Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 2
Fíkniefni „Að vita til þess að
það eru foreldrar að ganga
í gegnum það sama og
maður sjálfur – það er alveg
skelfilegt,“ segir Þorvarður
Helgason sem missti dóttur
sína, Evu Maríu, í október
árið 2013 úr ofneyslu
fíknefna á heimili tónlistar-
mannsins Gísla Pálma. Þá
var hún 21 árs gömul. Hún
var ekki í neyslu eftir því
sem foreldrar komast næst,
en hún tók inn MDMA sem
dró hana til dauða.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Þorvarður og eiginkona hans, Lilja
Guðmundsdóttir, fengu símtal á
sunnudaginn síðasta þar sem þeim
var sagt að ungur maður hefði lát-
ist úr lyfjaeitrun en grunur er uppi
um að hann hafi neytt Fentanýls.
Félagi hans fór í hjartastopp fyrir
utan Prikið á Menningarnótt, en
þar reyndi Gísli Pálmi að endur-
lífga félaga sinn áður en sjúkrabíll
kom á vettvang. Sá sem fór upp
á spítala lifði nóttina af, en félagi
þeirra fór heim og lést þar, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Grunur leikur á að þeir hafi neytt
sama efnisins um kvöldið.
Þorvarður segir að hann hafi
orðið sorgmæddur þegar hann
fékk fréttirnar frekar en að fyll-
ast reiði „Það er depurð sem fylgir
því að hugsa til þess að ungt fólk í
blóma lífsins, sem á alla framtíð-
ina fyrir sér, fari þessa leið,“ segir
hann.
Þorvarður segist ekki kenna tón-
listarmanninum um andlát dóttur
sinnar, en hann hefur aldrei dregið
fjöður yfir eigin fíkniefnaneyslu.
„Við erum ekki að leita að söku-
dólgum,“ segir hann og bendir á
að Gísli Pálmi sé ekki fyrsti tónlist-
armaðurinn sem hefur verið í mik-
illi fíkniefnaneyslu. „Það er hins-
vegar sorglegt að horfa á það þegar
honum er hampað og hann verður
óhjákvæmilega ákveðin fyrirmynd
fyrir þessa krakka. Það er fullt af
ungmennum innan við tvítugt sem
hanga í honum og það getur verið
óhugnanlegt,“ segir Þorvarður.
Samúð Þorvarðar er hjá fjöl-
skyldu mannsins sem var á þrí-
tugsaldri þegar hann lést. „Þetta
er rosalega erfitt fyrir foreldra. Það
er erfitt að ganga í gegnum svona
lagað. Við Lilja hugsum um Evu
Maríu á hverjum degi og tölum oft
um þetta,“ segir Þorvarður.
Spurður hvað sé til ráða svar-
ar Þorvarður: „Við erum ekki að
standa okkur nægilega vel í þess-
um málaflokki. Mér finnst að við
eigum að byrja á forvörnum fyrr.
Það virðist vera það eina sem
virkar.“
Hann bætir svo við: „Við þurfum
að hugsa þetta betur; það er bara
of mikið í húfi.“
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. ágúst 2016
Skólamál Leikskólastjóri í
borginni segist þurfa að sjá
hundrað manns fyrri mat
fyrir þrjátíu þúsund krónur
á dag. Hún segir núverandi
meirihluta hafa ákveðið að
lækka leikskólagjöld án þess
að kosta neinu til. Foreldrar
verði að gera sér grein fyrir
því að þessi stefna komi nið-
ur á börnunum.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Það gefur auga leið að börnin eru
ekki að fá hollan og góðan mat fyrir
þennan pening,“ segir Anna Mar-
grét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á
Nóaborg, en skólastjórar leikskóla
og grunnskóla og forstöðumenn frí-
stundaheimila hittu stjórnendur hjá
skóla- og frístundasviði borgarinnar
í gær til að ræða rekstrarniðurstöð-
ur fyrir síðasta á.
Anna Margrét segist hafa 30.000
krónur til að sjá 80 börnum og tutt-
ugu starfsmönnum fyrir morgun-
mat, ávaxtastund, hádegisverði og
síðdegishressingu. „Bara fiskurinn
kostar til dæmis um 24.000 og þá
er allt annað eftir,“ segir hún. Hún
hefur verið leikskólastjóri í fimmtán
ár en síðasti vetur og það sem af er
þessu ári hafi verið erfiðasta tímabil
á starfsferlinum. „Ég skrifa það nán-
ast að öllu leyti á þann meirihluta
sem nú stjórnar borginni,“ segir
Anna Margrét.
Anna Margrét segist hafa verið
leikskólastjóri í fimmtán ár og alltaf
þurft að velta hverri krónu milli
handanna. Nú sé hinsvegar skorið
langt inn að beini. Hún segist hafa
stutt núverandi meirihluta til valda
og hafa haft mikla trú á honum. Það
traust fari þverrandi með hverjum
deginum sem líður. „Ég veit að
mörgum stjórnendum líður eins og
mér og eru komnir með nóg. Það
þarf að gera eitthvað róttækt í skóla-
málunum og það strax, áður en það
verður of seint,” segir hún. Hún seg-
ist hlynnt gjaldfrjálsum leikskóla en
það þýði ekki að lækka leikskóla-
gjöldin nema láta skólana fá aukið
rekstrarfé á móti. Foreldrar verða
að koma inn sem þrýstihópur til
verndar börnunum og skólunum.
