Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 35
Náttúrulegur
sætugjafi
Sá græni
Bragðgóður og ferskur skyrdrykkur án
hvíts sykurs með agave og steviu.
Fylltur af grænum orkugjöfum.
KEA skyrdrykkur
fyrir heilbrigðan lífsstíl
Annað listaverkið fór upp í London
og sýnir myndskreytingu úr Jóa úr
Risaferskjunni eftir Roald Dahl, en
Quentin Blake er þekktastur fyrir
myndskreytingar sínar í bókum
Dahl. Hitt prýðir vegg í Brooklyn og
er myndskreyting Blake af tónlistar-
manninum ásamt nafni væntanlegr-
ar plötu: The Colour in Anything.
James Blake sagði í viðtali um
miðjan apríl að platan væri tilbúin,
svo nú hlýtur að styttast í að aðdá-
endur komi höndum yfir The Colo-
ur in Anything. |sgþ
Loks glittir í nýja plötu James Blake
Vegglistaverk æsir aðdáendur
Miklar vangaveltur hafa
verið uppi um nýjustu plötu
James Blake. Tónlistarmað-
urinn hefur ekki gefið út
plötu síðan Overgrown kom
út fyrir þremur árum, en í
vikunni upplýsti hann um
nafn plötunnar með
tveimur vegglistaverkum
eftir Quentin Blake.
Sportbarinn Ríó
kvaddur með stæl
Sportbarinn Ríó á Hverfisgötu
mun víkja fyrir hóteli, eins og eru
örlög margra skemmtistaða í mið-
bænum þessi misserin. Þessi helgi
er því síðasti séns að skemmta
sér á staðnum og verður af því til-
efni haldið lokapartý á staðnum á
laugardaginn, með karókí og öllu
tilheyrandi. Á lokakvöldi staðarins
á sunnudag er viðeigandi að bar-
dagi Gunnars Nelson við Tumenov
verði sýndur á stóra skjánum.
Flóamarkaður Konukots
Það verða fjársjóðir til sölu á flóa-
markaði Konukots á laugardaginn.
Hópur úr Listaháskólanum hefur
undanfarnar vikur unnið að end-
urbótum á markaðnum og verða
til sýnis ljósmyndir sem gestir
Konukots hafa sjálfir tekið. Kveikt
verður í grillinu og boðið upp á
pylsur og fleira góðgæti. Allur
ágóði rennur til Konukots.
Hvar: Eskihlíð 4.
Hvenær: Laugardaginn, klukkan
12-16.
Segið bless við
Símaskrána
Það eru tímamót í íslensku sam-
félagi. Símaskrá landsmanna,
sem hefur verið gefin út frá árinu
1905, kemur út í síðasta sinn í dag,
föstudag. Símaskráin hefur gegnt
mikilvægu hlutverki í gegnum árin
og skapað sér menningarlegan
sess í samfélaginu. Á Mokkakaffi,
klukkan 10.30, munu Goddur og
Stefán Pálsson kynna síðustu út-
gáfu Símaskrárinnar sem fer í
dreifingu í dag. Í kjölfarið kynnir
Goddur sýningu á forsíðunum í
gegnum tíðina.
Hvar: Mokkakaffi.
Hvenær: Föstudaginn, klukkan
10.30.
|35FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016