslu að innan hvers
leikskóla og grunnskóla er frábært
starfsfólk sem vill mæta þörfum
barna af umhyggju og elsku. Þess
vegna myndi ég ráðleggja þér
deila áhyggjum þínum með kenn-
urum og skólastjóra áður en þú
tekur ákvörðun. Þú getur fengið
vinkonu eða fjölskyldumeðlim
með þér á fundinn til stuðnings.
Tillaga mín er að þú óskir eftir að-
stoð sérfræðings þar sem þriggja
ára barn er oftast komið með ögn
meira taumhald í samskiptum en
þú lýsir. Slíkt mat svarar spurn-
ingu þinni um vanda skólans eða
barnsins og þið mæðgin hafið allt
að vinna en engu að tapa.
Gangi ykkur allt í haginn, kæra
umhyggjusama móðir og yndislegi
drengur sem munt ná tökum á
frábærum samskiptum.
Uppeldisáhöldin
Lemur, bítur og slær
Sendið Möggu Pálu spurningar á
maggapala@frettatiminn.is og
hún mun svara í næstu blöðum.
Hæ Magga Pála! Átt þú einhver ráð við þriggja ára gutta sem slær og
hrindir og bítur önnur börn? Ég er búin að lesa mikið um þetta og flestir
fræðingar segja að þetta sé eðlilegur hluti af þroska barna sem hafa litla
færni í málinu og mikinn vilja til að vera sjálfstæð og bjarga sér sjálf og það
á við um hann. Hann er duglegur strákur, klæðir sig næstum sjálfur, alltaf
að brasa og vinna en er ekki farinn að tala mjög mikið ennþá. En mér skilst
að hjá flestum sé árásargirni að líða hjá á þessum aldri en minn gutti er agg
ressívur sem aldrei fyrr. Þetta er orðið dálítið leiðinlegt í leikskólanum því
þótt að leikskólafólkið sé með hann í stífu eftirliti þá dugar það ekki alltaf
og það er ekki óalgengt að eitthvert barn fari heim með bitför eftir hann.
Ég skammast mín fyrir þetta og er farin að hugsa alls konar vitleysu eins
og hvort að hann sé að gjalda eitthvað fyrir það að ég sé einstæð móðir og
hann fái ekki nægan karlaaga því pabbi hans býr í útlöndum, eða hvort að
leikskólinn sé kannski ekki nógu góður… En það skrítna er að heima með
mér er hann undurblíður og góður og sýnir aldrei þessa ofbeldisfullu hegð
un sem hann sýnir þegar hann er búinn að vera innan um börn í smá stund.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Spilar sokka-handbolta
og leikur sér í aparólunni
Árni Helgason lögmaður lýsir fullkominni helgi með dætrum sínum
Gæðastundir um helgar
Árni Helgason lögmaður
nýtur þess að vera með
dætrum sínum, Auði
Freyju og Sólveigu Kötlu,
um helgar.
Helgarblað 8.
apríl–10. apríl
2016 • 14. tölub
lað 7. árgangur
www.frettatim
inn.is
ritstjorn@fretta
timinn.is
auglysingar@fre
ttatiminn.is
Hemúllinn
Fjölskyldufaðir
í Breiðholti −
pönkari á Austurv
elli
Mannlíf 62
Mynd | Hari
Jóhannes Kr. Kr
istjánsson 28
Panama-skjölin
Viðhald húsa
FRÉTTATÍMIN
N
Helgin 8.–10. ap
ríl 2016
www.frettatimi
nn.is
Við getum tekið
sem dæmi sólpa
lla
þar sem algenga
sta
aðferðin er að g
rafa
holur og steypa
hólka. Með þess
um
skrúfum er ferlið
mun einfaldara,
öruggara og
kostnaðarminna
. 17
Dýrleif Arna Guðm
undsdóttir,
verkfræðingur hjá
Áltaki.
• Steinsteypa
• Mynsturstey
pa
• Graníthellur
• Viðhaldsefni
• Stoðveggjake
rfi
• Múrkerfi
• Einingar
• Gólflausnir
• Garðlausnir
Fjárfesting sem
steinliggur
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Hafðu samband í s
íma og láttu
sérfræðinga okkar
aðstoða þig
við að finna réttu l
ausnina.
4 400 400
4400 600
4 400 630
4 400 573
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörðu
rHrísmýri 8
800 SelfossSmiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbæ
r
Sími 4 400 400
www.steypustod
in.is
Húsið var herseti
ð
af köngulóm
Auður Ottesen o
g eiginmaður he
nnar keyptu sér
hús á Selfossi
eftir hrun. Þau þ
urftu að vinna b
ug á myglusvepp
i og heilum
her af köngulóm
en eru ánægð í e
ndurbættu húsi
í dag. Auk
hússins hefur ga
rðurinn fengið a
ndlitslyftingu og
nú eru þau
að taka bílskúrin
n í gegn. 8
Mynd | Páll Jökull
Pétursson
Sérblað
Maðurinn sem fe
lldi
forsætisráðherr
a
Sven Bergman
Illnauðsynleg
aðferð í viðtalinu
Sænski blaðama
ðurinn 8
Ris og fall
Sigmundar
Upp eins og rake
tta,
niður eins og pri
k
Spilltasta þjóðin
10
Bless 18
332 ráðherrar í V
estur-Evrópu
4 í skattaskjóli þa
r af 3 íslenskir
KRINGLUNNI IST
ORE.IS
Sérverslun með A
pple vörur
MacBook Air 13"
Þunn og létt með rafh
löðu
sem dugar daginn
Frá 199.990 kr.
MacBook Pro Re
tina 13"
Alvöru hraði í nettri o
g léttri hönnun
Ótrúleg skjáskerpa
Frá 247.990 kr.
Mac skólabækur
nar
fást í iStore Kring
lunni
10 heppnir sem versla
Apple tæki frá
1. mars til 15. maí vin
na miða á Justin Bieb
er.
www.sagamedic
a.is
SagaPro
Minna mál me
…fjölskyldan 10 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
„Ég læt
reyna
verulega
á þanþol
rólunnar“
Líkami & Lífsstíll
FLUTT Í GARÐABÆ
Líkami & Lífsstíll hefur flutt verslun sína í Gilsbúð 5, Garðabæ.
Af því tilefni bjóðum við 20% afslátt af öllum vörum í verslun
dagana 6. - 13. maí.
Kíktu við í Gilsbúð 5 og gerðu góð kaup.
Opið 11-17 virka daga. | Sími 571 7000 | likamioglifsstill.is
Ekki láta beinhimnubólguna aftra þér í sumar!
Vertu klár í hlaupin með Zensah Compression
legghlífum, sokkum og armhlífum.
Fyrirbyggir beinhimnubólgu og hámarkar endurbata.