Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 66
Unnið í samstarfi við
Ju-Jitsufélag Reykjavíkur
Við bjóðum öllum að koma hingað og prófa tvær æfingar til að kynnast íþróttinni og sjá út á
hvað þetta gengur,“ segir Sensei
Magnús Ásbjörnsson, aðalkennari
Ju-Jitsufélags Reykjavíkur.
Ju-Jitsu á uppruna sinn að
rekja til Japans og er ein elsta
sjálfsvarnaríþrótt í heimi. All-
ir geta stundað hefðbundið Ju
jitsu, óháð líkamlegu ásigkomu-
lagi; ungir sem aldnir, konur og
karlar, enda er ástundun þessarar
íþróttar á forsendum iðkandans,
sem fer í gegnum þjálfunaráætlun
á eigin hraða.
„Ég vil auðvitað að sem flestir
viti hversu góð íþrótt þetta er
fyrir alla. Við erum reyndar ekki
bara að kenna íþróttina því við
leggjum gríðarlega áherslu á að
fólk hreyfi sig rétt. Það skilar sér
líka í daglega lífinu því ef fólk
hreyfir sig rétt er minni hætta á
slysum. Ég segi oft við nemend-
ur mína að bakið þeirra sé eina
bakið sem þeir fá og þeir verði að
passa það næstu hundrað árin,“
segir Magnús.
„Ég vil meina það að allar
manneskjur hafi rétt til að verja
sig sjálfar og allir sem andann
draga geta varið sig að einhverju
leyti. Mitt hlutverk sem Ju-Jitsu
þjálfari sé að hjálpa nemendum
mínum til að betrumbæta þær
hreyfingar sem fólk getur fram-
kvæmt til að gera þær skilvirkari
og öruggari í sínu daglega lífi. Í
kennslunni tökum við það skýrt
fram að við erum ekki að gefa
fólki neitt skotleyfi til að misnota
sjálfsvarnarþekkinguna. Ef ein-
hver misnotar þá þekkingu sem
viðkomandi lærir hjá Ju-Jitsufé-
laginu þá verður viðkomandi að
gera sér grein fyrir að þurfa að
bera ábyrgð á gjörðum sínum.“
Ju-Jitsufélag Reykjavíkur fagn-
ar 20 ára afmæli á næsta á ári. Að
sögn Magnúsar var þó Ju-Jitsu
stundað hér á landi fyrir 1920.
Þá stóð verkalýðshreyfingin fyrir
kennslu í íþróttinni í skamman
tíma. Það var svo upp úr 1990
að byrjað var að kenna Ju-Jitsu
sjálfsvörn með skipulögðum
hætti og hefur staðið óslitið síð-
an.
Frá árinu 1999 hóf Ju-Jitsu-
félagið æfingar fyrir börn og
unglinga og eru æfingar ætlað-
ar fyrir börn frá átta ára aldri.
Börn og unglingar fylgja sérstakri
þjálfunaráætlun sem tekur mið af
líkamsburði þeirra og andlegum
þroska. Barnaæfingar eru eðlilega
sambland náms og leikja. Börnin
læra helstu lása og tök til að verja
sig, læra aga og sjálfstjórn og
læra að bera virðingu hvert fyrir
öðru. Á milli tæknilegra æfinga fá
þau óspart tækifæri til útrásar í
leikjum og ærslagangi.
„Hjá Ju-Jitsufélaginu leggj-
um við áhersla á að byggja upp
sjálfstraust einstaklingsins og fá
þá til að huga að þeim hættum
sem þeir geta lent í á lífsleiðinni.
Lögð er áhersla á að sjálfsvörn er
aðeins notuð sem nauðvörn og að
slagsmál leiða aldrei til lausna.“
Hjá félaginu æfir reglulega fólk
á öllum aldri frá átta ára aldri og
þeir elstu eru yfir sjötugt. „Fólk
er aldrei of gamalt til að byrja að
æfa Ju-Jitsu,“ segir Magnús.
