Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 50

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 50
Fann hin fullkomnu gleraugu Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir, sam- félagsmiðladrottning og einkaþjálfari, fylgist vel með tískunni og sólgleraugna- tískan er þar ekki undanskilin. Hún fjár- festi í nýjum hátísku gleraugum í Top Shop fyrir nokkrum dögum og þau eru strax orðin uppáhalds. „Þau eru með hálfgerðu „cat eye“ útliti og lituðu gleri,“ útskýrir Lína sem er vel búin fyrir sumarsólina. „Þessi gleraugu eru í uppáhaldi því ég er búin að leita lengi að nákvæmlega eins gleraugum og fann þau loksins. Litað gler í sólgleraugum er það vinsælasta í dag og „cat eye“ gleraugu eru búin að vera lengi í tísku, þannig að þessi eru fullkomin.“ Blátt gler það heitasta Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hrím hönnunarhúss, er með puttann á púlsinum þegar kemur að sólgleraugnatískunni. Á nefinu þessa dagana er hún með gleraugu frá merkinu Spitfire, módel sem kallast Post Punk. „Þau eru bara svo fáránlega töff. Mér finnst ég verða algjör töffari þegar ég set þau upp,“ segir Tinna aðspurð hvers vegna umrædd gleraugu urðu fyrir valinu. Þau eru ársgömul og voru að sjálf- sögðu keypt í Hrím. En Tinna hyggst fá sér ný gleraugu á næstunni. „Það voru að koma svo flott ný gleraugu og það með bláu gleri. Það er það heitasta núna. Ætla að fá mér Cyber blá fyrir sumarið.“ Pantaðu á www.curvy.is eða kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9 Opið Alla virka daga frá kl. 11-18 og Laugardaga frá kl. 11-16 NÝ SENDING MEÐ FALLEGUM KJÓLUM Fákafeni 9, 108 RVK Sími 581-1552 | www.curvy.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9 Alla virka daga frá kl.11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Flott sólgleraugu setja oft punktinn yfir i-ið þegar kemur að því að fullkomna sumar-lúkkið. Sólgleraugu eru nefnilega alls ekki bara til að hlífa augunum við sólinni, þó vissu- lega gegni þau líka því mikilvæga hlutverki. Hér er um að ræða margbreytilegt tískufyrirbæri sem getur dregið fram eða undir- strikað karakter notandans. Sól- gleraugnatískan er jafn breytileg og fatatískan – margir fylgja straumum og stefnum og skipta reglulega út gleraugum, eru jafn- vel með nokkur í takinu, á meðan aðrir halda tryggð við ein klass- ísk. En lykilatriðið er að það þykir einstaklega töff að vera með flott sólgleraugu. Sólgleraugun fullkomna sumarlúkkið Horft til sólar með fjórum svölum einstaklingum Var að rokka þriggja evru Ray Kwan Snorri Björnsson ljósmyndari átti í raun engin almennileg sólgleraugu þegar blaðamaður bað hann um að vera með í léttri úttekt á sólgler- augnatískunni. „Ég var bara að rokka prútt- uð þriggja evru Ray-Kwan gleraugu, keypt á Magaluf, Mallorca,“ segir Snorri léttur og á þar að sjálfsögðu við eftirlíkingu af hinum klass- ísku Ray Ban gler- augum. Honum fannst þetta hins vegar tilvalið tækifæri til að splæsa í alvöru gleraugu og títaníumblönduð gleraugu frá Han Kjøbenhavn urðu fyrir valinu. „Ég mynda mikið fyrir Húrra Reykjavík og leigi með Ólafi Alexander, lykilstarfs- manni þar á bæ. Ég labbaði bara inn á Hverfisgötunni og Óli lét þessi gleraugu á hausinn á mér með því loforði að þau myndu rústa þessa sólgleraugnakeppni.“ Týnir alltaf sólgleraugum Sigrún Skaftadóttir, plötusnúður og veitingastýra, er týpan sem skiptir oft um sólgleraugu, en ein gleraugu hafa þó fylgt henni um tíma og eru þau í miklu uppáhaldi. „Uppáhaldsgleraugun mín eru bleik John Lennon sólgleraugu sem ég og dj-félagi minn Lovísa, í Kanilsnældum, keyptum okkur eins þegar við vorum að spila í Kanada fyrir nokkrum árum. Ég hef átt rosalega mörg sólgleraugu og tekst alltaf að týna þeim en þessi virðast ætla að fylgja mér hvert sem ég fer.“ Mest notar Sigrún þó Ray Ban, New Wayfarer sólgleraugun sín þó henni þyki þau rosalega venjuleg og þreytt. Hún stefnir á að fjárfesta í nýjum gleraugum fyrir sumarið, enda sannfærð um að það verði sólríkt og gott. „Ég er einstaklega hrifin af gler- augunum frá Oliver Peoples og Persol en ég er með ótrúlegan valkvíða það eru svo mörg falleg.“ …tíska 6 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.