„Þetta ástand gengur ekki upp, við
erum að missa starfsfólk og þetta
bitnar á börnunum.“
Börnin eru ekki að fá góðan mat fyrir þennan pening
Missti dóttur sína úr ofneyslu
Segir samúð sína hjá
foreldrum mannsins
„Það er depurð sem
fylgir því að hugsa til þess
að ungt fólk í blóma lífs-
ins, sem á alla framtíðina
fyrir sér, fari þessa leið.“
Þorvarður Helgason missti dóttur sína
árið 2013 úr ofneyslu fíkniefna.
Eva María lést í nóvember 2013 úr
ofneyslu MDMA. Hún var 21 árs.
Maðurinn sem lést er talinn hafa innbyrt læknadóp.
Menning Guðrún Vil-
mundardóttir og Pétur
Már Ólafsson deildu meðal
annars um bók Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Rithöfundarnir Jón Kalman Stef-
ánsson og Auður Ava Ólafsdóttir
munu hætta að gefa út hjá bóka-
forlaginu Bjarti í kjölfar starfsloka
útgáfustjóra forlagsins, Guðrún-
ar Vilmundardóttur. Þetta herma
heimildir Fréttatímans og hafa báð-
ir höfundarnir lýst þessu yfir. Guð-
rún lét af störfum hjá Bjarti í sumar
og hefur hún ákveðið að stofna eig-
ið bókaforlag. Jón Kalman og Auður
Ava ætla sér að gefa út hjá henni í
stað Bjarts.
Í samtali við Fréttatímann segir
Guðrún að hún vilji ekki tjá sig um
starfslok sín eða fyrirætlanir sínar
á bókamarkaði. Jón Kalman segir
sömuleiðis að hann vilji ekki tjá sig
um málið að svo stöddu. Ekki náðist
í Auðu Övu. Jón Kalman hefur gef-
ið út 11 skáldsögur á 20 árum und-
ir merkjum Bjarts á meðan Auður
Ava hefur gefið út eina bók hjá for-
laginu.
Guðrún Vilmundardóttir hafði
unnið hjá Bjarti í tíu ár en eigandi
fyrirtækisins er Pétur Már Ólafs-
son. Pétur Már á líka forlagið Ver-
öld og hefur rekið það ásamt Bjarti
í sama húsnæði á Bræðraborgar-
stígnum. Bjartur hefur sérhæft sig í
útgáfu fagurbókmennta, íslenskra
og þýddra, á meðan Veröld hef-
ur að mestu einbeitt sér að útgáfu
ævisagna, fræðirita og rita almenns
eðlis.
Eitt af því sem mun hafa valdið
deilum í samskiptum Guðrúnar
og Péturs Más var að í fyrra neit-
aði hún að gefa út bókina Endur-
komuna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson
undir merkjum Bjarts og var bók-
in á endanum gefin út hjá Veröld í
staðinn. Einhver faglegur ágrein-
ingur var því til staðar þó ástæður
starfslokanna séu ókunnar.
Pétur Már vill ekki tjá sig um
starfslok Guðrúnar eða ákvarðanir
Jóns Kalmans og Auðar Övu.
Jón Kalman Stefánsson og Auður Ava Ólafsdóttir, ætla að fylgja Guðrúnu
Vilmundardóttir frá Bjarti og til nýs forlags.
Auður Ava og Jón
Kalman hætta hjá
Bjarti með Guðrúnu
Það þarf að
gera eitthvað
róttækt í
skólamálum og
það strax, segir
Anna Margrét
Ólafsdóttir,
leikskólastjóri
á Nóaborg.
Marianna Vilbergs Hafsteinsdóttir
skreið upp tröppurnar hjá Pósthús-
inu í Austurstræti vegna lélegs að-
gengis fyrir fatlaða.
„Aðgengi fyrir fatlaða, líka þá
sem þurfa að notast við göngu-
grindur og hækjur, er til hábor-
innar skammar,“ segir Marianna
Vilbergs Hafsteinsdóttir, en hún,
ásamt hópnum Ferðabæklingurinn,
hafa kannað aðgengi ýmissa stofn-
ana og verslana víða um borgina.
Meðal annars kannaði hún og Hjör-
dís Heiða Ásmundsdóttir aðgengi
að pósthúsinu í Austurstræti á
dögunum.
Það er óhætt að segja að aðgeng-
ið þar sé ekki til fyrirmyndar þegar
kemur að fötluðum, en Marianna
þurfti að skríða upp tröppurnar hjá
Hinu Húsinu með hjólastólinn í eft-
irdragi til þess að komast inn.
Til þess að allrar sanngirni sé
gætt þá er hjólastólalyfta í anddyri
Hins hússins, ekki Pósthússins.
Guðmundur Samsson tók mynd-
bandið upp og hefur því verið
deilt yfir 400 sinnum á netinu og
yfir þrjátíu þúsund hafa horft á
það. Marianna, Hjördís og Sigrún
Heiða Birgisdóttir standa að aðgerð-
arhópnum sem kannar aðgengi fyr-
ir fatlaða en myndbandið má sjá á
vef Fréttatímans. | vg
Velferðarmál
Fötluð kona skreið upp tröppurnar
Marianna og Hjördís að virða fyrir sér
aðgengið.Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
Nr. 12799
Skoðið útsöluna á
www.grillbudin.is
GrillbúðinÁ R A
ÚTSALA
gasgrill 4ra brennara
• 4 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Gaumljós í tökkum
• Hitamælir í loki
• Postulínsemaleruð efri grind
• Grillflötur: 70,5 x 49,5
• Grillið er afgreitt 95% samsett
• Afl 18,7 KW
129.900
FULLT VERÐ 189.900