Fréttatíminn - 06.05.2016, Qupperneq 50
Fann hin fullkomnu gleraugu
Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir, sam-
félagsmiðladrottning og einkaþjálfari,
fylgist vel með tískunni og sólgleraugna-
tískan er þar ekki undanskilin. Hún fjár-
festi í nýjum hátísku gleraugum í Top
Shop
fyrir
nokkrum
dögum og
þau eru strax orðin
uppáhalds. „Þau eru með hálfgerðu „cat eye“
útliti og lituðu gleri,“ útskýrir Lína sem er vel búin
fyrir sumarsólina.
„Þessi gleraugu eru í uppáhaldi því ég er búin að leita
lengi að nákvæmlega eins gleraugum og fann þau loksins.
Litað gler í sólgleraugum er það vinsælasta í dag og
„cat eye“ gleraugu eru búin að vera lengi í tísku, þannig
að þessi eru fullkomin.“
Blátt gler það heitasta
Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hrím
hönnunarhúss, er með puttann á púlsinum
þegar kemur að sólgleraugnatískunni. Á
nefinu þessa dagana
er hún með gleraugu
frá merkinu Spitfire,
módel sem kallast
Post Punk. „Þau eru bara
svo fáránlega töff. Mér finnst
ég verða algjör töffari þegar ég
set þau upp,“ segir Tinna aðspurð
hvers vegna umrædd gleraugu urðu fyrir
valinu. Þau eru ársgömul og voru að sjálf-
sögðu keypt í Hrím. En Tinna hyggst fá sér ný
gleraugu á næstunni. „Það voru að koma svo flott
ný gleraugu og það með bláu gleri. Það er það heitasta
núna. Ætla að fá mér Cyber blá fyrir sumarið.“
Pantaðu á www.curvy.is eða
kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9
Opið Alla virka daga frá kl. 11-18
og Laugardaga frá kl. 11-16
NÝ SENDING MEÐ FALLEGUM KJÓLUM
Fákafeni 9, 108 RVK
Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga frá kl.11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Flott sólgleraugu setja oft punktinn yfir i-ið þegar kemur að því að fullkomna sumar-lúkkið. Sólgleraugu eru
nefnilega alls ekki bara til að hlífa
augunum við sólinni, þó vissu-
lega gegni þau líka því mikilvæga
hlutverki. Hér er um að ræða
margbreytilegt tískufyrirbæri
sem getur dregið fram eða undir-
strikað karakter notandans. Sól-
gleraugnatískan er jafn breytileg
og fatatískan – margir fylgja
straumum og stefnum og skipta
reglulega út gleraugum, eru jafn-
vel með nokkur í takinu, á meðan
aðrir halda tryggð við ein klass-
ísk. En lykilatriðið er að það þykir
einstaklega töff að vera með flott
sólgleraugu.
Sólgleraugun fullkomna sumarlúkkið
Horft til sólar með fjórum svölum einstaklingum
Var að rokka þriggja evru Ray Kwan
Snorri Björnsson ljósmyndari átti í raun engin
almennileg sólgleraugu þegar blaðamaður bað
hann um að vera með í léttri úttekt á sólgler-
augnatískunni. „Ég var bara að rokka prútt-
uð þriggja evru Ray-Kwan gleraugu, keypt
á Magaluf, Mallorca,“ segir Snorri léttur og
á þar að sjálfsögðu við eftirlíkingu af hinum
klass-
ísku
Ray
Ban gler-
augum. Honum fannst
þetta hins vegar tilvalið tækifæri til að splæsa
í alvöru gleraugu og títaníumblönduð gleraugu frá
Han Kjøbenhavn urðu fyrir valinu. „Ég mynda mikið fyrir
Húrra Reykjavík og leigi með Ólafi Alexander, lykilstarfs-
manni þar á bæ. Ég labbaði bara inn á Hverfisgötunni og Óli
lét þessi gleraugu á hausinn á mér með því loforði að þau
myndu rústa þessa sólgleraugnakeppni.“
Týnir alltaf sólgleraugum
Sigrún Skaftadóttir, plötusnúður
og veitingastýra, er týpan sem
skiptir oft um sólgleraugu, en ein
gleraugu hafa þó fylgt henni um
tíma og eru þau í miklu uppáhaldi.
„Uppáhaldsgleraugun mín eru bleik
John Lennon sólgleraugu sem ég og
dj-félagi minn Lovísa, í Kanilsnældum,
keyptum okkur eins þegar við vorum að spila í
Kanada fyrir nokkrum árum. Ég hef átt rosalega
mörg sólgleraugu og tekst alltaf að týna þeim en
þessi virðast ætla að fylgja mér hvert sem ég fer.“
Mest notar Sigrún þó Ray Ban, New Wayfarer
sólgleraugun sín þó henni þyki þau rosalega venjuleg
og þreytt. Hún stefnir á að fjárfesta í nýjum gleraugum fyrir sumarið, enda
sannfærð um að það verði sólríkt og gott. „Ég er einstaklega hrifin af gler-
augunum frá Oliver Peoples og Persol en ég er með ótrúlegan valkvíða það
eru svo mörg falleg.“
…tíska 6 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016