Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 46
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Spretthlaupadrottn-ingin Silja Úlfarsdóttir lauk farsælum hlaupa-ferli árið 2008, en þá var hún búin að vera fráasta kona landsins í rúm 10 ár. Litlu mátti muna að hún kæmist á Ólympíuleikana í Peking, sem var markmið sem hún stefndi að. En æfingar gengu upp og niður árið á undan þar sem hún glímdi við erfiða ofþjálfun. „Ég endaði ferilinn bókstaflega í miðju hlaupi í Hollandi. Ég var að rífast við hausinn á mér í hlaup- inu, sagði sjálfri mér að halda áfram, en eftir 300 metra af 400 þá stoppaði ég bara allt í einu. Og það tók mig smá tíma að átta mig á að ég var ekki að hlaupa eins og hinir. Ég vissi þarna að þetta var búið. Það var ótrúlega skrýtið. Svo labbaði ég í mark og fagn- aði,“ segir Silja um það hvernig ferlinum lauk, með örlítið drama- tískum hætti. Hún tók þó þátt í Ís- landsmeistaramótinu sama ár og fékk sína kveðjustund. „Mér fannst allt rétt við þetta. Ég hætti því ég var orðin södd, ekki vegna meiðsla eða neitt slíkt. Mínu verki var einfaldlega lokið.“ Silja sneri sér í kjölfarið að því að þjálfa íþróttalið, ásamt því að þjálfa íþróttamenn á öllum aldri að hlaupa hraðar. Fóturinn mölbrotnaði Þrátt fyrir að hlaupin séu Silju enn mjög hugleikin hleypur hún sjálf ekki mikið þessa dagana og óvíst er hvort hún komi til með að geta hlaupið aftur eftir að hún fótbrotnaði illa í janúar í fyrra. „Ég var að leika mér í handbolta og eftir fjórar mínútur þar sem ég var auðvitað langbest í leiknum – þá brotnaði ég svona illa. Lækn- arnir útskrifuðu mig reyndar þrisvar fótbrotna, sá fyrsti sem ég hitti sagði að ég væri tognuð, en ég hvæsti bara á hann. Ég vissi að ég var mölbrotin og daginn eftir kom það í ljós. Ég var brotin á fjórum stöðum í ristinni og eitt bein hafði færst til,“ segir Silja sem væri mikið til í að hitta aftur lækninn sem sagði hana einungis hafa tognað. Hleypur líklega ekki meira „Ég mátti ekki stíga í fótinn í fimm mánuði. Ég bý á þriðju hæð í blokk og á tvö börn. Veðrið í fyrra var líka glatað. Það var bara hálka og vindur á hlið. Ég er þannig Mölbrotnaði og hleypur varla aftur Hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir er enn að jafna sig eftir slæmt fótbrot í janúar í fyrra. Hún reynir að láta meiðslin ekki á sig fá og lítur á björtu hliðarnar. Hún mun allavega geta leikið við strákana sína og notið lífsins. 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins kom ar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12- 8 ∙ laug. 11- 6 Frábær verð, smart vöru , góð þjónusta Loksins kom ar aftur *leg ings háar í mittinu kr. 5 0 . Tökum upp nýjar vörur dagle a Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur d gl ga Bláu húsin Faxafeni · S. 58 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur daglega Við bjóðum góð verð alla daga Rykfrakki kr. 16.900 Til í mörgum stærðum. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti. búin að liggja flöt á bílastæðum fyrir utan mörg hús í Hafnar- firði. Það er ekki auðvelt að vera á öðrum fæti, með tvær hækjur að reyna að standa upp í hálku. Ég var svolítið eins og Bambi að læra að ganga.“ Læknirinn gerði Silju það strax ljóst að hugsanlega gæti hún ekki hlaupið aftur, sérstaklega ekki ef það þyrfti að negla fótinn. Þau ákváðu því í sameiningu að freista þess að láta brotið gróa án þess að negla. „Ég gat ekki gert neitt á þessum tíma. Ég gat ekki farið með börn- unum mínum út að hjóla eða labbað með þeim út í búð,“ segir Silja en hún á tvo drengi, fimm og sjö ára á þessu ári. „Það varð því óhjákvæmilegt að ég færi í slíka aðgerð, og var hún gerð í desember. Þá fékk ég fjóra nagla í fótinn. Einn þeirra fór í gegn og kíkir út hinumegin, svo ég geng aðeins á honum. Ég reikna því ekki með að geta hlaupið aftur en það væri gaman ef það væri hægt,“ segir hún raunsæ. Dauðsfallið er verkefni En hvernig er það fyrir fyrrver- andi afrekskonu í spretthlaupum að fá slíkar fréttir? „Draumurinn minn var að hlaupa hálfmara- þon, þó ég segði engum frá því. Og markmiðið mitt á þessu ári var að láta verða af því. Þannig ég var vissulega svekkt.