Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 46
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Spretthlaupadrottn-ingin Silja Úlfarsdóttir lauk farsælum hlaupa-ferli árið 2008, en þá var hún búin að vera
fráasta kona landsins í rúm 10 ár.
Litlu mátti muna að hún kæmist á
Ólympíuleikana í Peking, sem var
markmið sem hún stefndi að. En
æfingar gengu upp og niður árið
á undan þar sem hún glímdi við
erfiða ofþjálfun.
„Ég endaði ferilinn bókstaflega í
miðju hlaupi í Hollandi. Ég var að
rífast við hausinn á mér í hlaup-
inu, sagði sjálfri mér að halda
áfram, en eftir 300 metra af 400
þá stoppaði ég bara allt í einu. Og
það tók mig smá tíma að átta mig
á að ég var ekki að hlaupa eins og
hinir. Ég vissi þarna að þetta var
búið. Það var ótrúlega skrýtið.
Svo labbaði ég í mark og fagn-
aði,“ segir Silja um það hvernig
ferlinum lauk, með örlítið drama-
tískum hætti. Hún tók þó þátt í Ís-
landsmeistaramótinu sama ár og
fékk sína kveðjustund.
„Mér fannst allt rétt við þetta.
Ég hætti því ég var orðin södd,
ekki vegna meiðsla eða neitt slíkt.
Mínu verki var einfaldlega lokið.“
Silja sneri sér í kjölfarið að því
að þjálfa íþróttalið, ásamt því að
þjálfa íþróttamenn á öllum aldri að
hlaupa hraðar.
Fóturinn mölbrotnaði
Þrátt fyrir að hlaupin séu Silju
enn mjög hugleikin hleypur hún
sjálf ekki mikið þessa dagana og
óvíst er hvort hún komi til með
að geta hlaupið aftur eftir að hún
fótbrotnaði illa í janúar í fyrra.
„Ég var að leika mér í handbolta
og eftir fjórar mínútur þar sem ég
var auðvitað langbest í leiknum –
þá brotnaði ég svona illa. Lækn-
arnir útskrifuðu mig reyndar
þrisvar fótbrotna, sá fyrsti sem
ég hitti sagði að ég væri tognuð,
en ég hvæsti bara á hann. Ég vissi
að ég var mölbrotin og daginn
eftir kom það í ljós. Ég var brotin
á fjórum stöðum í ristinni og eitt
bein hafði færst til,“ segir Silja
sem væri mikið til í að hitta aftur
lækninn sem sagði hana einungis
hafa tognað.
Hleypur líklega ekki meira
„Ég mátti ekki stíga í fótinn í fimm
mánuði. Ég bý á þriðju hæð í
blokk og á tvö börn. Veðrið í fyrra
var líka glatað. Það var bara hálka
og vindur á hlið. Ég er þannig
Mölbrotnaði og hleypur varla aftur
Hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir er enn að jafna sig eftir slæmt fótbrot í janúar í fyrra. Hún reynir að láta meiðslin
ekki á sig fá og lítur á björtu hliðarnar. Hún mun allavega geta leikið við strákana sína og notið lífsins.
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
kom ar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12- 8 ∙ laug. 11- 6
Frábær verð, smart vöru ,
góð þjónusta
Loksins
kom ar aftur
*leg ings háar í
mittinu
kr. 5 0 .
Tökum upp nýjar vörur dagle a
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mitt nu
kr. 5 0 .
Tökum pp nýjar vö ur d gl ga
Bláu húsin Faxafeni · S. 58 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mitt nu
kr. 5 0 .
Tökum pp nýjar vö ur daglega
Við bjóðum
góð verð
alla daga
Rykfrakki
kr. 16.900
Til í mörgum
stærðum.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
búin að liggja flöt á bílastæðum
fyrir utan mörg hús í Hafnar-
firði. Það er ekki auðvelt að vera á
öðrum fæti, með tvær hækjur að
reyna að standa upp í hálku. Ég
var svolítið eins og Bambi að læra
að ganga.“
Læknirinn gerði
Silju það strax ljóst að
hugsanlega gæti hún
ekki hlaupið aftur,
sérstaklega ekki ef
það þyrfti að negla
fótinn. Þau ákváðu
því í sameiningu
að freista þess að
láta brotið gróa án
þess að negla. „Ég
gat ekki gert neitt á
þessum tíma. Ég gat
ekki farið með börn-
unum mínum út að
hjóla eða labbað með
þeim út í búð,“ segir
Silja en hún á tvo drengi,
fimm og sjö ára á þessu ári. „Það
varð því óhjákvæmilegt að ég færi
í slíka aðgerð, og var hún gerð í
desember. Þá fékk ég fjóra nagla
í fótinn. Einn þeirra fór í gegn og
kíkir út hinumegin, svo ég geng
aðeins á honum. Ég reikna því
ekki með að geta hlaupið aftur
en það væri gaman ef það væri
hægt,“ segir hún raunsæ.
Dauðsfallið er verkefni
En hvernig er það fyrir fyrrver-
andi afrekskonu í spretthlaupum
að fá slíkar fréttir? „Draumurinn
minn var að hlaupa hálfmara-
þon, þó ég segði engum frá því.
Og markmiðið mitt á þessu ári
var að láta verða af því. Þannig ég
var vissulega svekkt.“ segir Silja
hreinskilin. „En ég hef komist að
því að við fáum öll okkar verk-
efni í lífinu og við fengum okkar
þegar það varð dauðsfall í fjöl-
skyldunni. Ég get kannski ekki
hlaupið á næstunni, en ég get
farið út að leika með strákunum
og skrúfunum mínum,“ segir Silja
sem hefur lært að meta lífið enn
betur eftir að hafa tekist á við
áðurnefnt verkefni.
