Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016
Heilbrigðismál Læknadeild
Háskóla Íslands bað um fund
með Siðfræðistofnun skólans
út af bréfi um plastbarkamál-
ið. Ágreiningsefnið er meðal
annars hvort rannsaka þurfi
málið sérstaklega á Íslandi
eða ekki. Stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd íhugar nú
hvort rannsaka þurfi málið á
Íslandi en nokkrar rannsókn-
ir fara fram á því í Svíþjóð.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Læknadeild Háskóla Íslands er ósátt
við Siðfræðistofnun skólans vegna
ummæla þriggja siðfræðinga um
plastbarkamálið svokallaða í bréfi
til heilbrigðisráðherra, Kristjáns
Þórs Júlíussonar, í lok mars. Í bréf-
inu færðu siðfræðingarnir rök fyrir
því að gera þyrfti sérstaka rannsókn
á málinu á Íslandi. Þar var plast-
barkamálið kallað „eitt alvarlegasta
siðferðisslys í heilbrigðisþjónustu
á Norðurlöndum“ og bent á mik-
ilvægi þess að sett yrði á fót „sér-
stök rannsókn“ á málinu á Íslandi.
Greint var frá bréfinu í fjölmiðlum
í lok maí.
Plastbarkamálið er alþjóðlegt
hneykslismál sem snýst um að-
gerðir ítalska skurðlæknisins Paolo
Macchiarinis á Karolinska-sjúkra-
húsinu í Svíþjóð á árunum 2011 til
2013. Í aðgerðunum græddi Macchi-
arini barka úr plasti í nokkra sjúk-
linga, meðal annars Andemariam
Beyene, Erítreumann sem búsettur
var á Íslandi, án þess að aðgerðar-
formið hefði verið kannað vís-
indalega og prófað á dýrum áður.
Læknir Andemariams, Tómas Guð-
bjartsson, kom honum til meðferð-
ar á Karolinska-sjúkrahúsið vegna
krabbameinsæxlis í hálsi vorið
2011. Plastbarkinn virkaði aldrei
sem skyldi og lést Andemariam í
ársbyrjun 2014.
Forseti læknadeildar Háskóla Ís-
lands, Magnús Karl Magnússon,
segir að deildin hafi óskað eftir
fundi með Siðfræðistofnun vegna
rangfærslna sem komið hafi fram
í bréfi Siðfræðistofnunar. Með-
al þess sem deildin gagnrýnir er
að Siðfræðistofnun leyfi sér að
kalla plastbarkamálið „siðferðis-
slys“ áður en niðurstöður liggja
fyrir úr rannsóknum á málinu.
„Grundvallaratriði er að rannsókn
fari fram og niðurstöður liggi fyr-
ir áður en slíkar fullyrðingar eru
settar fram. Þarna eru fullyrðingar
eins og „plastabarkamálið“ sé eitt
alvarlegasta siðferðisslys á Norður-
löndunum og að hérlend yfirvöld
þurfi að upplýsa hvað fór úrskeiðis
hér á landi.“ Fundur fulltrúa lækna-
deildar og Siðfræðistofnunar fór
fram í viðurvist rektors, Jóns Atla
Benediktssonar, um mánaðamótin
júní-júlí.
Salvör Nordal, forstöðumaður
Siðfræðistofnunar, segir það ekk-
ert launungarmál að skiptar skoð-
anir séu um málið en vill annars
ekki tjá sig um deiluna. Skoðana-
munur Siðfræðistofnunar og lækna-
deildar snýst meðal annars um að
Siðfræðistofnun vill láta gera sjálf-
stæða rannsókn á málinu á Íslandi
á meðan læknadeild telur nóg að
sænskir aðilar rannsaki málið heild-
stætt en nokkrar rannsóknir á mál-
inu fara fram í Svíþjóð.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis hefur ekki tekið ákvörðun
um það hvort Alþingi geri sérs-
taka rannsókn á málinu. Þetta seg-
ir Ögmundur Jónasson, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis, en nefndin fundaði um
málið föstudaginn 12. ágúst síðast-
liðinn: „Við munum fá fleiri aðila
á okkar fund, meðal annars Land-
læknisembættið, og fá þeirra sýn á
málið en engar ákvarðanir hafa ver-
ið teknar. Við munum skoða þetta
mjög vel en það er ekki komið að
okkar ákvörðun.“
Stofnanir Háskóla Íslands
deila um plastbarkamálið
Ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini.
