Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 06.05.2016, Page 51

Fréttatíminn - 06.05.2016, Page 51
flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Láttu buxurnar halda sínu lagi Hver hefur ekki lent í því að kaupa svartar, þröngar buxur sem passa fullkomlega, bæði þegar þær eru mátaðar og við fyrstu notkun? En svo aflagast þær mjög fljótt, sérstaklega á álagssvæðum eins og hnjám og rassi. Víkka út og hætta að vera jafn klæði- legar og í fyrstu. Þetta er alveg einstaklega hvimleitt vandamál og þá virðist engu skipta hvort buxurnar eru dýrar og vandaðar eða ódýrar. Til þess að komast hjá þessu vandamáli er mikilvægt að kunna að lesa á miðana á fötunum áður en þau eru keypt. Samsetn- ingin á efninu sem fötin eru gerð úr þarf nefnilega að vera rétt. Til að buxur haldi lagi sínu vel þarf efnið að innihalda að minnsta kosti 2 prósent lycra. Kate Upton trúlofuð Fyrirsætan Kate Upton opin- beraði trúlofun sína og unnust- ans Justins Verlander í vikunni. Kate Upton skartaði glæsilegum demantshring á rauða dreglinum á Met Gala og var himinsæl þegar hún var spurð út í ráðahaginn. Kate og hafnaboltastjarnan Justin Verlander hafa verið lengi saman og hafa sögur verið á kreiki um trúlofunina. „Ég er mjög spennt. Hann bað mín áður en tímabilið hófst svo við höfum haldið þessu lengi í þó nokkurn tíma. Ég er mjög glöð að geta loksins deilt þessum fréttum með öllum!“ sagði þessi 23 ára gamla fyrirsæta. 7 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.