„Sem betur fer er ég týpan
sem er alltaf með hálffullt glasið,
strákarnir mínir hafa verið mjög
duglegir og þurft að hjálpa mikið
til heima fyrir, en þeir eru mjög
spenntir fyrir því þegar mamma
hættir að vera fótbrotin.“
Á hlaupahjóli í maraþonið
Silja er ennþá með naglana í fæt-
inum, en þeir verða ekki fjarlægð-
ir fyrr en í sumar. Henni er ennþá
illt og þarf að notast við stuðn-
ingsstígvél reglulega.
Hún er einmitt í
því þegar viðtalið
fer fram og vill
meina að slíkur
búnaður sé
alveg að detta
í tísku. Hún sé
bara aðeins á
undan sinni sam-
tíð. Svo fær hún
væntanlega hlaupa-
hjól á næstunni sem at-
vinnurekandinn hennar ætlar að
redda, en hún starfar hjá Sport-
mönnum þar sem heldur utan
um Adidas og Reebok á Íslandi.
Hún vonast einmitt til að geta
farið kannski tíu kílómetra á því í
Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.
En líkt og áður sagði var draum-
urinn að fara hálft maraþon.
Ældi eftir fimm kílómetra
Langhlaup hafa þó aldrei verið
sterkasta hlið Silju, enda var
hennar sérgrein 400 metra hlaup
og grindahlaup. „Ég er svo mikill
spretthlaupari og átti alltaf erfitt
með að skokka. Eftir að
ég hætti að keppa
hugsaði alltaf að
mig langaði ein-
hvern tíma til
að geta hlaup-
ið fimm kíló-
metra. Einn
daginn fór ég
svo ein upp í
Kaplakrika og
hljóp þessa fimm
kílómetra. Ég held
ég hafi hlaupið á 35 mín-
útum, sem er ömurlegur tími,
en ég ældi eftir á, mér fannst
þetta svo erfitt. Svo hló ég og
hló, á milli þess sem ég ældi. En
í mínum huga var þetta geggjað
afrek,“ segir Silja hlæjandi. En
hún lét ekki þar við sitja. Eftir að
hafa tekist á við fimm kílómetr-
ana vildi hún reyna við tíu. Helst
án þess æla. „Ég fór í Ármanns-
hlaupið og stemningin var svo
skemmtileg, allir að gefa fimmur
og svona. Ég er svo mikil stemn-
ingstýpa og þetta var frábært. Ég
gaf öllum fimmu, alsæl, alveg eins
og ég væri að vinna einhver verð-
laun.“ Silju tókst að klára hlaupið
á innan við klukkutíma sem
verður nú að teljast ágætt.
„Það er rosalega gaman að taka
þátt í þessum hlaupum, stemn-
ingin er skemmtileg og verkefni
fyrir alla, þú getur keppt við
aðra, sjálfa þig eða notið þess
að taka þátt. Ég hef svolítið
verið að læra að það þarf
ekki allt alltaf að vera
keppni, stundum
á maður bara að
brosa njóta sín og
gefa fimmur.“
Mömmusam-
viskubitið
Silja er ný-
byrjuð að
hreyfa sig
aftur eftir að
hún brotn-
aði. „Mér
líður allri
betur í líkam-
anum, þó ég
taki ekki nema
20 mínútur á
spinninghjólinu
í stofunni. Hérna
áður var æfing að
lágmarki 60 mínútur
og þá var ég á fullu
allan tímann. Nú hef ég
ekkert æft í eitt og hálft
ár og ég saknaði þess ekki
neitt. Ég átti svolítið erfitt
með það og það hræddi mig
hvað mér var sama. Ég hafði
líka miklar áhyggjur af því að
ég myndi fitna, enda hef ég bara
borðað það sem mig hefur lang-
að í.“ Hún viðurkennir að það sé
ekki auðvelt að fara aftur af stað
eftir allan þennan tíma. Hún er
mjög meðvituð um að hún er ekki
jafn mössuð og sterk og hún var,
og finnst skrýtið að mæta þannig
í ræktina. „En ég hef líklega gott
af því að prófa það. Mér finnst
allavega alveg frábært að finna
vellíðunartilfinninguna og hvern-
ig orkan eykst þegar ég byrja að
hreyfa mig.”
Hún bendir á að fyrir móður
með tvö börn geti verið erf-
itt að finna tíma fyrir æfingar.
„Mömmusamviskubitið er aldrei
langt undan. Ég reyni að fara
stundum í ræktina, en annars
hef ég búið til æfingahringi
sem ég nota heima hjá mér og
taka stuttan tíma. Það þarf víst
alltaf að hafa plan B. Það er ekki
sjálfsagður hlutur að komast
á æfingu, því þarf að hugsa í
lausnum. Í sumar verð ég með
hlaupahóp fyrir Reykjavíkur-
maraþonið þar sem áherslan
verður ekki aðeins á hlaup,
heldur vellíðan og að gera
eitthvað fyrir sjálfan sig. Við
þurfum jú að setja okkur í
fyrsta sætið.“
…viðtal 2 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Mömmusam-
viskubitið er
aldrei langt undan.
Ég reyni að fara
stundum í ræktina,
en annars hef ég
búið til æfingahringi
sem ég nota heima
hjá mér og taka
stuttan tíma.
5
Silja mátti ekk
i
stíga í fótinn í
fimm mánuði
„Svo hló ég og
hló, á milli þes
s
sem ég ældi.“