Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 40
Mynd | Rut Keppnin fer fram dagana 10., 12., og 14. maí í Stokkhólmi. Á hverju ári er talið að 180 milljónir manna fylgist með keppninni. Veðbankarnir í ár spá Rússlandi, Frakklandi og Svíþjóð sigri og stendur framlag Íslendinga, Hear Them Calling, í 19. sæti á þeim lista. Flosi Jón Ófeigsson, alþjóðafulltrúi FÁSES, segir keppnina taka breytingum. „Það er kominn nýr vinkill á keppnina. Sjónræn framsetning skiptir gríðarlega miklu máli. Til þess að gott lag sigri án tæknilegrar framsetningar þarf það að vera stórkostlegt. Það er ekki endilega besta lagið eða flutningurinn sem kemst lengst heldur framsetningin.“ Flosi spáir Rússlandi sigri í ár, líkt og veð- bankarnir. „Lagið er ekta Eurovision lag með klassísku upphækkuninni. Strákur- inn syngur vel, lítur vel út og er dansari. Mikið e rlagt í grafíkina á skjámyndinni og líklegast hafa farið nokkrar milljónir í atriðið. Hann er tmeð þetta á hreinu.“ Æfingarnar hjá Grétu Salóme á sviðinu í Stokkhólmi hafa gengið upp og ofan. Flosi segir stærð sviðsins og grafíkina þarfnast æfingar. „Það er betra að gera mistök á æfingum en á stóra kvöldinu. Hún verður okkur til sóma.“ Tölum um… Eurovison Hverjum er spáð sigri, hvaða atriði eru umdeild? Tölum aðeins um Eurovision því það verður aldrei þreytt Grundvallaratriði Staðsetning: Stokkhólmur Undankvöld: 10. og 12. maí Úrslitakvöld: 14. maí Ísland keppir: 12. maí Bannaðir fánar í áhorfendasal ISIS Palestína Wales Krímskagi Norður-Kýpur Fyrir rúmum sjö árum fór Björn, sem er 26 ára matreiðslumaður, að drekka Pepsi Max sem með tímanum þróaðist út í ávananabindandi gosneyslu. Á hverjum einasta degi drekkur hann 6-8 lítra af Pepsi Max. „Ef ég fæ ekki Pepsi Max á klukkustundar fresti byrja ég að skjálfa og fæ hausverk. Það er þetta „aspartame“ sem allir eru að tala um, ég er háður því svo þetta hefur þróast út í fíkn hjá mér,“ lýsir Björn Ágúst sem er alltaf með Pepsi Max við hönd. Á næturnar vaknar hann tvisvar til þrisvar sinnum til þess að fá sér sopa af Pepsi. „Ég vakna og verð að fá mér sopa. Það fyrsta sem ég geri síð- an á morgnana er að fá mér Pepsi sem ég hef við náttborðið. Í vinnunni er ég allt- af með flösku við skurðarbrettið.“ Þó nokkrir hafa komið að máli við Björn og beðið hann um að hætta, sem honum tókst um tíma. „Mamma og pabbi hafa talað um þetta, kærastan mín og tengdaforeldrar. Þegar ég var nemi á Hótel Rangá tókst mér að hætta í þrjá mánuði. Ég varð hins- vegar svo skapillur og hundleiðin- legur við fólk í kringum mig að ég byrjaði aftur. Fólk trúir því varla að ég drekki svona mikið, enda gríð- arlegt magn af vökva. En ég drekk heldur ekkert annað.“ Björn er ekki að velta sér mik- ið upp úr gosdrykkjunni en segir kostnaðinn helsta gallann. „Sam- kvæmt nýlegum útreikningum eyði ég 400.000 þúsund krónum á ári í Pepsi Max. Ég fer á nokkurra daga fresti og birgi mig upp af tveggja lítra f löskum í Bónus. Ég hafði samband við Ölgerðina og kann- aði hvort það væri ekki hagstæð- ara fyrir mig að kaupa bretti, þau sögðu að það væri ódýr- ara að versla í Bónus, svo ég geri það.“ Það er í kortunum hjá Birni að draga úr gosdrykkjunni og hefst átakið í mán- uðinum. „Þetta er allt í vinnslu, það gengur bara rólega. Markmiðið er að detta í eina flösku á dag fyrir næsta mán- uð. Við sjáum hvernig það gengur.“ | sgk Björn Ágúst Hansson vaknar nokkrum sinnum á nóttunni til þess að fá sér sopa af Pepsi Max. Óttarr Proppé segist hafa nördalegan áhuga á exótískum stöðum og áttunda áratugnum. Skelfur ef hann fær ekki Pepsi Max Björn Ágúst Hansson drekkur átta lítra af Pepsi Max á dag og eyðir 400.000 krónum á ári í gosdrykkinn. Hann stefnir að því að minnka drykkjuna í tvo lítra á dag „Bókin sem ég er að lesa núna er njósnakrimminn Shibumi frá 1979, eftir bandaríska höfundinn Trevanian. Bókin gerist í hátæknilegri tækni- stofnun árið 1977 og aðalpersónan er kínverk-rússnesk-þýsk-japanskur leynimorðingi sem býr í Baskalandi og sérhæfir sig í að koma hryðju- verkamönnum fyrir kattarnef. Þessi bók er stórkostleg. Það sem er svo skemmtilegt við hana er að Trevanian er svo á undan forminu sem hann notar. Hann skrifar reyfaraform þar sem hoppað er milli heimsálfa, persóna og jafn- vel áratuga, eins og ekkert sé, langt áður en slík formúla var til. Og einmitt þess vegna leyfir hann sér svo mikið, eins og til dæmis 60 síðna langan kafla um ferð leyni- morðingjans í hellaleiðangur – sem kemur plottinu ekkert við en er stórkostleg frásögn. Shibumi sameinar minn nörda- lega áhuga á exótískum stöðum og áttunda áratugnum, og þess- ari dásamlegu framtíðarmynd af tækninni sem 8. áratugurinn hafði. Svo er líka hressandi að sjá hvað karlremba, sem þótti eðlileg á þeim tíma, er orðin sjaldséð nú til dags.“ Á náttborðinu Óttarr Proppé: Shibumi sameinar nördin í mér „Þessi bók er stórkostleg. Það sem er svo skemmtilegt við hana er að Trevanian er svo á undan forminu sem hann notar. “ Ég er hrifin af framlög- um Tékk- lands og Búlgaríu en ég veit að Frakkland er talið sigurstranglegt. – Elísabet Ormslev Uppáhalds lagið mitt er frá Eistlandi og lagið frá Lettlandi er líka mjög gott. Ég óska ég mér á hverju ári að úrslitin verði óvænt, en það er því miður sjald- gæft. Ég held því að Sergey frá Rússlandi sé augljós sigurvegari í ár. – Haukur Johnson Með hvaða lagi heldur þú? 40 | FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.