Fréttatíminn - 06.05.2016, Side 44
Spurt er... Hvað er
best við mömmur?
HELGIN
Í ÆÐ
Gott að bjóða í hjól Nú þegar sumarið er
komið er tilvalið að labba eða hjóla í vinn-
una í stað þess að hírast í bílnum alla daga.
Fyrir þá sem vantar fák til ferða sinna fer
árlegt hjólauppboð lögreglunnar fram á
morgun, laugardag. Hjól eru sjaldan ódýr
og því gáfulegt að missa ekki af þessu tæki-
færi til að kaupa ódýrt og gott hjól.
Gott að vera með mömmu Það
er mæðradagur á sunnudaginn og
því skylda að stjana við móður sína.
Gott er að koma henni á óvart með
blómum, pönnukökum, leikhúsi eða
góðri samverustund. Í það minnsta
er gott að föndra kort og kyssa
hana á kinnina.
GERIR ALLT
SÉRSTAKT
Gréta Salóme
„Mamma mín hefur einstakt lag á
að gera öll tilefni ótrúlega sérstök.
Hún heldur upp á pínulítil tilefni á
ótrúlega fallegan hátt og gerir alla
hluti svo sérstaka. Dæmi um það
eru pönnukökukvöldin heima þegar
hún kveikir upp í arninum og við
komum okkur fyrir með nýbak-
aðar pönnukökur. Og hún þarf ekki
stærra tilefni en þriðjudagskvöld til
að gera það.“
ÞARF ENGIN ORÐ
Jóhanna Rakel Jónasdóttir
„Það besta við mömmur er þegar
maður kemst í ákveðið tilfinninga-
legt ástand og orðin bregðast manni,
maður er annað hvort sjúklega
spenntur eða sorgmæddur, þá
skilur mamma hvað er í gangi. Það
þarf engin orð því hún veit hvað
bærist innra með manni, það er full-
komnun.“
MÖMMUR ERU
SKAPARAR
Unnsteinn Manuel Stefánsson
„Mömmur skapa mann og halda
þeirri sköpun áfram alla
lífsleið manns. Það
besta við mömmur
er það sem maður
tekur með sér úr
þeirra fasi út í lífið.
Þegar maður
eldist sér
maður for-
eldra sína
í sjálfum
sér, hvort
sem manni
líkar betur
eða verr.
Mömmur
leggja manni
línurnar með
góðu og illu til
dauðadags.“
Gott að ganga Á sunnudag-
inn fer fram vorganga Göng-
um saman, styrktarfélags til
rannsókna á brjóstakrabba-
meini. Gengið verður í 16
bæjarfélögum víðsvegar um
landið. Gómsætar brjósta-
bollur verða til sölu í bakaríum landsins.