“ segir Silja hreinskilin. „En ég hef komist að því að við fáum öll okkar verk- efni í lífinu og við fengum okkar þegar það varð dauðsfall í fjöl- skyldunni. Ég get kannski ekki hlaupið á næstunni, en ég get farið út að leika með strákunum og skrúfunum mínum,“ segir Silja sem hefur lært að meta lífið enn betur eftir að hafa tekist á við áðurnefnt verkefni. „Sem betur fer er ég týpan sem er alltaf með hálffullt glasið, strákarnir mínir hafa verið mjög duglegir og þurft að hjálpa mikið til heima fyrir, en þeir eru mjög spenntir fyrir því þegar mamma hættir að vera fótbrotin.“ Á hlaupahjóli í maraþonið Silja er ennþá með naglana í fæt- inum, en þeir verða ekki fjarlægð- ir fyrr en í sumar. Henni er ennþá illt og þarf að notast við stuðn- ingsstígvél reglulega. Hún er einmitt í því þegar viðtalið fer fram og vill meina að slíkur búnaður sé alveg að detta í tísku. Hún sé bara aðeins á undan sinni sam- tíð. Svo fær hún væntanlega hlaupa- hjól á næstunni sem at- vinnurekandinn hennar ætlar að redda, en hún starfar hjá Sport- mönnum þar sem heldur utan um Adidas og Reebok á Íslandi. Hún vonast einmitt til að geta farið kannski tíu kílómetra á því í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar. En líkt og áður sagði var draum- urinn að fara hálft maraþon. Ældi eftir fimm kílómetra Langhlaup hafa þó aldrei verið sterkasta hlið Silju, enda var hennar sérgrein 400 metra hlaup og grindahlaup. „Ég er svo mikill spretthlaupari og átti alltaf erfitt með að skokka. Eftir að ég hætti að keppa hugsaði alltaf að mig langaði ein- hvern tíma til að geta hlaup- ið fimm kíló- metra. Einn daginn fór ég svo ein upp í Kaplakrika og hljóp þessa fimm kílómetra. Ég held ég hafi hlaupið á 35 mín- útum, sem er ömurlegur tími, en ég ældi eftir á, mér fannst þetta svo erfitt. Svo hló ég og hló, á milli þess sem ég ældi. En í mínum huga var þetta geggjað afrek,“ segir Silja hlæjandi. En hún lét ekki þar við sitja. Eftir að hafa tekist á við fimm kílómetr- ana vildi hún reyna við tíu. Helst án þess æla. „Ég fór í Ármanns- hlaupið og stemningin var svo skemmtileg, allir að gefa fimmur og svona. Ég er svo mikil stemn- ingstýpa og þetta var frábært. Ég gaf öllum fimmu, alsæl, alveg eins og ég væri að vinna einhver verð- laun.“ Silju tókst að klára hlaupið á innan við klukkutíma sem verður nú að teljast ágætt. „Það er rosalega gaman að taka þátt í þessum hlaupum, stemn- ingin er skemmtileg og verkefni fyrir alla, þú getur keppt við aðra, sjálfa þig eða notið þess að taka þátt. Ég hef svolítið verið að læra að það þarf ekki allt alltaf að vera keppni, stundum á maður bara að brosa njóta sín og gefa fimmur.“ Mömmusam- viskubitið Silja er ný- byrjuð að hreyfa sig aftur eftir að hún brotn- aði. „Mér líður allri betur í líkam- anum, þó ég taki ekki nema 20 mínútur á spinninghjólinu í stofunni. Hérna áður var æfing að lágmarki 60 mínútur og þá var ég á fullu allan tímann. Nú hef ég ekkert æft í eitt og hálft ár og ég saknaði þess ekki neitt. Ég átti svolítið erfitt með það og það hræddi mig hvað mér var sama. Ég hafði líka miklar áhyggjur af því að ég myndi fitna, enda hef ég bara borðað það sem mig hefur lang- að í.“ Hún viðurkennir að það sé ekki auðvelt að fara aftur af stað eftir allan þennan tíma. Hún er mjög meðvituð um að hún er ekki jafn mössuð og sterk og hún var, og finnst skrýtið að mæta þannig í ræktina. „En ég hef líklega gott af því að prófa það. Mér finnst allavega alveg frábært að finna vellíðunartilfinninguna og hvern- ig orkan eykst þegar ég byrja að hreyfa mig.” Hún bendir á að fyrir móður með tvö börn geti verið erf- itt að finna tíma fyrir æfingar. „Mömmusamviskubitið er aldrei langt undan. Ég reyni að fara stundum í ræktina, en annars hef ég búið til æfingahringi sem ég nota heima hjá mér og taka stuttan tíma. Það þarf víst alltaf að hafa plan B. Það er ekki sjálfsagður hlutur að komast á æfingu, því þarf að hugsa í lausnum. Í sumar verð ég með hlaupahóp fyrir Reykjavíkur- maraþonið þar sem áherslan verður ekki aðeins á hlaup, heldur vellíðan og að gera eitthvað fyrir sjálfan sig. Við þurfum jú að setja okkur í fyrsta sætið.“ …viðtal 2 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Mömmusam- viskubitið er aldrei langt undan. Ég reyni að fara stundum í ræktina, en annars hef ég búið til æfingahringi sem ég nota heima hjá mér og taka stuttan tíma. 5 Silja mátti ekk i stíga í fótinn í fimm mánuði „Svo hló ég og hló, á milli þes s sem ég ældi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.