Fréttatíminn - 06.05.2016, Side 52
Mikilvægt að næra húðina í sumar
Iroha andlitsmaskarnir eru tilvaldir til að fríska og hressa upp á húðina þegar sólin hækkar á lofti
Unnið í samstarfi við
Halldór Jónsson
Mikilvægt er að næra húð-ina vel yfir sumartímann. Ef fólk passar upp á að viðhalda raka er minni
hætta á að það flagni og þá er frísk-
leika húðarinnar viðhaldið. Iroha
andlitsmaskarnir eru tilvaldir til að
fríska og hressa upp á húðina þegar
sólin hækkar á lofti. Iroha maskarnir
eru mjög sniðugir í ferðalagið til að
fríska upp á húðina og gefa henni
raka.
Iroha hefur sett á markað nýja
andlitsmaska fyrir bæði andlit og
háls. Annars vegar rakamaska (mo-
isture) og hins vegar maska sem
vinnur á þroskamerki húðarinnar
(antiaging). Rakamaskinn er bæði
fyrir venjulega og þurra húð, en
hann bæði mýkir húðina og gefur
henni raka. Maskinn sem vinnur á
þroskamerkjum húðarinnar kemur
í veg fyrir og dregur úr hrukkum
og öldrunarmerkjum. Húðin verður
bjartari og frísklegri.
Fótameðferðasokkurinn hefur
slegið í gegn og er tilvalinn í undir-
búning fyrir sumarið. Fótameð-
ferðasokkurinn losar sigg og hart
skinn með því að flýta fyrir náttúru-
legu ferli endurnýjunar húðarinnar.
Sokkurinn er hafður á fótunum
í 90-120 mínútur, fæturnir eru svo
skolaðir á eftir og fjórum til sjö
dögum síðar byrjar húðin að endur-
nýja sig. Hart skinn og dauðar húð-
frumur detta af og fæturnir verða
silkimjúkir. Tilvalið fyrir þá sem eru
að undirbúa sig fyrir sandalana í
sumar. Iroha merkið er með fjöl-
breytt úrval af möskum fyrir andlit,
hendur og fætur. Allar Iroha maskar
eru án parabena.
Losar sigg Fótameðferðarsokkurinn hefur slegið í gegn en hann losar sigg og
hart skinn með því að flýta fyrir náttúrulegu ferli endurnýjunar húðarinnar.
Fyrir venjulega og þurra húð Iroha hefur sett á markað nýja andlitsmaska fyrir bæði andlit og háls. Ann-
ars vegar rakamaska (moisture) og hins vegar maska sem vinnur á þroskamerki húðarinnar (antiaging).
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þetta er búið að vera langt ferli. Löng saga sem hefur tekið miklum breytingum,“ segir Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir
fatahönnuður, sem útskrifaðist af
fatahönnunarbraut Listaháskóla
Íslands nú vor. Útskriftarverkefni
Ólafar ber heitið Burakumin, sem
er í raun niðuryrði um verkafólk frá
ákveðnu svæði í Japan. En hún sæk-
ir einmitt innblástur sinn þangað.
Skapaði karakter
Vinna við verkefnið hófst fyrir jól,
þá með því að skapa karakter og
heilan heim í kringum hann. „Ég
leitaði mér upplýsinga á netinu
og fann bæ rétt fyrir utan Tókýó,
sem enginn býr í lengur og búið
er að taka út af korti, því Japanir
skömmuðust sín svo mikið fyrir
hann. Fólkið sem bjó þarna var
kallað Burakumin og nafnið hefur
fylgt afkomendum íbúanna alveg til
dagsins í dag. Ég vildi að mín stelpa,
minn karakter, væri þaðan. Hún
er verkamaður í nútímamenningu
þar sem glamúr og peningar ráða
ríkjum. Hún er skemmtilega skrýtin
kona sem gefur skít í væntingar
annarra, það er enginn beauty-
filter til í hennar lífi. Hún spáir
ekki í reglur hvað varðar klæða-
burð og lætur ekki segja sér hvað
er við hæfi. Samsetningar hennar
eru duttlungum háðar en verða
óvænt praktískar og hagsýnar.
Fegurðina sér hún í öllu og blandar
óhefðbundnum fatnaði saman á
ófyrirséðan og spennandi hátt. Hún
stígur út fyrir staðalímyndina og
kemur fram sem hún sjálf.“
…tíska
kynningar
8 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Ég er að hugsa
næstu skref og
skoða hvað er í boði.
Þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt
nám. Sérstaklega að
fá að búa til svona
heim og skapa sögu.
Þetta er miklu dýpra
en að búa bara til
fallega flík.
Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir
Verðandi fatahönnuður
Gott að fara ómótuð inn í námið
Ólöf er nýútskrifuð sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands. Hún sótti innblástur í lokaverkefnið frá japönsku verkafólki.
miklu dýpra en að búa bara til fal-
lega flík.“
Það er ekki langt síðan áhugi
hennar á fatahönnun kviknaði og
hún fór með mjög ómótaðar hug-
myndir inn í námið. „Ég var ekki
með neina hönnun á bak við mig
sem mér fannst mjög gott. Það
hentaði mér allavega ágætlega að
fara ómótuð inn í námið.“
Vill byrja hjá litlu fyrirtæki
Þrátt fyrir að Ólöf sé ekki alveg
búin að ákveða hvað hún ætlar að
gera í framhaldinu, þá hefur hún
ákveðnar hugmyndir. Hún vinnur
nú að því að setja saman möppu
með verkum sínum og sér fyrir sér
að sækja um störf hjá minni fyrir-
tækjum erlendis. Hana langar frek-
ar að byrja á því heldur að reyna að
komast inn í stóru tískuhúsin. Byrja
á stað þar sem samstarfsfélagarnir
þekkja andlitin á hver öðrum.
Hún fékk þó nasaþefinn af há-
tískunni í París þegar hún var í
starfsnámi á fyrsta ári. „Þar fékk
ég að sjá hvað bransinn er stór
og í raun allt öðruvísi en ég hafði
ímyndað mér.“
Sýning á verkum útskriftarnema
Listaháskóla Íslands stendur yfir til
8. maí í Listasafni Reykjavíkur.
Nútímaleg lína
Ólöf segist hafa reynt að fara eins
djúpt og hún gat í að skapa karakt-
erinn sinn og bakgrunn hans til
að gera allt sem raunverulegast.
Fatastíllinn var svo skapaður út
frá því. „Ég ímyndaði mér það út
frá hennar áhugamálum og starfi
hvernig hún myndi klæða sig og
þetta var útkoman,“ segir Ólöf og
vísar til fatalínunnar.
Hún vonast til að geta gert eitt-
hvað meira með verkefnið og
jafnvel komið flíkum úr línunni
í sölu. „Þetta er nútímaleg lína
sem passar vel við það sem er að
gerast í dag. Ég held að þetta vakið
áhuga einhverra,“ segir Ólöf hóg-
vær. Hún viðurkennir að vera ekki
komin með plan varðandi fram-
haldið, enda ennþá að ná áttum
eftir erfiða törn í náminu. „Ég er
að byrja að hugsa næstu skref og
skoða hvað er í boði. Þetta er búið
að vera mjög skemmtilegt nám.
Sérstaklega að fá að búa til svona
heim og skapa sögu. Þetta er
Ung og efnileg Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir er að útskrifast úr fatahönnun og langar að
vinna í útlöndum. Mynd | Hari