Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 65
Unnið í samstarfi við Kramhúsið
Allir sem nokkru sinni hafa komið í Kramhúsið eru sammála um að þar ríkir alveg sérstakur andi sem
hvergi annars staðar fyrirfinnst.
„Kramhúsið hefur verið starf-
andi í 33 ár með barnastarf og
frumkvöðlastarf í að kynna nýja
dansmenningu fyrir landanum,“
segir Bryndís Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kramhússins.
Börn á öllum aldri eiga auð-
velt með að finna sér sína hillu í
Kramhúsinu enda dansnámskeið
af öllu tagi í boði. „Við fáum alltaf
til okkar erlenda gestakennara
sem koma með vinnustofur og
halda námskeið. Á næstunni kem-
ur Linnea frá Danmörku en hún
er meistari í magadansi og svo
kemur Athanahasia frá Aþenu
að kenna fyrstu 3 vikurnar í nú-
tímadansinum. Hún hefur meðal
annars dansað með danshópi Pinu
Bausch sem er með stærstu nöfn-
um dansheimsins.“
Ódauðleg tónverk
Í sumar var haldið afar vel heppn-
að sumarnámskeið og kennara-
námskeið og í framhaldi af því
verður listasmiðja barna endur-
vakin í vetur með Möggu Stínu,
Aude og Ásrúnu. „Ásrún tekur að
sér skapandi dans fyrir börn og
nútímadans fyrir 4. til 10. bekk.
Hún verður með nýja nálgun á
dansinn, farið verður meira út í
sköpun og nútímadans. Ásrún
hefur verið að þróa kennsluað-
ferðir í dansi með ungdómnum
eins og sjá mátti í sýningum henn-
ar GRLS og Made in Children. Að
vanda mun svo Natasha sjá um
breikdans á föstudögum. Hún
hefur kennt hér í 15 ár og skap-
að fjöldann allan af frábærum
dönsurum,“ segir Bryndís. „Börn
frá 6-9 ára skemmta sér í sköpun í
Tónlistarleikhúsi hjá Möggu Stínu,
þar sem samin eru ódauðleg tón-
verk með frumsömdum texta.“
Gæðastundir fyrir fjölskyldur
Yngstu börnin eru í höndum Guð-
bjargar Arnardóttur. Guðbjörg hef-
ur sérmenntað sig í kennslu fyrir
börn og er mikill reynslubolti, að
sögn Bryndísar. „Yngsti hópurinn
kynnist húsinu með foreldrum sín-
um en foreldrar geta líka dansað
afró með börnunum. Sandra og
Mamady leiða þátttakendur um
ævintýralegt ferðalag um framandi
menningu vestur-Afríku. Þetta er
miklar gæðastundir fyrir fjölskyld-
ur. Ekki má gleyma þeim duglegu
4 og 5 ára krökkum sem senda
foreldra sína í kaffirölt meðan
þeir læra tónlist og hreyfingu hjá
Rögnu Skinner. Ragna kemur inn
ný í vetur og endurvekur tónlist
og hreyfingu sem var hér áður í
Kramhúsinu með þeim Elfu Lilju og
Nönnu.“
Ódauðleg tónverk og ævintýraleg ferðalög í Kramhúsinu
Frumkvöðlastarf í 33 ár
Allskonar fyrir
fullorðna
Fullorðið fólk ætti allt að finna sér
eitthvað við sitt hæfi í Kramhús-
inu. Meðal þess sem er í boði er
afró, argentínskur tangó, Balkan,
Bollywood, Beyoncé, burlesque,
breikdans, nútímadans, Flamenco,
Jane Fonda danssviti, magadans,
zumba, Kizoma og ballett fyrir full-
orðna.
Einvalalið
kennara Magga
Stína, Ásrún Magn-
úsdóttir, Natasha
Royal og Ragna
Skinner. Á myndina
vantar Söndru,
Mamady, Aude og
Guðbjörgu.
