Fréttatíminn - 06.05.2016, Side 16
Maðurinn býr enn í þjónustuíbúðinni
og segist ekki vilja koma óorði á starfs-
fólkið með því að segja nánar frá atvik-
inu. Hann segist kunna vel við starfsmenn
Seljahlíðar.
Þá hafði aðstandandi konu sem býr í
húsinu samband við Fréttatímann og
sagði frá því að mjög erfiðlega hafi geng-
ið að fá aðstoð fyrir hana að næturlagi.
Konan glímdi um tíma við miklar auka-
verkanir af lyfjum og var hrædd og ótta-
slegin um nætur. Fjölskyldunni hafi verið
tjáð af starfsfólki að þjónusta á nóttunni
væri ekki innifalin og starfsfólkið gæti lít-
ið fyrir hana gert. Aðstandendur hennar
hafi reynt að óska eftir auknu eftirliti með
henni á nóttunni en konan ekki talin nógu
veik til að fá viðbótarþjónustu.
Hrædd um að „fá að heyra það“
Inga Snorradóttir er meðal þeirra aðstand-
enda sem segja að seint hafi verið brugðist
við öryggiskalli íbúa að næturlagi. Hún
segir að lítið mark hafi verið tekið á orðum
móður hennar þegar hún óskaði eftir að-
stoð vegna ónæðis.
„Þannig háttaði til að á sama gangi og
hún var sjúklingur með alvarlega heila-
bilun. Var oft mikið ónæði af viðkomandi
þar sem hann rataði ekki um og ráfaði inn
í herbergi mömmu hvort sem var að degi
eða nóttu. Það kom því oft fyrir að hún
reyndi að fá næturvaktina til að koma og
fjarlægja viðkomandi og koma honum í
rúmið. Iðulega beið hún allt frá einum og
upp í þrjá klukkutíma. Svo þegar vaktin
mætti var hún sögð fara með vitleysu, að
það væri enginn á ferli.“
Inga segist hinsvegar ekki hafa haft
ástæðu til að véfengja móður sína. „Ég
horfði upp á það dag eftir dag að þessi sjúk-
lingur gekk inn í herbergi mömmu með-
an ég var í heimsókn hjá henni og hafði
því enga ástæðu til að rengja hana, þegar
hún sagði að þetta gerðist líka á nóttunni.
Ég íhugaði stundum að gista þarna, til að
kanna málið. Það hvarflaði því að manni
að næturvaktin svæfi á verðinum. Móður
minni var ekki vel við að ég kvartaði því
hún sagði að „þá fengi hún bara að heyra
það.“ Þetta er auðvitað ekki boðlegt, þegar
eldri borgurum finnst þeir þurfa að þegja
þegar á hlut þeirra er gert,“ segir Inga.
Inga segir að móðir hennar hafi viljað
læsa að sér til að fá svefnfrið á nóttunni
en hún hafi verið beðin um að gera það
ekki. „Okkur þótti það skrýtið og ég veit
að hún óhlýðnaðist því stundum og læsti.“
Máttlaus svör forstöðukonunnar
Inga segist gera sér grein fyrir að öldrun-
arþjónusta sé fjársvelt og að vandamálin
stafi af því. „Vandamálið í Seljahlíð er fyrst
og fremst mannekla. Það hefur engin tíma
til að gefa sig að fólkinu og tala við það. Ég
veit ekki hvort önnur yfirstjórn gæti gert
betur með þá peninga sem borgin lætur
í þetta. Mamma vildi samt alls ekki að ég
kvartaði við starfsfólkið. Hún hafði sjálf
unnið við umönnun og vissi ýmislegt um
hvernig svona hlutir ganga fyrir sig. Ég
þurfti hreinlega að stelast til að gera at-
hugasemdir án þess að segja henni frá því.
