Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 51
Comma fagnar
haustinu
Falleg föt á allar konur.
Unnið í samstarfi við Comma
Comma er alþjóðlegt tísku-fyrirtæki sem hefur í meira en 40 ár lagt sig fram af ástríðu við að fanga tíðar-
andann og gleðja augað.
Tískuvöruverslunin Comma legg-
ur áherslu á falleg föt sem henta
konum á öllum aldri. Nú eru haust-
vörurnar að streyma inn. Fallegir
litir eru áberandi í ár og segja má
að tískan sé notaleg og töff í senn.
Ný sending kemur vikulega og lögð
er áhersla að panta fáar flíkur af
hverri en fá heldur oftar inn ný föt.
Litatónar BOHO línunnar eru
burgundyrautt í bland við fallega
haustliti. Þar má nefna dökkbláan,
drapp, kremaðan og fallegan bleik-
an tón sem gefa tóninn fyrir ágúst-
línu Comma.
Í haust er fókusinn á efni sem
eru tvöföld sem skapa skemmti-
leg „lög“.
Leður er áberandi í sambland við
fallegar mjúkar peysur. Mikið er um
ermastuttar peysur sem flottar eru
undir peysujakka. Blómaprent með
Bohemian áhrifum er einkennandi
munstur línunnar.
Kvenlegir straumar, sem minna
á 8. áratuginn, eru einnig áberandi.
Mittið er undirstrikað með belti til
dæmis, aðsniðin pils við prentaðar
skyrtur og nútímaleg prjónavesti.
Þessi klæðnaður undirstrikar fal-
legar línur og kvenleika.
Casual Identity er afslappaðri
lína COMMA. Þar má finna flott
snið í buxum eins og „boyfriend“,
cino og grófar töff peysur og
skyrtur.
Í hverjum mánuði er Comma
með nýja tískulínu þar sem við
föngum það allra besta úr nýju-
stu tískustraumum heimsins sem
ganga alveg frá vinnustaðnum, að
heimilinu og að rauða dreglinum.
Comma snýst um meira en tísku.
Comma snýst um að hver kona
skapi sér sinn eigin stíl og líði vel í
eigin skinni.
Hægt er að fylgjast með okkur á
facebook/commaiceland. Comma
er í Smáralind. Sent er um allt land.
…tíska kynningar7 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016