Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 32
Sigurlaug og Tyler hafa búið í Berlín síðan í júlí. Sigur- laugu þekkja margir sem tónlistarkonuna Mr. Sillu og Tyler hefur gert garðinn frægan sem tónlistarmaður í heimalandi sínu, Bandaríkjunum, og víðar, meðal annars með hljómsveitinni Princess Music. Þau segja Berlín auðuga borg fyrir tónlistarfólk og afslappaðri en aðrar stórborgir. „Hér er fullt af tækifærum til að hitta fólk úti á götu og vinna með því. Við þekkjum marga listamenn hér sem gengur vel, svo það virðist mögulegt að lifa á listinni hérna.“ Silla segir að erfitt sé fyrir tónlistarmann að búa á Íslandi án þess að vera í tveimur vinnum meðfram tónlistinni. Hún sér því ekki fyrir sér að búa í Reykja- vík í bráð. „Það er auðvelt og ódýrt að búa hér, auk þess sem allir vinir okkar búa í götunni,“ segja þau. „Við grínumst með að þetta sé eins og Friends-þáttur, við erum hópur tíu vina sem hittist á hverjum degi, eldar saman og nýtur lífsins. Enda reynum við að tala helst ekki við fólk utan Weserstrasse,“ segir Tyler glettinn. Margir þessara vina eru íslenskir og segist Tyler öf- unda Íslendinga af því að þeir myndi alltaf náin sam- félög hvar sem þeir séu. „Það eru auðvitað þúsund Bandaríkjamenn á hvern Íslending, svo við tengjumst ekki jafn sterkt og Íslendingar virðast gera.“ Allir saman á einni götu Weserstrasse eins og Friends-þáttur Þær Borghildur, Hrafnhildur Gissurardóttir og Petra Valdimarsdóttir bjuggu áður allar samtímis í Amster- dam. Þær rákust þó aldrei á hver aðra þar, heldur kynntust fyrst þegar þær fluttu til Berlínar til að vinna í listheiminum. „Ef maður vill búa í stórborg er Berlín besti kostur- inn. Hér er hægt að lifa hátt á litlum peningum, sem ekki er í boði í öðrum stórborgum,“ segir Borghildur Indriðadóttir, ein þriggja listakvenna sem starfa nú saman í Berlín að sýningaröð sem þær kalla HAH. Sýningaröðin er gerð til að koma á framfæri ungum og óþekktum listamönnum, en stelpurnar segja meira í boði fyrir unga listamenn í Berlín en í Reykjavík. „Berlín er áhugaverðasti staðurinn fyrir listamenn að búa á í dag – þetta er suðupottur listar. Fólk flytur nú í stríðum straumum hingað annarsstaðar frá.“ Þremenningarnir segjast halda að ástæðan fyrir fjölda íslenskra listamanna sem búa í Berlín að ein- hverju leyti vera þá að Íslendingar séu með innbyggða útþrá, auk þess sem ekki sé margt í boði fyrir ungt fólk á Íslandi. Stelpurnar eru allar reynsluboltar í sýningarstjórn, hönnun og listsköpun, en hugnast ekki að flytja til Ís- lands eins og staðan er í dag. „Þar er verið að minnka við fjárhagslegan stuðning við listheiminn, en hér í Þýskalandi eru fleiri styrkir og því auðveldara að fjármagna sýningar og slíkt,“ segja þremenningarnir. Allar hafa þær samt taugar til Íslands þó þær sjái sig ekki starfa þar í náinni framtíð. Vinnustofa og heimili HAH er á Weserstrasse og segir Borghildur götuna vera eins og sinn æsku- draum: „Þegar ég var lítil bjó ég í Berlín en fluttist svo til Reykjavíkur og hef haft taugar til beggja borga síðan. Þá óskaði ég mér að ég gæti fengið alla sem mér þætti vænt um á Íslandi til Berlínar og allir gætu búið saman á einni götu. Ég er ekki frá því að það sé að gerast hér á Weserstrasse!“ Silla og Tyler á kaffihúsinu Drops fyrir neðan íbúð sína á Weserstrasse. Mynd | Viktor Richardsson HAH-stelp- urnar bjuggu allar samtímis í Amsterdam, en kynntust þó ekki fyrr en þær fluttust til Berlínar. Mynd | Viktor Richardsson Vinnustofa HAH-hópsins: Weserstrasse155 Silla og Tyler: Weserstrasse 155 East of My Youth: Weichselstrasse 57 Hlýjar og þægilegar flíkur sem auðvelt er að klæða sig í. Flestar uppskriftirnar miðast við að nota megi hvort heldur er innflutt garn eða íslenska ull. Flíkur fyrir íslenskar aðstæður w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 32 | FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.