Sensei Magnús heldur utan
um og ber ábyrgð á allri kennslu
hjá félaginu sem og gráðunum
en hefur sér til aðstoðar nokkra
góða kennara til að sjá aðallega
um barnakennsluna en einnig
kennslu fullorðinna ef þörf er á
því. Kennarar eru af báðum kynj-
um.
„Við kennum eftir ákveðnu
prógrammi þar sem farið er yfir
ákveðið efni fyrir hvert belti. Svo
er tekið próf í því og farið yfir í
næsta belti. Við kennum eftir æf-
ingar- og kennslukerfi frá Shogan
Ju-Jitsu International, sem er
okkar heimssamband og þýðir
að fólk sem æfir hjá okkur getur
gengið inn í hvaða klúbb í útlönd-
um sem kennir eftir sama kerfi og
byrjað að æfa.“
Æfingaaðstaða Ju-Jitsufé-
lagsins er í Ármúla 19 og eru allir
velkomnir þangað á æfingatím-
um félagsins, „hvort sem er til að
prófa æfingu eða bara hitta okkur
og fræðast um hvað við erum að
gera.“
Nánari upplýsingar um félag-
ið, kennara þess, æfingatíma og
fleira má finna á heimasíðunni
www.sjalfsvorn.is og undir
Jujitsuiceland á Facebook.
Unnið í samstarfi við
Söngskólann í Reykjavík
Söngskólinn í Reykjavík býður upp á söngnám við allra hæfi. Framundan eru inntökupróf í Söngskól-
ann en allir umsækjendur þreyta
inntökupróf. Þar er hlustað eftir
því hvort röddin er óskemmd og
með góða þroskamöguleika, gott
tóneyra þarf að vera til staðar
og önnur undirbúningsmenntun
hjálpar auðvitað til, þótt hún sé
ekki skilyrði fyrir inntöku í Söng-
skólann í Reykjavík.
Í Söngskólanum eru nemendur
á öllum aldri, allt frá byrj-
endum, sem geta hafið
nám við skólann
frá 11 ára aldri, til
nemenda sem
stefna að út-
skrift sem að
einsöngvarar
eða söng-
kennarar.
Skólinn býð-
ur einnig upp á
ýmis námskeið;
helgarnámskeið
fyrir kóra, söngnám-
skeið utan venjulegs
vinnutíma, fyrir söngáhugafólk
á öllum aldri og ýmis meistaranám-
skeið og fyrirlestra fyrir söngnem-
endur, söngvara og söngkennara
og um miðjan september, munu
prof. Regine Köbler, söngkennari
við Tónlistarháskólann í Vínarborg
og Marcin Koziel, píanóleikari við
sama skóla og við Kammeroper
Wien og Theater an der Wien vera
með meistaranámskeið í Söngskól-
anum, námskeið sem einnig verður
opið áheyrendum.
Garðar Cortes stofnaði Söng-
skólann í Reykjavík árið 1973.
Garðar nam sjálfur við tónlist-
arháskóla í Bretlandi og frá upp-
hafi hefur Söngskólinn haft sam-
starf við The Associated Board
of the Royal Schools of Music í
Bretlandi. Þaðan koma prófdóm-
arar, tvisvar ár hvert og meta
frammistöðu nemenda. Skólinn er
staðsettur miðsvæðis í Reykja-
víkurborg, í eigin húsnæði að
Snorrabraut 54 og þar iðar allt af
lífi og hljómar af söng og titrar af
dansi. Skólinn rekur einnig sinn
eigin tónleikasal; Snorrabúð.
Námið er deildaskipt, Unglinga-
deildir, fyrir 11-15 ára nemend-
ur, þar sem nemendur
öðlast undirstöðu í
réttri raddbeitingu,
kynnast alls kon-
ar tónlist, m.a.
léttri tónlist og
söngleikjatón-
list, sem er vin-
sæl hjá þessum
aldurshópum,
ekki síst þar
sem einnig er lagt
upp úr leikrænni
þjálfun, dansi og
hreyfingum með tón-
listinni. Námið veitir nem-
endum ómælda gleði og byggir
upp sjálfstraust. Allir nemendur
unglingadeilda koma fram á tón-
leikum og/eða söngleikjasýning-
um. Stúlkur hafa verið í meirihluta
nemenda í unglingadeildum, en
nú í haust er töluverð aðsókn
ungra manna.