Myndir | Hari
Fimleikar fyrir alla
Þarf ekki alltaf að vera keppni
Ekki bara keppni.
Olga Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri
Gerplu, segir síður
en svo einungis
afreksmannastefnu
rekna hjá félaginu.
Mynd | Hari
Unnið í samstarfi við Gerplu
Fimleikafélagið Gerpla er þekkt fyrir að hafa margt afreksfólk í sínum röð-um og fjölmennar afreks-
deildir í bæði áhaldafimleikum og
hópfimleikum kvenna og karla
en því fer fjarri að það sé ein-
göngu rekin afreks-
mannastefna hjá
félaginu. „Gerpla
stendur fyrir svo
miklu meira en
bara afreks-
starf,“ segir
Olga Bjarna-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Gerplu.
Meðal þess
sem boðið er upp
á eru fimleikar fyrir
fatlaða, parkour, krílahóp-
ar fyrir 3-4 ára þar sem foreldr-
ar eru með börnunum og svo eru
fimleikatímar fyrir 5 ára. „Frá og
með 5 ára aldrinum eru börnin
komin í grunnhópa. Þar læra þau
grunninn, en áhersla er lögð á að
efla hreyfiþroska, liðleika sem og
almenna hreyfi- og styrktarþjálf-
un. Í framhaldi af æfingum í grunn
og framhaldshópum ákveða börn-
in hvort þau vilji leggja þá fyrir
sig sem keppnisgrein eða bara
stunda fimleika sem sína líkams-
rækt. Það þarf ekki að vera alltaf
keppni,“ segir Olga og nefnir í því
samhengi hópinn Fimleikar
fyrir alla sem er vin-
sælt námskeið innan
Gerplu. „Þarna eru
krakkar, bæði
yngri og eldri,
sem vilja ekki
endilega keppa í
fimleikum en vilja
nota þá sem sína
líkamsrækt.“ Þeir
sem kjósa keppn-
isdeildina geta valið
um áhaldafimleika, hóp-
fimleika og/eða stökkfimi.
Fimleikar og jóga
Fimleikar fyrir fullorðna er sívin-
sælt námskeið en það er síður en
svo þannig að allir sem það sæki
séu í grunninn fimleikastjörn-
ur. „Þetta er fyrir alla sem hafa
áhuga á því að kynnast fimleik-
um. Farið er í fimleikaþrek, teygjur
og fjölbreyttar fimleikagrunnæf-
ingar. Námskeiðið er að hluta
einstaklingsmiðað því fólk kemur
inn af götunni með mismunandi
bakgrunn, sumir eru með fimleika-
grunn og aðrir ekki, en allir eiga
það sameiginlegt að vilja stunda
góða líkamsrækt í skemmtilegum
félagsskap.“
Í aðstöðu Gerplu er starfrækt
jóga sem fimleikadeildin hefur
verið að nýta sér í sífellt meiri
mæli. „Foreldrar geta jafnvel
sótt jógatíma meðan börnin eru
á æfingu og við nýtum jóga fyrir
meistaraflokkana okkar, keppn-
isdeildina. Jóga hefur notið meiri
vinsælda hjá strákunum en stelp-
unum, en einhver hefði haldið að
því væri öfugt farið,“ segir Olga.
Fleiri stúlkur en drengir stunda
fimleika, eins og staðan er núna,
en að sögn Olgu eru drengir mjög
öflugir framan af. Eftir 10 ára
aldurinn snúa margir þeirra sér
heldur að fótboltanum eða öðrum
boltaíþróttum þó að það sé langt
því frá algilt. „Áhaldafimleika-
deild drengja frá 10 ára aldri er
öflugust í Gerplu af félögunum á
höfuðborgarsvæðinu og er það að
þakka góðum þjálfurum og utan-
umhaldi.“ segir Olga.
…tómstundir kynningar5 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
„Þarna
eru krakkar,
bæði yngri og
eldri, sem vilja
ekki
endilega kepp
a í
fimleikum en v
ilja
nota þá sem s
ína
líkamsrækt.“