„Grundvallaratriði er
að rannsókn fari fram
og niðurstöður liggi
fyrir áður en slíkar
fullyrðingar eru settar
fram.“
Magnús Karl Magnússon, forseti lækna-
deildar Háskóla Íslands
Stjórnmál Ekkert samráð var
haft við sveitarfélögin áður
en ákveðið var að leggja fram
frumvarp um leiðir til fyrstu
kaupa á fasteign. Reikn-
ingurinn verður sendur með
þögninni. Þetta kemur fram í
viðtali við Dag B. Eggertsson,
borgarstjóra Reykjavíkur.
Alls gætu sveitarfélög á Íslandi orðið
af 15 milljörðum í útsvarsgreiðsl-
ur verði frumvarps ríkisstjórnar-
innar um kaup á fyrstu fasteign í
gegnum viðbótarlífeyrissparnað að
veruleika.
Það er mat Sambands íslenskra
sveitarfélaga en minnisblað sam-
bandsins var kynnt á fundi borg-
arráðs Reykjavíkurborgar í gær.
Samkvæmt minnisblaðinu bitnar úr-
ræðið helst á Reykjavíkurborg sem
verður af útsvarstekjum upp á 637
milljónir króna. Þau sveitarfélög sem
tapa mest á loforðinu, auk Reykjavík-
ur, eru Kópavogur, Hafnarfjörður og
Garðabær.
„Ég held að allir hljóti að vera
sammála um að það sé óásættanlegt
að sækja þetta inn í skólastofurnar
og skera þetta af velferðarþjónustu
sveitarfélaga,“ segir Dagur og bætir
við: „Það hefur ennþá ekki verið efnt
að bæta sveitarfélögunum tekjutap
vegna fyrri aðgerða ríkisstjórnarinn-
ar sem reiknast vera um 5 milljarðar.
Og nú eiga að bætast við aðrir 10.“
Þarna vitnar hann til skuldaleið-
réttingarinnar svokölluðu en það er
ljóst að fjárhagsstaða borgarinnar er
erfið þessa stundina, og því kemur
málið borgarstjórn í opna skjöldu.
Dagur segir að næsta skref Sam-
taka sveitarfélaga sé að sækja
bætur vegna málsins, bæði vegna
þessa frumvarps, en einnig vegna
skuldaleiðréttingarinnar svokölluðu.
Spurður hvort eitthvert samráð
hafi verið haft við sveitarfélögin
vegna málsins svarar Dagur: „Svarið
er nei. Það var ekki talað við sveitar-
félögin fyrir fyrri aðgerðirnar. Og
heldur ekki þessar. Það virðist eiga
að senda þeim reikninginn með
þögninni. En það mun að sjálfsögðu
enginn sætta sig við það.“ | vg
Reikningur vegna kosninga
loforðs sendur með þögninni
Dagur B. Eggertsson segir sveitar-
félögin ekki sætta sig við að greiða
reikning kosningaloforðsins án þess
að fá bætur á móti.
Fjölbreytt úrval
heilsukodda
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF
NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI
Upplifðu tilfinninguna
að svífa í þyngdarleysi
Stillanleg heilsurúm í sérflokki
T E M P U R ® H Y B R I D H E I L S U DÝ N A N
Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa!
Leiðrétting
Fram kom í frétt um Rafal
Nabakowski, sem er grunaður
um skotárás á bíl í Breiðholti, að
hann hefði áður verið dæmd
ur fyrir hrottalega líkamsárás,
frelsissviptingu og að hafa neytt
foreldra fórnarlambsins til þess
að afhenda sér verðmæti. Við
dóm héraðsdóms var tekið mið
af þessum ásökunum fórn
arlambsins við refsingu, en dóm
ur var mildaður um þrjá mánuði
í Hæstarétti. Meðal annars á
þeim forsendum að Rafal var
ekki ákærður fyrir að svipta
manninn frelsi sínu og neyða
foreldrana til þess að afhenda
sér muni úr hans eigu. Hann
var því ekki sakfelldur fyrir þau
brot eins og fram kom í Frétta
tímanum í síðustu viku, heldur
eingöngu sakaður um það af
hálfu fórnarlambs. Beðist er
velvirðingar á mistökunum. | vg