Mér fannst eins og það vantaði að sam-
skipti á milli vakta í húsinu og skilaboðin
bærust ekki til allra. Eftir að mamma lést
fannst mér ég verða að segja forstöðukonu
heimilisins frá því hvernig við upplifðum
þetta svo það væri hægt að bæta úr. Meðal
þess sem ég nefndi var að hún hefði ítrek-
að orðið fyrir ónæði á nóttunni. Ég fékk
þau svör að mamma hefði átt það til að
bíta fólk af sér og hvæsa. Mér finnst ekki
rétt að fólk veigri sér við að veita gömlu
fólki hjálp, af þessum ástæðum. Ég upp-
lifði samtalið við forstöðukonuna að hún
teldi að lítið væri hægt að gera til að breyta
þessu. Ég áttaði mig á því að það væri of
seint í rassinn gripið. Mér fannst samt gott
að geta sagt henni frá þessu í þeirri von að
hlutirnir yrðu lagaðir.“
VÍKURVERK NOTAÐIR VAGNAR • KAUPTÚNI 3 • 210 GARÐABÆ • SÍMI 522 2222 • WWW.VIKURVERK.IS
NÚNA ER MIKIL SALA Í NOTUÐUM FERÐAVÖGNUM.
Ef þú ert að selja eða kaupa notaðan tjaldvagn, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl þá ert þú velkomin til okkar
að Kauptúni 3. (Beint á móti IKEA) þar sem við erum með flesta notaða ferðavagna.
Hafðu samband við okkur í síma 522 2222 eða notadir@vikurverk.is
VÍKURVERK - NOTAÐIR VAGNAR
Ástandið gæti versnað með
þenslunni
Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, segir að tvö þessara mála séu á
borði borgarinnar. Þau séu til skoðunar. „Við tökum
málin alvarlega og okkur finnst þetta miður og viljum
látum fara yfir hvert einasta atvik.“
Meðal annars er vilji til að taka í notkun nútíma-
legra öryggiskerfi í húsinu. Öryggiskallkerfi Seljahlíðar
er fjórtán ára gamalt. „Við viljum geta séð og skrásett
hringingar í kerfinu og hversu oft er hringt úr hverri
íbúð.“
Hún segir ýmis-
legt hafa komið í ljós
við skoðun málanna
tveggja sem fjallað
var um í fjöl-
miðlum í síðustu
viku. Málin hafi
reynst flóknari
en þau virtust
vera í fyrstu.
„En algengur mis-
skilningur er að Selja-
hlíð sé dvalarheimili og að þjónustan eigi að vera í
samræmi við það. Raunin er að þetta er íbúðakjarni
þar sem bæði eru 49 þjónustuíbúðir sem fólk leigir
af Félagsbústöðum og svo 20 hjúkrunarrými þar sem
veitt er hjúkrunarþjónusta. Þjónustuíbúðirnar eru
búnar öryggiskallkerfi en þar er veitt lágmarksþjón-
usta. Þjónustuíbúðirnar njóta hinsvegar góðs af mann-
auðnum sem er til staðar vegna hjúkrunarrýmanna.
Við greiðum um það bil 50 milljónir á ári með þessum
hjúkrunarrýmum, meðal annars vegna þess að þjón-
ustan flæðir yfir í þjónustuíbúðirnar.“
Aðspurð hvort ekki sé nauðsynlegt að geta treyst
því að gamalt fólki fái hjálp þegar það hringir öryggis-
kallkerfinu, svarar hún: „Jú, að sjálfsögðu.“
Hún viðrar hinsvegar áhyggjur sínar af því að
þenslan í þjóðfélaginu eigi eftir að bitna enn fremur á
öldrunarþjónustu. „Ef fólk hefur áhyggjur af mönnun
á slíkum úrræðum í dag, þá tel ég líklegt að ástandið
eigi eftir að versna. Þessi staðir eiga í vök að verjast
með að fá hæft starfsfólk á næstunni. Öldrunarþjón-
ustan er oftast fyrsti staðurinn sem áhrif þenslunnar
gætir.“
Berglind
Magnúsdóttir,
skrifstofu-
stjóri vel-
ferðarsviðs
Reykjavík-
urborgar,
segir vilja
til að kaupa
nýtt öryggis-
kerfi í Seljahlíð.
Þetta var bara eina úrræðið sem hann fékk,
því það var ekkert annað pláss,
Ásta Bjarndís um föður sinn sem bjó í
Seljahlíð þar til hann lést árið 2014.
16 | FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016