Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 68
Fjölbreytt íþróttastarf hjá
Íþróttafélagi Reykjavíkur
Hægt er að velja milli 10 íþróttagreina hjá ÍR
Íþróttaskóli 2-5 ára
Sérhæfðir íþróttatímar fyrir 2-3 ára börn og 4-5 ára börn með áherslu á
alhliða hreyfinám.
Fótbolti
Knattspyrnudeildin býður upp á öflugt starf og æfingar fyrir stráka og
stelpur frá 5 ára aldri í þessari vinsælustu íþrótt í heiminum.
Handbolti
Handknattleiksdeildin er ein sú öflugasta á landinu og býður upp á æf-
ingar fyrir börn, unglinga og fullorðna frá 5 ára aldri.
Unnið í samstarfi við ÍR
Afar fjölbreytt og grósku-mikið vetrarstarf ÍR á íþróttasviðinu hefst 29. ágúst. Opnað verður
fyrir skráningu föstudaginn 19.
ágúst. Þráinn Hafsteinsson er
íþróttastjóri hjá ÍR. Hann vekur
sérstaka athygli á ÍR-ungum sem
er íþróttastarf fyrir börn í 1. og
2. bekk. „Börnin geta valið um
6 íþróttagreinar en borgað bara
eitt gjald. Þetta hefur mælst mjög
vel fyrir. Börnin geta flakkað
milli greina og prófað sig áfram
eða verið í mörgum greinum
sam tímis,“ segir Þráinn.
Hann leggur áherslu á að þegar
börn séu þetta ung fái þau að
kynnast sem fjölbreyttustum
íþróttum sem hjálpar þeim að
finna sína línu. „Í tengslum við
þetta starf gengur svo strætó
um hverfið og í frístundaheim-
ilin. Flestar æfingarnar eru í
Austur bergi og strætó er kominn
klukkan 3 á staðinn. Ef æfingin
byrjar klukkan fjögur fara börnin
í frístund þangað til en ef æfingin
byrjar strax klukkan 3 geta
börnin verið í frístund milli 4 og
5. Aðalatriðið er að gera þetta
sem auðveldast fyrir krakkana
og foreldrana.“
Vetrarstarf í tíu íþróttagrein-
um hjá ÍR
Íþróttastarfið hjá ÍR er afar fjöl-
breytt og leitað er eftir því að allir
finni eitthvað við sitt hæfi með
því að hafa mikið framboð ólíkra
íþróttagreina.
Fimleikar
Fimleikastarf hjá ÍR er í þróun eftir að hafa legið niðri í Breiðholti um í langan tíma. Áhersla á æfingar fyrir
5-10 ára.
Júdó
Júdódeildin er nú að efla starf-
semi sína og býður upp á æfingar
fyrir bæði kyn frá 8 ára aldri.
Keila
Keiludeildin er sú öflugasta á sínu
sviði hér á landi með æfingar fyrir
6 ára og eldri.
Körfubolti
Körfuknattleiksdeild ÍR á langa sögu að baki og hefur verið að efla
starfsemi sína undanfarin ár með áherslu á uppbyggingu barna- og
unglingastarfs.
100 æfingaflokkar og 120 þjálfarar
Á haustönninni má gera ráð fyr-
ir að 2000 iðkendur æfi undir
merkjum ÍR. Æfingaflokkarnir
eru á annað hundrað og þjálfar-
ar um 130. Æfingar fara fram í
ÍR-heimilinu, íþróttahúsunum við
Breiðholtsskóla, Austurberg og
Seljaskóla, Laugardalshöll, Egils-
höll, Bláfjöllum og á ÍR-vellinum.
1000 sjálfboðaliðar
Á annað þúsund sjálfboðaliða
leggja svo ómælda vinnu árlega
í að halda íþrótta- og félagsstarf-
inu hjá ÍR öflugu við afar kröpp
fjárhagsleg skilyrði. Þjálfararnir
eru þeir einu í öllu starfi íþrótta-
deilda ÍR sem fá laun fyrir sína
vinnu. Á skrifstofu félagsins
vinna fjórir einstaklingar í fjórum
stöðugildum við aðstoð við sjálf-
boðaliða og þjálfara deildanna.
Með útsjónarsemi, aðhaldi og
gríðarlegri sjálfboðavinnu hefur
tekist að reka deildir félagsins
og skrifstofu þannig að sómi er
að og eftir tekið í íþróttahreyf-
ingunni.
…tómstundir 8 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016