Almennt nám skiptist í grunn-
nám, miðnám og framhaldsnám
og síðan er boðið upp á háskóla-
nám, sem skiptist í einsöngv-
ara- og söngkennaranám, en
langflestir söngkennarar á Íslandi
hafa einmitt hlotið menntun sína í
Söngskólanum í Reykjavík.
Allir nemendur skólans koma
fram á tónleikum minnst tvisvar
á ári og Nemendaóperan, sem
starfrækt hefur verið frá upphafi,
setur upp eina til tvær sýningar ár
hvert. Síðasta vor var Töfraheim-
ur prakkarans eftir Ravel sýnd í
Kaldalóni Hörpu, tvisvar fyrir fullu
húsi og við afar góðar undirtekt-
ir áheyrenda, en þar komu fram
18 af nemendum skólans, öll með
einsöngshlutverk og þátttöku í
fjölda hóp- og dansatriða.
Í vetur er í uppsiglingu sýning á
einni vinsælustu óperu allra tíma;
Töfraflautu Mozarts. Það eru þær
Sibylle Köll, söngvari og dansari,
og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari
sem stjórna sýningum Nemenda-
óperunnar.
„Fyrir alla sem vilja syngja, er
afar mikilvægt að læra frá grunni
að beita röddinni rétt. Misbeiting
getur valdið varanlegum radd-
skemmdum. Það er svo mikilvægt
að gera sér grein fyrir að það
skiptir ekki máli hvaða tegund
tónlistar maður vill helst syngja,
dægurlög, söngleikjalög, óperettu
eða óperusöng, þeir sem velja
sér sönginn sem atvinnu, þurfa
að vera tilbúnir að „söðla um“ og
taka þátt í ýmis konar söng-upp-
ákomum, ef þeir ætla að gera
sönginn að ævistarfi,“ segir Ásrún
Davíðsdóttir aðstoðarskólastjóri.
„Þetta hef ég svo oft feng-
ið staðfest, frá söngvurum, sem
numið hafa við Söngskólann í
Reykjavík og byggt á þeirri tækni,
þeir eru ávallt svo þakklátir fyrir
að hafa grunnþekkingu og tækni
Eftirminnileg uppsetning Nemendaóperan setur upp eina til tvær sýningar ár hvert. Síðasta
vor var Töfraheimur prakkarans eftir Ravel sýnd í Kaldalóni Hörpu, tvisvar fyrir fullu húsi.
Söngnám við allra hæfi
Framundan eru inntökupróf í Söngskólann í Reykjavík og fjölbreytt vetrardagskrá.
til að byggja á, út á hvaða braut
sem þeir fara í söngnum. Ég nefni
hér nöfn nokkurra þekktra söngv-
ara, sem numið hafa við Söng-
skólann í Reykjavík í lengri eða
skemmri tíma; Eivör Pálsdóttir,
Kristjana Stefánsdóttir, Svavar
Knútur, Garðar Thór Cortes, Þóra
Einarsdóttir, Kristinn Sigmunds-
son, svo nokkrir séu nefndir, sem
getið hafa sér orð á mismunandi
sviðum tónlistar.“
Allar nánari upplýsingar um
námið og skólann má finna á
heimasíðunni songskolinn.is.
„Fyrir alla
sem vilja syng
ja,
er afar mikilvæ
gt
að læra frá gru
nni að
beita röddinni
rétt.
Misbeiting ge
tur
valdið varanle
gum
raddskemmdu
m.
Allir geta
stundað Ju-Jitsu
Ju-Jitsufélag Reykjavíkur fagnar 20 ára afmæli
á næsta ári.
Allir velkomnir Öllum er frjálst að mæta á tvær æfingar hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur til að prófa.
Góð íþrótt fyrir alla Sensei Magnús
Ásbjörnsson er yfirþjálfari hjá Ju-Jitsufélagi
Reykjavíkur.
…tómstundir kynningar 6 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016